Fréttablaðið - 12.03.2010, Blaðsíða 2
2 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR
SAMGÖNGUR Formaður Félags flug-
umferðarstjóra segist telja sig hafa
„loforð um að eitthvað þokist“ á
næstu dögum, í kjaradeilu félagsins
við opinbera hlutafélagið Flugstoðir.
Ríkisstjórnin hafi gefið fyrirheit um
að „menn með óskorað samnings-
umboð“ komi að borðinu.
Þetta segir formaðurinn, Ottó
Garðar Eiríksson, en flugumferðar-
stjórar aflýstu í gær verkfalli, sem
hefði haft áhrif á flugsamgöngur
í dag og á mánudag, eftir að ríkis-
stjórnin ákvað að setja lög á verk-
fallið.
Ottó tekur ekki
undir að flug-
umferðarstjórar
hafi verið þvingað-
ir til að hætta við
verkfallið, enda
hafi þeir fyrrgreint
vilyrði.
Spurður hver
hafi lofað þessu,
segir hann erfitt
að gefa það upp.
Hann segir aðspurður að það hafi
ekki verið samgönguráðherra.
Kristján Möller samgönguráð-
herra var í gær ánægður með
ákvörðun flugumferðarstjóra en
kannaðist ekki við tilboð frá ríkis-
stjórninni. Það væri viðsemjenda
að svara fyrir samningaferlið: „Við
höfum ekki lofað neinu. Það er ekk-
ert svoleiðis í gangi.“
Kristján hafði rætt við stjórnar-
andstöðuna um lagasetninguna og
sagði formenn Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokka hafa ætlað að styðja
hana. Hreyfinguna taldi hann hafa
ætlað að sitja hjá. „Það var því víð-
tækur stuðningur við þessa laga-
setningu,” segir hann. - kóþ
Flugumferðarstjórar eru óhressir með boðaða lagasetningu en bjartsýnir:
Segjast hafa loforð um betri tíð
KRISTJÁN L.
MÖLLER
SPURNING DAGSINS
Er Jökullinn kominn aftur á
skrið?
„Hann hefur alltaf verið á fullu skriði
og verður síðasti jökullinn til að
hverfa.“
Trommuleikarinn Halldór Lárusson
hefur haldið úti vefsíðunni trommari.is.
Umfjöllun um goðsögnina Gunnar Jökul
Hákonarson á síðunni hefur dregið dilk á
eftir sér og stefnt er að minningartónleik-
um í haust.
SKEMMTANIR „Þetta er fáránlegt.
Ég er ekkert smá reið,“ segir Anna
Vallý Baldursdóttir sem komst að
því að hún þurfti að greiða fullt
verð fyrir aðgöngumiða handa níu
mánaða dóttur sinni á fyrirhugaða
Latabæjarhátíð.
Anna segist hafa ætlað með fjög-
urra ára dóttur sína á Latabæjar-
hátíðina sem verður í Laugardals-
höll síðar í þessum mánuði. Þar
sem hún sjálf búi í Garðinum en
foreldrar hennar á Akranesi hafi
verið fyrirsjáanlegt að hún myndi
lenda í vandræðum með pössun
fyrir níu mánaða dóttur.
„Ég hringi til að spyrja hvort ég
þyrfti nokkuð að borga fyrir þessa
níu mánaða og var þá strax sagt
að ég þyrfti að borga fullt gjald,
2.900 krónur. Engu máli myndi
skipta þótt ég
my nd i h a fa
hana í fanginu
allan tímann,“
segir Anna sem
er ósátt og kveð-
ur fleiri á sömu
skoðun. „Ég hef
rætt þetta við
fólk og það á
enginn til orð.“
Ísleifur B.
Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Bravó, sem
skipuleggur Latabæjarhátíðina,
segir um afar vandaðan og dýran
atburð að ræða og að fyrirtækið
þurfi að reyna að lifa af eins og
önnur fyrirtæki.
„Það þarf að borga fyrir allt
í þessum heimi,“ segir Ísleifur.
