Fréttablaðið - 16.03.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FÆÐINGAR Á ÍSLANDI árið 2009 voru 4.939 og fjöldi
barna var 5.014, þar af 4.993 lifandi fædd. Fjölgun hefur orðið
á fæðingum, þó hefur fæðingartíðni (fæðingar á 1.000 íbúa) á
landinu ekki aukist. landlaeknir.is.
„Einhverjar í hópnum tóku sig til og leigðu sal og hóuðu svo í fleiri sem þær vissu að höfðu einhvern tímann spilað eða hefðu áhuga. Reynsla var þó ekkert endilega eitthvert skilyrði,“ segir Þóra
María Guðjónsdóttir um tildrög þess að hópur kvenna á besta aldri tók sig saman fyrir nokkr-um árum og fór að æfa fótbolta einu sinni í viku.Í hópnum eru fjórtán konur sem hafa mismikla reynslu af fót-bolta. Þóra, sem starfar á starfs-mannasviði Landsvirkjunar, æfði líkt og margar fótbolta með Val á sínum tíma en lagði skóna áhilluna vegna i
langt skeið þegar hún fór að æfa með hópnum árið 2006. „Þær voru búnar að spila eitthvað saman þegar ég kom á mína fyrstu æfingu. Ég var pínulítið stíf en
það var hrikalega gaman að byrja aftur. Þetta var samt ekkert risa-stökk, ég hef alltaf stundað ein-hverja hreyfingu. Ég viðurkenni þó alveg að ég fékk harðsperrur eftir fyrstu æfingu.“ Spurð hvað fjölskyldunni finn-ist um fótboltadelluna, segist Þóra fá góðan stuðning. „Allir
heima hjá mér eru sáttir og börn-unum þykir þetta é
ir eru í einhverjum íþróttum eins og skokki.“
Þóra segir algengt að gamlir fótboltamenn hittist til að spila og taki auk þess þátt í skipulögðum viðburðum allt árið um kring. „Það eru alltaf einhver mót í gangi, eins og Pollamótið fyrir norðan. Yfir-leitt taka nokkur kvennalið þátt og þar hittast stundum gamlir sam- og mótherjar sem hafa ekki sést í mörg ár og endurnýja þannig kynni sín af vellinum. Konurnar mættu þó vera duglegri St ákarnir e
Sigur skiptir ekki öllu máli
Þóra María Guðmundsdóttir æfði knattspyrnu með Val á níunda áratugnum. Hún fór aftur að spila fyrir
nokkrum árum með hópi hressra kvenna á besta aldri og hefur sjaldan skemmt sér betur.
Þetta er alls ekki eins brjálæðislegt og þetta var, við erum vaxnar upp úr því,“ segir Þóra, sem er farin að æfa fótbolta af fullum
krafti í góðra vina hópi eftir nokkurt hlé.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tímapantanir 534 9600
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur www.heyrn.is
* Tal fólks í margmenni* Hjal smábarns * Marr í snjónum
Ertu að fara á mis við hljóð sem skipta miklu máli?
GRÍPTU TIL ÞINNA RÁÐALáttu sérmenntaðan heyrnarfræðing mæla heyrnina og fáðu faglega ráðgjöf.
Golfl ausnir Viltu koma þér í form fyrir golftímabilið?Nýtt einstaklingsmiðað námskeið, sérsniðið að golfíþróttinni.Hentar þeim sem vilja hámarka árangur sin íbetra form b
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
„Við þurfum að velta því fyrir okkur hvað það er sem Íslendingar verða að gera á næstu tíu til fimmtán árum,“ segir Jón Steindór Valdimarsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir nauðsynlegt að þjóðin framleiði sig út úr þeim vandræðum sem nú blasa við.
