Fréttablaðið - 24.03.2010, Blaðsíða 28
24. MARS 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fermingargjafi r
Fullorðna fólkið þykist oft vita
hvað fermingarbörnum sé fyrir
bestu að fá í fermingargjöf.
Unga fólkið hefur hins vegar
ansi oft skýrar hugmyndir um
hvað það langar mest í eins og
kom vel í ljós þegar fimm ferm-
ingarbörn voru spurð álits.
FARTÖLVA OG NÝTT HERBERGI
Brynja Steinþórsdóttir fermist 1.
apríl í Dómkirkjunni. „Mig lang-
ar í fartölvu sem ég fæ frá mömmu
og pabba og svo fæ ég að flytja í
stærra herbergi,“ segir Brynja
glaðlega. „Svo langar mig í eyrna-
lokka, ipod og gítartösku,“ segir
hún en Brynja er að læra á gítar.
Hún myndi þannig ekki slá hend-
inni á móti rafmagnsgítar en gerir
sér grein fyrir að það sé harla ólík-
legt enda um dýran grip að ræða.
Peningur er líka vel þeginn. „Ég
myndi líklega spara einhvern hluta
og svo mun ég nota hluta hans
þegar ég fer til New York með
mömmu og pabba í sumar,“ segir
hún með tilhlökkun.
GJAFIR SEM ENDAST OG NÝTAST
Sólveig Stefánsdóttir fermist í Selj-
akirkju á sunnudaginn. Hún útbjó
fermingargjafalista til að auðvelda
ættingjum og öðrum gestum leik-
inn. „Mig langar í hluti sem end-
ast og maður getur notað,“ segir
Sólveig og nefnir dæmi af listan-
um. „Til dæmis úlpa, koddi, svefn-
poki, ferðataska, sléttujárn og
krullujárn.“ Frá foreldrum sínum
fær Sólveig körfuboltabúning en
hún æfir með körfuboltaliði ÍR.
Hún segir jafn gott að fá pening
og gjafir. Peningarnir nýtist til
framtíðar enda ætlar Sólveig að
leggja hann inn á sparnaðarreikn-
ing. „Ég er reyndar búin að fá leyfi
hjá mömmu til að kaupa reiðhjálm
fyrir hluta peninganna ef ég fæ
hann ekki í fermingargjöf,“ segir
hún kát í bragði. - sg
REIÐHJÓL EFST Á ÓSKALISTA
Akurnesingurinn Breki Harðar-
son er einn af fermingardrengjum
þessa vors. Spurður um vænting-
ar í sambandi við fermingargjafir
svarar hann: „Ja, mig vantar hjól
og líka fartölvu.“
Þeir sem þekkja til í heima-
Fartölvur, ferðir og trommusett efst á lista
Félag íslenskra hú›lækna, Geislavarnir ríkisins, Krabbameinsfélagi›,
Landlæknisembætti› og L‡›heilsustö› hvetja foreldra og forrá›amenn
fermingarbarna til a› fara a› tilmælum alfljó›astofnana um a› börn og
unglingar fari ekki í ljósabekki.
Brynja Steinþórsdóttir fær fartölvu frá foreldrum
sínum og nýtt herbergi að auki. FRÉTTABLAIÐ/STEFÁN
Mariu langar í ferð til Chile en hún á ættir að rekja
þangað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það verður veisla í Arnardal, félagsmiðstöð hér á
Akranesi,“ segir Breki og hlakkar mikið til fermingar-
dagsins. MYND/HÖRÐUR SIGURBJARNASON
Victor Alexander Guðjónsson er fermingarbarn í Fella- og Hólasókn. Hann reynir að tala um fyrir
móður sinni að fá að kaupa trommusett fyrir fermingarféð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sólveig Stefánsdóttir vill gjafir sem nýtast og endast. Til dæmis
reiðhjálm og körfuboltabúning. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
byggð Breka vita að Skaginn býður
upp á reiðhjólanotkun, svo flatlend-
ur sem hann er. Reyndar kveðst
drengurinn eiga hjól en segir það
bara alltof lítið. Býst hann við að
draumurinn rætist? „Ég held ég fái
fartölvuna en er ekki viss um hjól-
ið. Kannski fæ ég pening sem ég
get notað upp í kaup á því.“
Breki fermist borgaralegri
fermingu hjá Siðmennt 18. apríl,
sá eini á Akranesi, og athöfnin fer
fram í Háskólabíói. Tvær helgar
hafa farið í undirbúning, sú fyrri
í febrúar og sú seinni í þessum
mánuði. Þar hefur fermingargjaf-
ir ekki borið á góma að sögn Breka
og hann kveðst ekki hafa rætt um
þær við væntanleg fermingarsyst-
kini sín. En ætlar hann að halda
veislu í tilefni dagsins?
