Fréttablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
FIMMTUDAGUR
11. mars 2010 — 59. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er mikið fyrir að vera í skyrt-um og þykir það þægilegt og töff,“ segir Ingibjörg Ragnheiður Egils-dóttir fegurðardrottning og bætir við að með þröngu belti sé hægtað búa til mjö k
legum fylgihlutum. „Flottasti fylgi-hluturinn í dag er til dæmis nagla-lakk,“ segir hún og bætir við aðhún hafi góðan aðl
svolítinn tíma reynt að fá hana til samstarfs við sig í þáttum íNýtt ú li
Lakkið besta skrautiðIngibjörgu Ragnheiði Egilsdóttur þykir þægilegt að ganga í skyrtum. Þær henta vel í vinnunni en hún
hefur tekið við sem aðstoðarkona Karls Berndsen við gerð sjónvarpsþáttarins Nýtt útlit á Skjá einum.
Ingibjörg segir háa hæla vera „algjört möst,“ en hún heldur þessa dagana annars mikið upp á fallegar skyrtur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJAVÍK FASHION FESTIVAL, eða RFF, verður haldið í fyrsta skipti
um næstu helgi, 18.-21. mars í tengslum við Hönnunarmars. Til þátttöku eru
skráðir fremstu fatahönnuðir landsins, rúmlega tuttugu talsins, en sýnt
verður í O.J. Kaaber húsinu, Sætúni 8. Miða er hægt að nálgast á midi.is.
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækiðByggir á nýrri tækni sem eyðir• Frjókornum, ryki og myglusveppi• Vírusum og bakteríum• Gæludýra ösu og ólykt• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt• Tilvalið á heimilið og á skrifstofuna
Hæð aðeins 27 cm GólfefniSérblað • fimmtudagur 11. mars
Spilar um milljónir
Auðunn Blöndal er
á leið á eitt stærsta
pókermót heims.
FÓLK 46
INGIBJÖRG EGILSDÓTTIR
Kvenleg í köflóttri
skyrtu og hælaskóm
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sjálfstætt líf fatlaðra
Mannréttindi verða
til umræðu á ráð-
stefnu um fötlun-
arrannsóknir.
TÍMAMÓT 26
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Bæklingur
fylgir með
inni í blaðinu í dag.
Fermingar
Opið til 21
Engar rafl ínu-
framkvæmdir
yfi r
Heiðmörkina
Borgarmálafélag F-lista
SVEITARFÉLÖG 1.660 foreldrar
grunnskólabarna í Reykjavík
fengu bréf frá milliinnheimtu-
fyrirtækjum vegna vangoldinna
skólamáltíða á síðasta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
borginni voru skólamáltíðir seld-
ar 11.074 greiðendum fyrir sam-
tals 767 milljónir króna. 1.660
manns, eða um 15,5 prósent af
hópnum, stóðu ekki í skilum
á réttum tíma með um 4% af
heildarupphæðinni, samtals 30
milljónir króna.
Fyrir milligöngu innheimtu-
fyrirtækis innheimtust tæplega
15 milljónir af vanskilunum en
aðrar 15 milljónir voru enn úti-
standandi um áramót hjá 916 for-
eldrum. - pg / sjá síðu 6
Grunnskólar í Reykjavík:
1.660 foreldrar í
vanskilum með
skólamáltíðir
GÓLFEFNI
Máluð gólf, parket og
persneskar mottur
Sérblað um gólfefni
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FJÖLMIÐLAR Forseti Íslands afhendir í dag Samfélags-
verðlaun Fréttablaðsins. Verðlaunin eru veitt í fjórum
flokkum, auk heiðursverðlauna.
Flokkarnir eru: Hvunndagshetjan, Frá kynslóð til
kynslóðar, Til atlögu gegn fordómum og Samfélags-
verðlaunin en í þeim flokki verða veitt peningaverð-
laun sem nema einni milljón króna. Grunnurinn að
Samfélagsverðlaununum kemur frá lesendum blaðs-
ins sem í janúarmánuði sendu inn fjölda tilnefninga.
Þá tók við starf dómnefndar sem nú hefur útnefnt
fimm í hverjum hinna fjögurra flokka og eru þessar
tuttugu tilnefningar kynntar í blaðinu í dag.
Þetta er í fimmta sinn sem Fréttablaðið veitir
Samfélagsverðlaunin. Tilgangur þeirra er að beina
sjónum að fjölbreytilegum góðverkum og grasrótar-
starfi sem unnið er víða í samfélaginu. -st / sjá síður 16
Forseti Íslands afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í dag:
Sjónum beint að góðverkum
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum komin
í gjaldþrot hvað varðar tækja-
kaup og erum nær algjörlega háð
líknarfélögum hvað þetta varðar.
