Fréttablaðið - 24.03.2010, Qupperneq 50
34 24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
IE-deild kvenna:
Hamar-Keflavík 93-81 (45-46)
Stig Hamars: Julia Demirer 39 (18 fráköst),
Koren Schram 19, Kristrún Sigurjónsdóttir 14 (10
stoðsendingar, 6 fráköst), Guðbjörg Sverrisdóttir
8 (8 fráköst, 5 stoðsendingar), Fanney Lind Guð
mundsdóttir 7, Sigrún Ámundadóttir 4, Hafrún
Hálfdánardóttir 2.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 28 (9
fráköst), Svava Ósk Stefánsdóttir 23, Kristi
Smith 11, Bryndís Guðmundsdóttir 7, Rannveig
Randversdóttir 6, Hrönn Þorgrímsdóttir 3, Marín
Rós Karlsdóttir 2, Pálína Gunnlaugsdóttir 1.
Hamar vann einvígið 3-2 og mætir KR í úrslitum
um Íslandsmeistaratitilinn.
N1-deild kvenna:
FH-Fram 23-27 (9-17)
Mörk FH: Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 8, Ragn
hildur Guðmundsdóttir 7, Birna Íris Helgadóttir
4, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 2, Margrét Ósk
Aronsdóttir 1, Hafdís Kristínardóttir 1.
Mörk Fram: Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 5, Karen
Knútsdóttir 5, Ásta Birna Gunnarsdóttir 5, Pavla
Nevarilova 5, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Hildur
Þorgeirsdóttir 2, Anna María Guðmundsdóttir
1, Anna Gunnlaug Friðriksdóttir 1, Eva Hrund
Harðardóttir 1.
Enska úrvalsdeildin:
West Ham-Wolves 1-3
0-1 Kevin Doyle (28.), 0-2 Ronald Zubar (58.),
0-3 Matthew Jarvis (61.), 1-3 Guillermo Franco
(90.+3)
Enska B-deildin:
Bristol City-Barnsley 5-3
Emil Hallfreðsson spilaði fyrstu 72 mínúturnar.
Ipswich-Plymouth 0-2
Kári Árnason gat ekki leikið með Plymouth vegna
meiðsla.
Þýska úrvalsdeildin:
Flensburg-Hamburg 25-29
Alexander Petersson skoraði 4 mörk.
Rhein Neckar Löwen-Dormagen 37-24
Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson
skoruðu báðir 2 mörk í leiknum.
ÚRSLIT
KKÍ veitti í gær verðlaun fyrir síðari hluta Iceland Express-deildar
karla. KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson var valinn besti leikmað-
urinn og Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, var
valinn besti þjálfarinn.
Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson var valinn
dugnaðarforkurinn og Sigmundur Már Herbertsson
besti dómarinn. Stuðningsmenn Snæfells voru
síðan valdir þeir bestu.
Einnig var valið úrvalslið síðari hlutans og
það skipa ásamt Brynjari þeir Pavel Ermon-
linskij KR, Hörður Axel Vilhjálmsson Keflavík,
Christopher Smith Fjölni og Hlynur Bærings-
son Snæfelli.
„Það hefur gengið frábærlega hjá mér
seinni hlutann og samstarfið við Pavel verið
frábært,“ sagði Brynjar Þór en hann hefur
blómstrað sérstaklega eftir að Pavel Ermolinskij kom
í lið KR í stað Semaj Inge. „Það er allt annað að
vera með evrópskan leikstjórnanda. Ég er feginn
að við fengum alvöru leikstjórnanda í stað einhvers
leikmanns sem á að vera að skora 30 stig í leik. Þá
hefði ég aldrei blómstrað og ekki sýnt mönnum
hvað ég get,“ sagði Brynjar Þór sem skoraði
tæplega 29 stig að meðaltali í leik í síðari
hlutanum.
„Ég hef aldrei spilað svona vel á Íslandi og
þetta er það langbesta sem ég hef sýnt. Nú
er bara að halda dampi og vera jafngóður í
úrslitakeppninni,“ segir Brynjar en KR mætir ÍR
í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. „Við erum
minnugir hvernig fór gegn ÍR fyrir tveim árum og
ætlum ekki að láta það endurtaka sig.“
KR-INGURINN BRYNJAR ÞÓR BJÖRNSSON: VALINN BESTUR Í SÍÐARI HLUTA ICELAND EXPRESS-DEILDAR KARLA
Mjög feginn að við skyldum fá Pavel í KR
> Miðnæturleikur við Mexíkó
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir HM-liði Mexíkó
í nótt í vináttulandsleik í Charlotte í Norður-Karól-
ínuríki Bandaríkjanna. Leikurinn verður í
beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport og
hefst útsending kl. 23.50 í kvöld. Búið var
að selja rúmlega 60.000 miða á leikinn
í gær en Bank of America-völlurinn
tekur 72.500 manns í sæti. Líkt og hjá
íslenska landsliðinu, er leikmannahópur
Mexíkó skipaður leikmönnum sem leika
í sínu heimalandi en íslenskur strákarnir
hituðu upp með því að vinna 2-0 sigur á
Færeyjum í Kórnum á sunnudaginn.