„Ég er á þeirri skoðun að það sé mjög skynsamlegt fyrir ungt fólkað velta þ í f
Að sögn Jóns Steindórs ríður nú á að horfa til framtíðar í þess-um efnum sem öðrum. „Við þurf-um að velta því fyrir okkur hvað það er sem Íslendingar verða að gera á næstu tíu til fimmtán árum. Um 2.000 manns bætast við hinn virka atvinnumarkað á hverju ári og í þessu mikla atvinnul iú
skilningi verður að taka við.“Jón Steindór segir að þjóðarbú-ið verði að afla tekna og nauðsyn-legt sé að þjóðin framleiði sig út úr þeim vandræðum sem nú blasa við. Framleiðsla á vörum sem þarfn-ist bæði hugvits og handverks séuþar efstar á bl ði Ö
tryggja að þegar næsta Marel eða sambærilegt fyrirtæki verður til eigum við fólk til að sinna þessum hlutum. Þess vegna held ég að líta verði á verk- og tækninám sem nám framtíðarinnar. Þar verða tækifin þ í þ
Tækifærin eru í verknámi
Smáralind 18. og 19. mars 2010
iðn- og verkgreina
Íslandsmót
Á fundi með nokkrum hagsmuna-aðilum var ákveðið að Þór Pálsson í Iðnskólanum í Hafnarfirði, Björn Ágúst Sigurjónsson frá Rafiðnað-arsambandinu og Ólafur Jónsson frá IÐUNNI fræðslusetri myndu sjá um framkvæmd keppninnar í ár. Þessi framkvæmdastjórn hafði samband við Smáralind í lok sept-ember og spurðist fyrir um að fá að halda keppnina í Vetrargarðin-um. Starfsfólk Smáralindar tók vel á móti stjórninni og var ákveðið að velja dagana 18. og 19. mars fyrir keppnina.
Undibúningur keppninnar
Þetta er í áttunda sinn sem keppnin fer fram og hefur hún aldrei verið umfangs-
meiri en nú.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞRIÐJUDAGUR
16. mars 2010 — 63. tölublað — 10. árgangur
ÞÓRA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
Endurnýjar kynni sín
af fótboltavellinum
• heilsa • gæludýr
Í MIÐJU BLAÐSINS
FÓLK Íslenska framleiðslufyr-
irtækið Icelandic Cowboys
Entertainment hefur ásamt
þýskum
framleiðend-
um nýlokið
við fram-
leiðslu á fimm
þátta röð
um Ísland.
Umsjónar-
maðurinn
heitir Willi
Weitzel og
er að sögn Heimis Jónassonar,
framleiðanda hjá Icelandic
Cowboys Entertainment, hinn
þýski Sveppi; margverðlaunuð
barnastjarna sem nýtur mikilla
vinsælda. „Willi segir ekki eitt
orð um Icesave eða fjármála-
krísur,“ segir Heimir en í þátt-
unum er áherslan á ævintýra-
eyjuna Ísland. Þættirnir voru
frumsýndir á sjónvarpsstöðv-
unum Kinderkanal og ARD og
verða sýndir á sjónvarpsstöðv-
um á þýska málsvæðinu.
- afb / sjá síðu 26
Ísland í þýskum þáttum:
Þýskur Sveppi
skoðar Ísland
WILLI WEITZEL
Vill ekki
verða forseti
Páll Óskar Hjálmtýs-
son er fertugur í dag.
TÍMAMÓT 16
Topshop á leiðinni
Útsendarar Topshop
í London koma á
sýningu E-label á
Reykjavík Fashion
Festival.
FÓLK 26
Frelsi eða fjötrar
„Margt bendir til þess að sitjandi
ríkisstjórn telji hagsmunum okkar
og velferð best borgið með því
að haft sé vit fyrir okkur”, skrifar
Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 14
SKÍÐUM OFAR Skíðafólk lætur fréttir af vorkomu sem vind um eyru þjóta á fleygiferð niður brekkur Hlíðarfjalls á Akureyri. Gott
færi var í fjallinu í gær; tólf skíðaleiðir og fimm lyftur voru opnar og sjö brekkur höfðu verið troðnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM
Sá sérstaki
snýr aftur
Jose Mourinho kemur
aftur á Stamford Bridge
í kvöld með lið
sitt Inter.
ÍÞRÓTTIR 22
ÍSLANDSMÓT IÐN- OG VERKGREINA
Keppnin sú umfangs-
mesta til þessa
Sérblað um Íslandsmót iðn- og verkgreina
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
RIGNING Í dag verða suðaustan
eða austan 5-13 m/s, hvassast
NV-til síðdegis. Væta S- og V-lands
og N- og A-lands síðdegis. Hiti 0-8
stig, mildast syðst.
