Fréttablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 30
11. MARS 2010 FIMMTUDAGUR
Eik Cottage
1261 x 189 x 9 mm
9mm harðparket í hæðsta
gæðaflokki. Smella
og 25 ára ábyrgð.
Verð 5.490.-
Eik Cambridge
1261 x 189 x 9 mm
9mm harðparket í hæðsta
gæðaflokki. Smella
og 25 ára ábyrgð
Verð 5.990.-
Eik Honey
1261 x 189 x 9 mm
9mm harðparket í hæðsta gæðaflokki. Smella og 25 ára ábyrgð.
Verð 5.990.-
Eik Barn
1261 x 189 x 9 mm
8mm harðparket í hæðsta gæðaflokki. Smella og 25 ára ábyrgð
Verð 5.490,-
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is s. 512 5462 og Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411
Egill Árnason er rótgróið fyrir-
tæki sem stendur framarlega í
sölu á parketi og flísum. Úrval-
ið er breitt og hentar ólíkum
þörfum.
„Fyrir þá sem kjósa slitsterkt
parket mælum við með harðpark-
etinu frá Balterio en á undanförn-
um árum hefur orðið hröð fram-
för í framleiðslu á því. Það hefur
útlit hefðbundins viðarparkets
en stenst slitálag á mestu álags-
svæðum,“ segir Ásgeir Einars-
son, framkvæmdastjóri Egils
Árnasonar. Hann segir parketið
henta sérstaklega vel ef slitþol-
ið þarf að vera mikið, ef hundar
eða önnur gæludýr eru á heimil-
inu, á vinnustöðum og í verslun-
um svo dæmi séu tekin. Þá segir
hann fólk í auknum mæli velja
harðparket á heimilin af praktísk-
um ástæðum. „Ef fólk vill auðvelt
líf og leggur upp úr góðri endingu
þá hentar harðparketið afar vel,“
segir Ásgeir. Hann bendir einnig
á Grandeur, nýjustu vörulínuna
frá Balterio, en efnið er hannað út
frá gömlum breiðum parketborð-
um og er ætlað að koma í staðinn
fyrir 24 sentímetra breiðu viðar-
borðin sem margir kannast við í
gömlum húsum erlendis. Ásgeir
segir efnið henta vel í hús sem er
verið að gera upp en líka á skrif-
stofuhúsnæði þar sem þarf að
setja niður hlýlegt en slitsterkt
gólfefni.
Þeir sem eru að leita að nátt-
úrulegu og sígildu gólfefni hall-
ast síðan að plankaparketi sem
er bæði hægt að fá gegnheilt og
krosslímt. „Plankaparketið frá
Baltic-Wood hefur verið sérstak-
lega vinsælt undanfarin ár en þar
er um að ræða náttúruleg efni
með æðum, kvistum og öllu því
sem náttúran hefur upp á að bjóða.
Flestir sem eru að leita að hlýlegu
gólfefni á heimilið falla fyrir því.
„Hreyfingin á gegnheilum planka-
gólfum getur verið mikil en hún er
minni á krosslímda plankaparket-
inu. Útlitsmunur er þó varla sjáan-
legur og fer valið því eftir því sem
hentar hverjum og einum.“
Auk parkets og flísa selur Egill
Árnason hurðir og þiljur ásamt
því að vera með sérvörudeild sem
leysir verkefni á borð við að leggja
íþróttagólf, flísaklæðningar og
setja upp kerfisveggi. Aðspurð-
ur segist Ásgeir mæla eindreg-
ið með því að fólk fái fagmenn til
að leggja parket en Egill Árna-
son er í samstarfi við Félag ís-
lenskra parketmanna (FÍP). „Það
er þó alltaf eitthvað um að fólk
vilji spreyta sig sjálft og gerum
við okkar besta til að uppfylla
þær þarfir. Sem dæmi um það má
nefna að Baltic-Wood parketinu
okkar fylgja íslenskar leiðbeining-
ar um lagningu og viðhald.“
Ásgeir segir marga kaupendur
vinna öðruvísi nú heldur en áður
en kreppan skall á. „Fólk tekur
minni fleti og gefur sér lengri tíma
í verkin. Það tekur gjarnan eitt
herbergi fyrir í einu og gerir hlut-
ina á mun eðlilegri framkvæmda-
hraða en áður.“ Hann segir fólk
líka í auknum mæli horfa í verð-
ið samhliða gæðum. „Þetta er
þannig bransi að fólk velur ekki
endilega það ódýrasta. Það er að
kaupa til framtíðar og veit að þá
er ekki alltaf best að veðja á ódýr-
asta kostinn. Aftur á móti reynir
það að velja praktískar lausnir og
fá sem mest fyrir peninginn.“
Gólfefnakaup til framtíðar
Margir tengja persneskar mott-
ur við þung og dökk húsgögn og
heimili í antíkstíl. Það kemur því
skemmtilega á óvart hve mikið
persnesk-ar mottur hafa verið not-
aðar af ungum hönnuðum og þá
notaðar með léttum og ljósum hús-
gögnum og háglans innréttingum.
Tékkneskir hönnuðir voru fengn-
ir til að endurhanna innviði kirkju
heilags Bartólómeusar í Bæheimi
í Tékklandi fyrir nokkrum árum
og notuðu þeir meðal annars hvíta
Panton-stóla með persneskum
mottum.Alvöru persneskar mott-
ur eru oft fáanlegar á málverka-
uppboðum hérlendis sem og í an-
tíkverslunum. - jma
Persneskt í nýrri húsnæði
Ásgeir segir fólk gjarnan taka eitt herbergi fyrir í einu og að framkvæmdatíminn sé oft eðlilegri nú en áður tíðkaðist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Perneskt teppi við hvít og létt húsgögn er ljómandi
falleg blanda.