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son kvennalandsliðsþjálfari hefur
orðið að gera breytingu á lands-
liðshópi sínum fyrir leikina á móti
Serbíu og Króatíu í undankeppni
HM. Það er nefnilega orðið stað-
fest að Erna Björk Sigurðardótt-
ir sleit krossbönd í hné í fjórða
skiptið á ferlinum.
„Þetta er sorglegt því hún er
frábær karakter og frábær leik-
maður bæði í liði Breiðabliks og
hjá okkur í landsliðinu,“ segir Sig-
urður Ragnar. Erna Björk hafði
fyllt í skarð Guðrúnar Sóleyju
Gunnarsdóttur í miðvarðarstöð-
unni við hlið fyrirliðans Katrínar
Jónsdóttur. Guðrún hefur ekkert
getað verið með landsliðinu frá
því á EM í Finnlandi.
Sigurður Ragnar hefur kallað
á KR-inginn Mist Edvardsdóttur
inn í hópinn. Mist fær ekki mik-
inn tíma til að undirbúa sig því
liðið fer út í fyrramálið.
„Við vorum í því að finna
hafsent því Gunna er frá
um óákveðinn tíma. Við
lendum síðan nú í því að
missa annan hafsent
í Ernu og nú vona ég
bara að Kata spili sem
allra lengst,“ segir
Sigurður Ragnar sem
segir að mikilvægi
Katrínar Jónsdóttur
hafi líklega sjaldan
verið meira en einmitt í dag.
„Ferillinn hennar er að
styttast í annan endann en hún
er ennþá að spila mjög vel fyrir
okkur. það er frábært að hún sé
ekki hætt því þá værum við
í ennþá verri málum hvað
varðar hafsentastöðuna.
Við þurfum að finna tvo
hafsenta og hugsa vörn-
ina okkar svolítið upp
á nýtt,“ segir Sigurð-
ur Ragnar og hann
finnur mikið til með
Ernu Björk eins og
aðrir.
„ Þ að my ndu
allir skilja það ef
hún myndi vilja
hætta núna. Það
er ótrúlegt ef hún
myndi taka einhverja aðra
ákvörðun því
læknisráðið er
að þú átt að hætta
ef þú hefur slitið
tvisvar sinn-
um,“ segir Sigurður
Ragnar en Erna hefur nú slitið
tvisvar sinnum á hvoru hné.
„Henni var ráðlagt að hætta
þegar hún sleit í þriðja skiptið en
hún hélt áfram og vann sig inn í
A-landsliðið aftur. Það er ótrúleg-
ur árangur og ég hafði ekki heyrt
um neinn leikmann sem hafði slit-
ið þrisvar sinnum og verið samt
í A-landsliði,“ segir Sigurður og
segir að meiðslin hafi haft mikil
áhrif á íslenska hópinn.
„Því miður gerist þetta í enn
eitt skiptið og það er mjög sárt
fyrir hennar hönd. Það má segja
að allir séu í sjokki í landsliðinu
og líka í liði Breiðabliks sem er að
missa lykilleikmann. Það er ekki
til nein önnur sem stígur í hennar
spor þar og við munum rembast
við að fylla í fótsporin hennar.“
- óój
Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi Mist Edvardsdóttur í stað Ernu Sigurðardóttur sem sleit krossbönd í fjórða skiptið:
Ótrúlegt ef hún myndi ekki hætta núna
Á EM Í FINNLANDI Erna Björk
Sigurðardóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/
OSSI AHOLA
FÓTBOLTI Leyfisráð Knattspyrnu-
samband Íslands samþykkti á
fundi sínum í gær allar átta leyf-
isumsóknir félaganna sem var
gefinn vikufrestur til að ganga
frá útistandandi atriðum á fyrri
fundi ráðsins fyrir viku.
Sextán félögum var veitt þát-
tökuleyfi í síðustu viku en í gær
bættust hin átta félögin í hópinn,
þrjú félög úr 1. deild karla og
fimm félög úr Pepsi-deild karla.
Þremur félögum, Keflavík,
Selfoss og Fjarðabyggð, er veitt
þátttökuleyfi með ákveðnum
fyrirvörum um mannvirkjamál.
Keflavík þarf meðal annars að
setja upp 500 sæta áhorfendaað-
stöðu við Njarðvíkurvöll þar sem
liðið spilar á meðan það er verið
að leggja nýtt gras á Keflavík-
urvöll.
Tvö félög, Fjölnir og Þróttur,
verða sektuð vegna dráttar á skil-
um á fjárhagslegum gögnum og
eitt félag, Haukar, fær áminningu
þar sem krafa um aðstoðarþjálf-
ara meistaraflokks og menntun
hans er ekki uppfyllt. Breiðablik
og ÍBV var veitt þátttökuleyfi án
athugasemda. - óój
Efstu deildir karla í fótbolta:
Öll félög komin
með leyfi
SEKT Fjölnir og Þróttur skiluðu fjárhags-
gögnum of seint. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Hamarskonur brutu
blað í sögu Hveragerðis þegar þær
tryggðu sér sæti í lokaúrslitum
Iceland Express-deildar kvenna
í gærkvöldi eftir 93-81 sigur á
Keflavík í hreinum úrslitaleik lið-
anna í Hveragerði. Hamar fór á
útivöll í stöðunni 1-2 fyrir Keflavík
en kom til baka og vann tvo síðustu
leikina í einvíginu. Hamar mætir
KR í lokaúrslitunum og fyrsti leik-
urinn er á laugardaginn.