„Þetta er vara eins og önnur vara
og það kostar inn á tónleikana. Þú
getur ekki farið inn í Hagkaup og
tekið barnamat fyrir sex mánaða
barn úr hillunni án þess að borga
fyrir það.“
Þess utan segir Ísleifur að Lata-
bæjarhátíðin sé alls ekki ætluð
fyrir níu mánaða gömul börn. „Það
verður mikið sjónarspil og mikil
læti. Þetta er rangur staður fyrir
börn á þessum aldri,“ segir hann.
Þá útskýrir Ísleifur að aðeins
hafi verið gefið leyfi fyrir ákveðn-
um fjölda inn í Höllina. Það séu
um fimm þúsund manns sem selja
megi inn.
„Við værum að brjóta öll lög og
reglur ef við værum að hleypa einni
manneskju inn í húsið sem væri
ekki með miða. Það skiptir engu
máli hvort viðkomandi er sex mán-
aða eða sextíu ára. Ef við værum
að gefa barninu þennan miða þá
værum við bara að gefa henni þrjú
þúsund krónur af því að við getum
ekki selt miðann eitthvert annað,“
segir Ísleifur sem kveðst búast við
að það verði „pakkuppselt“ á Lata-
bæjarhátíðina.
Að sögn Ísleifs hafa fleiri en
Anna gert athugasemdir við að
þurfa að borga miða fyrir svo ung
börn. „En það sem er einstakt í
þessu tilfelli er að þessi kona vill
ekkert hlusta á það sem við erum
að útskýra heldur er bara hörð á
því að hún eigi fullan rétt á að fá
vöru frá okkur ókeypis.“
gar@frettabladid.is
Níu mánaða borgi sig
inn á Latabæjarhátíð
Tveggja barna móðir sem ætlaði á Latabæjarhátíðina í Höllinni segir fáránlegt
að þurfa að greiða fullt verð fyrir níu mánaða dóttur. Gefum ekki vörur, segir
framkvæmdastjóri Bravó og ráðleggur fólki að koma ekki með svo ung börn.
ÍSLEIFUR B.
ÞÓRHALLSSON.
ANNA VALLÝ BALDURSDÓTTIR hætti við að fara á Latabæjarhátíðina með dæturnar
þegar hún áttaði sig á að greiða þurfti fullt verð fyrir þá yngri sem er aðeins níu
mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fer-
tugsaldri og tvær stúlkur um tví-
tugt voru handtekin á Laugavegi
í gærdag grunuð um stórfelldan
þjófnað úr verslunum.
Verslunareigendur og vegfar-
endur gerðu lögreglu viðvart,
þar sem atferli fólksins var talið
grunsamlegt. Stúlkurnar og mað-
urinn höfðu þá farið í nokkrar
verslanir í miðborginni og lék
grunur á að þau hefðu stolið
vörum úr þeim.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu er um síbrotafólk að
ræða. Fólkið var handtekið og
fært á lögreglustöð. - jss
Handtekin á Laugavegi:
Grunuð um
búðaþjófnað
ÞÝFI ÞJÓFAGENGIS Lögreglan með þýfi
sem fannst hjá þjófagenginu.
FRETTABLADID/PJETUR
DÓMSTÓLAR Hæstiréttur hefur
staðfest úrskurð Héraðsdóms
Reykjaness um að dæmdir man-
salsmenn skuli sæta gæsluvarð-
haldi þar til dómur í máli þeirra
hefur gengið í Hæstarétti.
Fimm Litháar, sem héraðsdóm-
ur dæmdi í fimm ára fangelsi
fyrir mansal, kærðu dóminn til
Hæstaréttar. Þeir höfðu í hér-
aði verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald þar til dómur gengi í
Hæstarétti. Tveir þeirra kærðu
gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs-
dóms til Hæstaréttar, sem vísaði
til hættumats greiningardeildar
ríkislögreglustjóra þar sem fram
kemur að vitnum í málinu stafi
hætta af mönnunum. - jss
Hæstiréttur vitnar í hættumat:
Mansalsmenn
áfram í gæslu
ATVINNUMÁL Ríki og borg undirrituðu í gær vilja-
yfirlýsingu um að blása til námskeiðahalds fyrir
atvinnulaust fólk á aldrinum sextán til 24 ára. Sam-
starfið byggir á áherslum Reykjavíkurborgar í
atvinnumálum ungs fólks og stefnu félagsmálaráðu-
neytisins „ungt fólk án athafna“.
