Fréttablaðið - 24.03.2010, Síða 8
8 24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
Hjólafestingar
Stilling hf. · Sími 520 8000
www.stilling.is · stilling@stilling.is
Aðalfundur
Samfylkingarinnar
í Reykjanesbæ
Samfylkingin í Reykjanesbæ heldur aðalfund
miðvikudaginn 24. mars kl. 20 í fyrirlestrarsal
Íþróttaakademíunnar við Krossmóa.
Dagskrá • Hefðbundin aðalfundarstörf
– Skýrsla stjórnar
– Ársreikningar félagsins
– Kosning stjórnar
• Framboðslisti Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar borinn upp
• Önnur mál
Stjórn Samfylkingarinnar
í Reykjanesbæ
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir
Þeir sem kunna að meta stuttar
boðleiðir og skjóta ákvarðanatöku
...eru fljótastir að flytja sig til okkar.
Ágústa Finnbogadóttir, viðskiptastjóri Ármúla
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FRÉTTASKÝRING
Hvað þýða nýju bandarísku lögin um
sjúkratryggingar?
BANDARÍKIN Nýsamþykkt lög um
sjúkratryggingar eru viðamestu
umbætur sem gerðar hafa verið á
bandarísku velferðarkerfi síðan rík-
istryggingakerfin Medicare og Med-
icaid voru sett á laggirnar í forseta-
tíð Lyndons B. Johnson árið 1965.
Um 32 milljónir Bandaríkjamanna
sem ekki njóta sjúkratryggingar fá
úr því bætt þegar kerfið tekur gildi
árið 2014.
Samþykkt laganna er dýrmætur
sigur fyrir Barack Obama Banda-
ríkjaforseta enda hafa umbætur á
heilbrigðiskerfinu verið ein af hans
helstu baráttu-
málum.
Magnús Sveinn
Helgason, sagn-
fræðingur og
sérfræðingur
í bandarískum
stjórnmálum,
bendir á að fyrir
þremur árum
hafi Obama sagt
að fyrsta kjör-
tímabils hans yrði minnst fyrir það
hvernig honum tækist til í þeim
efnum.
„Allir helstu stjórnmálaskýrendur
sem mark er takandi á eru sammála
um að honum hafi tekist ætlunar-
verkið. Þetta er mikilvægur áfanga-
sigur fyrir hann, ekki síst í ljósi þess
að fyrir aðeins tveimur mánuðum
var þetta talið búið spil; að repúblik-
önum hefði tekist að koma í veg fyrir
frumvarpið, sem hefði verið mikið
reiðarslag fyrir demókrata.“
Magnús Sveinn segir Obama nú
hafa fengið þann meðbyr sem hann
þarfnaðist til að ráðast í næstu mál.
„Næst á dagskrá verður að taka
námslánakerfið í gegn. Það er
nokkuð mikilvægt mál því í náms-
lánakerfinu í Bandaríkjunum fel-
ast stórkostlegar niðurgreiðslur til
einkabanka. Að taka námslánakerf-
ið í gegn er því fyrsta skrefið í átt að
umbótum á fjármálakerfinu. Í öðru
lagi eru það umhverfismálin. Þau
eru skemmra á veg komin en engu
síður komin á dagskrá.“
bergsteinn@frettabladid.is
Viðamiklar umbætur
Ný lög um sjúkratryggingar eru viðamestu umbætur á bandaríska velferðar-
kerfinu síðan á 7. áratugnum. Dýrmætur sigur fyrir Obama, segir sérfræðingur
um bandarísk stjórnmál. Fjármálakerfið og umhverfismál eru næst á dagskrá.
LÖGIN UNDIRRITUÐ Um 32 milljónir ótryggðra Bandaríkjamanna fá sjúkratryggingar samkvæmt nýju lögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hversu margir fá tryggingu? 32 milljónir Bandaríkja-
manna sem ekki eru tryggðir nú. Stefnt er að því að kerfið
taki gildi 2014. Um 95 prósent Bandaríkjamanna njóta þá
sjúkratrygginga, samanborið við 83 prósent nú.
Skyldutrygging Frá og með 2014 þurfa nær allir Banda-
ríkjamenn að vera með sjúkratryggingu, ellegar greiða
fésekt. Fátækir fá undanþágu frá sektum.
Umbætur á tryggingamarkaði Tryggingafyrirtækjum
verður meinað að setja aldursþak á endurgreiðslur vegna
líf- og sjúkdómatryggingar og neita að tryggja börn sem
greinst hafa með sjúkdóm. Börn njóta trygginga foreldra
sinna til 26 ára aldurs. Frá 2014 mega fyrirtæki ekki meina
fólki sem greinst hefur með sjúkdóm um tryggingar eða
rukka það um hærra gjald. Óheimilt verður að rukka konur
um hærra iðgjald. Ótryggðir sem veikjast njóta bráða-
birgðatryggingar til ársins 2014, þegar nýtt kerfi tekur gildi.
Tryggingar fyrir fátæka Ríkistryggingar fyrir fátæka (Med-
icaid) verða útvíkkaðar og ná til fólks með tekjur allt að 33
prósent yfir fátækramörkum (3,7 milljónir króna í árstekjur
fyrir fjögurra manna fjölskyldu). Barnlausir, fullveðja ein-
staklingar fá í fyrsta sinn sjúkratryggingu árið 2014.
Skattar Frá og með 2018 nema skattar vegna sjúkratrygg-
inga að minnsta kosti 1,3 milljónum króna á einstakling
á ári og 3,5 milljónum króna á fjögurra manna fjölskyldu.
Hærri skattur verður lagður á einstaklinga með yfir 25,5
milljónir í árslaun og hjón með yfir 32 milljónir króna í
árslaun.
Lyfseðilsskyld lyf Smám saman stoppar í gat í kerfi Med-
icare sem bitnar á eldri borgurum, sem þurfa að kaupa lyf
fyrir meira en 360 þúsund krónur á ári. Gatinu verður eytt
2020. Eldri borgarar munu enn greiða fjórðung af lyfja-
kostnaði, þar til stóráfallatrygging Medicare tekur gildi.
Fóstureyðingar Fóstureyðingar verða ekki niðurgreiddar
með skattfé heldur þarf að greiða sérstakt gjald fyrir slíka
tryggingu. Tryggingafyrirtækjum er ekki skylt að bjóða
tryggingar sem greiða niður fóstureyðingar.
Lykilatriði laga um sjúkratryggingar í Bandaríkjunum
MAGNÚS SVEINN
HELGASON