VEÐUR 4
5
6
2
1
0
Heildarlisti 03 - 09.03.10
ORKUMÁL Fjármögnun Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) á mikilvægum
framkvæmdum á þessu ári geng-
ur treglega, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Skuldabréfaútboð
fyrirtækisins á innlendum mark-
aði hefur skilað innan við helmingi
þess fjár sem lagt var upp með að
safna. Stórir lífeyrissjóðir halda
að sér höndum. Lífeyrissjóðurinn
Gildi, sem er þriðji stærsti lífeyris-
sjóður landsins, er einn þeirra.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins og stjórnarformaður Gildis,
segir að þrennt liggi til grundvallar
ákvörðunar sjóðsins um að kaupa
ekki skuldabréf Orkuveitunnar.
„Fyrst var það spurningin um
endurfjármögnunarþörf fyrir-
tækisins. En aðallega var það sú
ákvörðun Orkuveitunnar að taka
arð út úr fyrirtækinu á þessu ári
og að fyrirtækið hefur ekki hækk-
að orkuverðið þrátt fyrir að öll til-
efni séu til þess.“ Vilhjálmur segir
að Gildi sé almennt að auka kröfur
sínar varðandi skuldabréfakaup en
vill ekki tjá sig frekar um málið.
Eigið fé Orkuveitunnar er innan
við fimmtán prósent og hefur hríð-
fallið úr 109 milljörðum árið 2007 í
tæpa 40 milljarða árið 2009. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
telur stjórn Gildis 800 milljóna
króna arðgreiðslur óskiljanlegar
í þessu ljósi.
Stjórn Orkuveitunnar samþykkti
í september að ráðast í skulda-
bréfaútboð. Fyrirtækið leitaði til
lífeyrissjóðanna um kaup á bréf-
unum en afraksturinn var hugsað-
ur til að fjármagna virkjanafram-
kvæmdir og til að klára fráveitur
á Vesturlandi, Álftanesi og Kjal-
arnesi sem hófust fyrir hrun. Alls
ætlaði fyrirtækið að afla tíu millj-
arða króna með þessum hætti.
Fimm milljarðar tæpir eru í hendi
og eftir því sem næst verður kom-
ist keyptu Lífeyrissjóður starfs-
manna ríksins og Lífeyrissjóður
verslunarmanna bréf fyrir um tólf-
hundruð milljónir hvor sjóður.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR,
vildi lítið tjá sig um málið. Hann
sagði útboðið enn opið og hvergi
útséð með niðurstöðu.
Hjörleifur sagði jafnframt að
fyrirtækið væri ágætlega fjár-
magnað næstu mánuðina og staða
útboðsins hefði engin áhrif á fram-
kvæmdaáætlanir fyrirtæksins á
næstunni. - shá
OR gengur illa að safna fé
Efasemdir um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur urðu til þess að einn stærsti lífeyrissjóður landsins tók ekki
þátt í skuldabréfaútboði fyrirtækisins. Enn vantar fimm milljarða til að ná takmarki útboðsins frá í haust.
HEILBRIGÐISMÁL Sjö ára gömul
stúlka innbyrti tífaldan skammt af
sýklalyfinu Furadantin um helgina
vegna mistaka í Árbæjarapóteki.
Málið hefur verið kært til Lyfja-
stofnunar.
Móðir stúlkunnar þakkar sínum
sæla fyrir að lyfið var ekki skað-
legra en raun ber vitni, en því var
ávísað vegna blöðrubólgu sem
stúlkan fékk í síðustu viku.
Rannveig Gunnarsdóttir, for-
stjóri Lyfjastofnunar, segir að
kannað verði hvað fór úrskeið-
is og síðan verði óskað eftir við-
brögðum frá lyfsala. Lyfjastofnun
fer ekki með réttindamál sjúklinga
en Rannveig segir að ef lyfsali sé
staðinn að ítrekuðum mistökum
geti hann verið sviptur leyfinu
eftir áminningu.
Kristján Steingrímsson, lyfja-
fræðingur í Árbæjarapóteki,
harmar mistökin og segir að allt
verði nú gert hjá versluninni svo
að slíkt endurtaki sig ekki.
- kóþ / sjá síðu 6.
Móðir kærir alvarleg mistök í Árbæjarapóteki til Lyfjastofnunar:
Barn fékk tífaldan lyfjaskammt