Markmið námskeiðanna er að stuðla að aukinni
virkni þessa hóps og verður lögð áhersla á að efla
sjálfstraust þeirra, styrkja félagsfærni og styðja
við náms- og atvinnuleit. Þá verður horft til þess að
þróa úrræði innan hverfa borgarinnar og verður
Breiðholtshverfi prófsteinninn, en þar eru á þriðja
hundrað manns í þessum aldurshópi án atvinnu.
Íþrótta- og tómstundasvið, Vinnumálastofnun og
þjónustumiðstöðvar skipuleggja námskeiðin í sam-
ráði við Rauða kross Íslands og aðra samstarfsaðila
í einstökum hverfum. Með samstarfinu opnast ný
tækifæri til að styðja við ungmennin og nýta tæki-
færi sem fyrir eru í hverfunum eins og tómstunda-,
mennta-, menningar- og íþróttatilboð. Enn fremur
verður leitað samstarfs við fyrirtæki og félagasam-
tök.
Námskeiðin eru tilraunaverkefni og verður árang-
ur þeirra metinn með reglulegu millibili á fram-
kvæmdatímanum sem er eitt ár. - shá
Ríki og borg taka höndum saman um námskeiðahald fyrir ungt fólk:
Virkja atvinnulaus ungmenni
SAMSTARF RÍKIS OG BORGAR Oddný Sturludóttir, formaður
atvinnumálahóps Reykjavíkurborgar, Árni Páll Árnason
félagsmálaráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Króna stendur eins og í júní
Gengi krónu styrktist í gær um 0,33
prósent og hefur hún ekki verið
sterkari síðan snemma í júní í fyrra.
Gengisvísitalan var í lok dags 228,7
stig. Evran kostaði 173,6 krónur,
Bandaríkjadalur 126,9 og danska
krónan 23,3. Þá kostaði sterlings-
pundið 191,2 krónur.
PENINGAMÁL
JARÐVÁ Skjálfti af stærð 3,0 til
3,1 mældist í Eyjafjallajökli síð-
degis í gær. „Er það með stærstu
skjálftum sem mælst hafa í Eyja-
fjallajökli frá áramótum,“ segir á
vef Veðurstofu Íslands.
Skjálftinn í gær er sagður hafa
fundist vel við Gýgjökul, nærri
skjálftamiðjunni. „Smáskjálfta-
virknin er áfram stöðug og á 7 til
11 kílómetra dýpi,“ segir Veður-
stofan.
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli er enn í gildi óvissustig
Almannavarna vegna óróans sem
hefur verið í jöklinum frá því í síð-
ustu viku. - óká
Óvissustigi er viðhaldið:
Enn skelfur í
Eyjafjallajökli
EYJAFJALLAJÖKULL Þar hafa fjölmargir
jarðskjálftar mælst síðustu vikuna.
SVÍÞJÓÐ Héraðsdómur Stokkhólms
hefur úrskurðað að sænskur
maður, Anders Hogstrom, skuli
framseldur til Póllands vegna
gruns um að hann hafi stuðlað
að því að frægu skilti Auschwitz-
fangabúðanna var stolið í lok árs.
BBC segir að dómari hafi gert
það að skilyrði framsals að Hog-
strom afplánaði hugsanlegan dóm
í Svíþjóð. Pólverjar féllust á það.
Hogstrom er 34 ára fyrrum
leiðtogi ný-nasista í Svíþjóð en
neitar sök í málinu. Hann mun lík-
lega áfrýja úrskurðinum. - kóþ
Á að svara til saka í Póllandi:
Auschwitz-Svíi
framseldur