Það er ekki eðlilegt og er óþekkt
annars staðar,“ segir Björn Zoëga,
forstjóri Landspítalans. „Hafa
verður hugfast að tækjabúnað-
ur spítalans, sem er gríðarmikill,
úreldist hratt og það verður að vera
nokkuð hröð endurnýjun á honum
meðal annars vegna tæknifram-
fara“, segir Björn.
Þörfin endurspeglast í þeirri
staðreynd að líftími lækningatækja
er almennt talinn um sex ár en hér
eru tæki nýtt í áratug eða lengur.
„Við þurfum að neita okkur um að
fá hingað nýjustu tækni. Það er
nýlunda því spítalinn var vel tækj-
um búinn lengi vel,“ segir Björn
Fé sem Landspítalinn hefur feng-
ið úthlutað á fjárlögum til tækja-
kaupa á undanförnum árum er
þrisvar til fjórum sinnum minna
sem hlutfall af veltu en hjá sam-
bærilegum háskólasjúkrahúsum á
Norðurlöndunum.
Á fjárlögum ársins 2010 er 237
milljónum, auk framlaga til við-
halds og nýframkvæmda, veitt til
tækjakaupa en þyrfti að vera millj-
arður á ári til eðlilegrar endur-
nýjunar. Um sömu krónutölu er að
ræða og undanfarin ár. Öll tæki
eru keypt erlendis frá og því hefur
gengisþróun séð til þess að upp-
hæðin hrekkur varla til kaupa á
bráðanauðsynjum.
Ólafur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri lækninga, segir
þörfina mikla en gæðaeftirlit spít-
alans sé strangt. Því séu tæki tekin
úr umferð þegar þau nýtast ekki
lengur.
„Þetta er mikið áhyggjumál.
Það er orðin veruleg þörf á venju-
legum lækningatækjum. Þar má
nefna öndunarvélar, ómtæki og
línuhraðal sem kostar til dæmis
um 300 milljónir í stofnkostnað.
Með hverju árinu sem líður verður
þessi þörf sífellt meiri og þá erum
við ekki að tala um neinar nýj-
ungar.“ Ólafur segir að samfélag-
ið verði að gera upp við sig hvort
kaupa á nýjustu tækni til landsins
eða hvort senda eigi einstaklinga
til rannsókna til útlanda. „Fjár-
þörfin er því aðkallandi í tvennum
skilningi.“
Minningarsjóður Landspítalans
færði LSH rúmlega áttatíu millj-
óna króna gjöf í vikunni. Tíma-
setning gjafarinnar er engin til-
viljun segja stjórnendur á LSH.
Hún var svar við brýnni þörf.
Gjöfin verður nýtt til kaupa á
allmörgum tækjum sem flest hafa
verið á svokölluðum bráðakaupa-
lista, að sögn Björns.
svavar@frettabladid.is
Landspítali treystir á gjafir
líknarfélaga til tækjakaupa
Forstjóri LSH segir tækjabúnað úreldast hratt vegna fjárskorts. Tæki notuð mun lengur en á sambærileg-
um sjúkrahúsum. Fjárþörf til eðlilegrar endurnýjunar er milljarður á ári. Ríkisframlag er 237 milljónir.
GÓÐVIÐRI Í dag verða víðast
vestan 3-8 m/s. Yfirleitt þurrt en
dálítil væta N- og NA-til. Léttskýjað
SA-til. Hiti á bilinu 2-8 stig.
VEÐUR 4
3
4
3
5
4
TVÆR BIRNUR Inga Birna Ísdal Gunnarsdóttir úr Foldaskóla tók í gær við verðlaunum úr hendi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
borgarstjóra fyrir tillögu sína að merki fyrir Barnamenningarhátíð. Inga Birna situr í fangi móður sinnar fyrir miðri mynd.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Rooney rústaði AC Milan
Wayne Rooney
var enn og aftur í
aðalhlutverki í gær
þegar Manchester
United komst áfram
í Meistaradeildinni.
ÍÞRÓTTIR 42
Dýrkeyptur sveigjanleiki
„Í rauninni er eini raunhæfi
möguleikinn til þess að losna við
okurvexti og vístölutengingu lána
að við köstum krónunni,“ skrifar
Jón Steinsson.
UMRÆÐAN 22