Fréttablaðið - 24.03.2010, Side 13

Fréttablaðið - 24.03.2010, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 13 Eins og einhver væri fokreiður niðri Eldgosið í Eyjafjallajökli hljómar í návígi eins og einhver sé mjög reiður ofan í jörðinni. Í þeim reiða heyrast ekki hvellir og sprengingar heldur kraumar í honum taktvisst. Lætin eru ótrúleg. Svo segir Þorsteinn Gunnarsson vélsleðamaður sem telur sig hafa staðið, ásamt þremur félögum sínum í Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur, í um tvö hundruð metra fjarlægð frá gosinu í gær. „Þetta var stórfenglegt. Við fórum yfir jökulinn á sleðunum í engu skyggni og snarbrjáluðu veðri. Við vorum búnir að ákveða að snúa við en tókum samt einn kílómetra í viðbót. Veðurspáin hafði gert ráð fyrir góðu klukkutímagati um þetta leyti og það hafðist,“ segir Þorsteinn. Þeir fundu ágætt skjól. Þorsteinn og félagar hafi svo nálgast gosið varlega og tekið sýni af öskufalli fyrir Raunvísindastofnun Háskól- ans. Að öðru leyti hafi þeir haldið sér í fjarlægð. Í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í gær segir að fólk sem fari inn á gossvæði sé þar á eigin ábyrgð og geti ekki endilega stólað á björgun. Ekki er því beinlínis bannað að fara þangað. Þorsteinn segist ekki ráðleggja neinum að fara á svæð- ið nema þaulvönu fólki, sem fari vel undirbúið. - kóþ Das Auto. Svona kemst þú 100 km á 3,3l og losar aðeins 87g af CO2 Nýr og flottur Volkswagen Polo hjálpar þér að spara og draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda. Við 100 km akstur losar Polo Bluemotion aðeins frá 87 grömmum af CO2 og eyðir aðeins frá 3,3 lítrum af eldsneyti*. Komdu og prófaðu nýjan, stærri, betur búinn Polo. Betri fyrir þig og betri fyrir umhverfið. rnaðinn koma í ljós

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.