„Já, já,“ svarar hann og virðist
ögn hneykslaður á spurningunni.
„Það verður veisla í Arnardal, fé-
lagsmiðstöð hér á Akranesi.“ - gun
TAKTURINN SKIPTIR MÁLI
Victor Alexander Guðjónsson ferm-
ist í Fella- og Hólakirkju á skírdag.
Hann dreymir um alvöru trommu-
sett, eins og þetta gyllta sem fæst í
Hljóðfærahúsinu í Síðumúla.
„Ég fermist 1. apríl klukkan 11 og
hlakka mjög til dagsins, en kvíði líka
svolítið fyrir. Ég gæti kannski fipast
á trúarjátningunni og ritningarorð-
unum, en hef þó haft heilan vetur
til að undirbúa mig svo þetta ætti
nú að bjargast,“ segir Victor í gríni.
„Ég fermist til að staðfesta skírnina
og trúna á Krist, en svo verður líka
gaman að vera með hinum krökkun-
um í kirkjunni og síðar gestunum í
veislunni,“ segir Victor sem veit upp
á hár hvað hann vill í fermingargjöf.
„Draumagjöfin er nýtt og gott rúm
því gamla rúmið mitt er orðið hálf-
gerður ræfill. Svo koma trommur
eða peningar til að kaupa trommu-
sett og á eftir því sjónvarp, heimabí-
ókerfi og tölva, í þessari röð.“
Victor segir móður sína á móti
trommusetti inn á heimilið, en
hann sé ekki búinn að sjá fyrir end-
ann á þeirri umræðu. „Mamma
segir hávaða fylgja trommunum
en ég segi að það eigi bara við þá
sem kunni ekki á trommur eða að
tromma í takt. Mér þykja trommur
mest heillandi af hljóðfærum, enda
skiptir takturinn öllu máli. Ég hef
lengi beðið eftir tækifæri til að læra
á þær og eignast sjálfur,“ segir Vict-
or og bætir við að mamma sín vilji
helst að hann leggi fermingarpen-
inginn inn á bankabók. „Það kemur
líka til greina því á næsta ári get
ég tekið fyrsta prófið á létt mót-
orhjól og þá er ekki verra að eiga
fyrir einu slíku. Í það minnsta eru
þetta mínir peningar sem ég vil fá
að verja að vild.“ - þlg
FARTÖLVA OG FERÐ TIL CHILE
Efst á óskalista Mariu Christinu As-
cencio Rain sem fermist í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði 22. apríl er far-
tölva og ferð til Chile. Tölvuna lang-
ar hana að nota til að komast á netið,
fara á Facebook og vinna skólaverk-
efni en til Chile langar hana að fara
til að finna ræturnar.
„Pabbi minn er frá Chile og mig
langar að kynnast landi og þjóð.“
Faðir Maríu býr í Danmörku og
kemur til landsins ásamt fjölskyldu
sinni en auk þess er von á foreldr-
um fósturföður hennar sem er
Dani. „Við ætlum að vera með mat
frá Íslandi, Danmörku og Chile svo
þetta verður þjóðleg veisla.“ Um-
gjörðin verður ekki af verri endan-
um og dugar ekki minna til en vík-
ingahellirinn á Fjörukránni undir
herlegheitin.
En ætli það sé eitthvað fleira á
óskalistanum? „Mig langar svolítið
í einhvers konar græjur og kannski
spennubækur.“ Spurð hvort skart-
gripir komi til greina er svarið já
og nei. María er hins vegar þegar
búin að finna kjól og skó og er móð-
uramma hennar að hekla ermar.
En hvernig verður hárið? „Mér er
nokkuð sama um það og ætla að
leyfa mömmu að ráða.“ -ve