Fréttablaðið - 24.03.2010, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 13
Eins og einhver væri fokreiður niðri
Eldgosið í Eyjafjallajökli hljómar í návígi eins og einhver
sé mjög reiður ofan í jörðinni. Í þeim reiða heyrast ekki
hvellir og sprengingar heldur kraumar í honum taktvisst.
Lætin eru ótrúleg.
Svo segir Þorsteinn Gunnarsson vélsleðamaður sem
telur sig hafa staðið, ásamt þremur félögum sínum í
Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur, í um tvö hundruð metra
fjarlægð frá gosinu í gær.
„Þetta var stórfenglegt. Við fórum yfir jökulinn á
sleðunum í engu skyggni og snarbrjáluðu veðri. Við
vorum búnir að ákveða að snúa við en tókum samt
einn kílómetra í viðbót. Veðurspáin hafði gert ráð fyrir
góðu klukkutímagati um þetta leyti og það hafðist,“ segir
Þorsteinn. Þeir fundu ágætt skjól.
Þorsteinn og félagar hafi svo nálgast gosið varlega og
tekið sýni af öskufalli fyrir Raunvísindastofnun Háskól-
ans. Að öðru leyti hafi þeir haldið sér í fjarlægð.
Í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í
gær segir að fólk sem fari inn á gossvæði sé þar á eigin
ábyrgð og geti ekki endilega stólað á björgun. Ekki er því
beinlínis bannað að fara þangað.
Þorsteinn segist ekki ráðleggja neinum að fara á svæð-
ið nema þaulvönu fólki, sem fari vel undirbúið.
- kóþ
Das Auto.
Svona kemst þú 100 km á 3,3l og losar aðeins 87g af CO2
Nýr og flottur Volkswagen Polo hjálpar þér að spara og draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Við 100 km akstur losar Polo Bluemotion aðeins frá 87 grömmum af CO2 og
eyðir aðeins frá 3,3 lítrum af eldsneyti*. Komdu og prófaðu nýjan, stærri, betur búinn
Polo. Betri fyrir þig og betri fyrir umhverfið.
rnaðinn koma í ljós