„Við erum stolt af því að vera
komin í úrslitin í fyrsta skipt-
ið í sögu Hamars,“ sagði Ágúst
Björgvinsson, þjálfari Hamars.
„Það var mjög erfitt að tapa þess-
um þriðja leik þar sem þær vinna
okkur í framlengingu, við vorum
að spila vel í sókninni en ekki nógu
vel varnarlega. Þær vinna okkur á
flautukörfu og við notuðum þetta
tap til að undirbúa okkur. Stelpurn-
ar komu dýrvitlausar í leik fjög-
ur og mættu líka mjög tilbúnar í
þennan leik,“ sagði Ágúst.
Hamarsliðið virtist vera að taka
upp þráðinn frá því í fjórða leikn-
um þegar liðið komst í 11-2 og 19-8
í upphafi leiks þar sem liðið leitaði
hvað eftir annað til Juliu Demir-
er sem skoraði fjórtán stig í fyrsta
leikhluta.
Birna Valgarðsdóttir kveikti í
Keflavíkurliðinu með baráttu sinni
og áræðni, átti þátt í fyrstu fjór-
um körfum liðsins og skoraði 6 stig
þegar Keflavík breytti stöðunni úr
19-8 í 19-18 á stuttum kafla.
Hamar var 23-20 yfir eftir fyrsta
leikhlutann og komst í 30-23 í upp-
hafi annars en þá kom annar góður
sprettur gestanna þar sem Birna
fékk góða hjálp frá Svövu Ósk Stef-
ánsdóttur sem skoraði sex stig
þegar Keflavík breytti stöðunni
úr 33-29 í 35-37. Liðin skiptust á
að hafa forustuna út hálfleikinn en
Keflavík var 46-45 yfir í hálfleik.
Birna Valgarðsdóttir skoraði 20
stig í fyrri hálfleik og var hrein-
lega óstöðvandi.
Líkt og í byrjun leiks byrjaði
Hamarsliðið seinni hálfleikinn
af krafti og var komið í 54-48 og
64-54 áður en sex stig frá Svövu
Ósk Stefánsdóttur á 15 sekúndum
minnkuðu munninn aftur niður í
fjögur stig. Julia Demirer átti hins
vegar lokaorð leikhlutans þegar
hún kom Hamar í 66-60 með sínu
ellefta og tólfta stigi í leikhlutan-
um og var því komin með 30 stig.
Hamarsliðið hélt frumkvæðinu
út leikinn og síðasta von gestanna
fór þegar Birna Valgarðsdóttir
fékk sína fimmtu villu en Birna
gaf allt í þennan leik og átti sann-
kallaðan stórleik. Hamar vann að
lokum með tólf stiga mun, 93-81.
Julia Demirer átti enn einn stór-
leikinn og var með 39 stig og 18
fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir
spilaði mjög vel fyrir liðið og þá
átti Koren Schram sinn besta leik
í einvíginu, því hún skoraði ekki
aðeins 19 stig heldur hélt aftur af
Kristi Smith sem átti mjög erfitt
uppdráttar í leiknum.
Birna Valgarðsdóttir átti frá-
bæran leik og Svava Ósk Stefáns-
dóttir svaraði kallinu því hún kom
í fyrsta sinn inn í byrjunarliðið og
skoraði 23 stig. Aðrir lykilmenn
liðsins voru langt frá sínu besta og
því verður Keflavík í fyrsta sinn í
sögunni ekki með í tveimur lokaúr-
slitum í röð í kvennakörfunni.
ooj@frettabladid.is
Hamarskonur í úrslitin
Hamar vann 93-81 sigur á Keflavík í oddaleik liðanna í undanúrslitum Iceland
Express-deildar kvenna í Hveragerði í gærkvöldi. Keflavíkurliðið réði ekki við
Juliu Demirer sem var með 39 stig og 18 fráköst í leiknum.
NÁLÆGT ÞRENNUNNI Kristrún Sigurjónsdóttir lék vel með Hamarsliðinu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Gianfranco Zola, stjóri
West Ham, stjórnaði líklega
sínum síðasta leik hjá félaginu
þegar liðið tapaði 1-3 á móti Wol-
ves í sex stiga leik í fallbaráttu
ensku úrvalsdeildarinnar í gær.
Þetta var fimmta tap West Ham
í röð.
Kevin Doyle kom Wolves í 1-0 á
28. mínútu leiksins og þannig var
staðan í hálfleik. Ronald Zubar
og Matthew Jarvis gerðu síðan út
um vonir West Ham með tveim-
ur mörkum með þriggja mín-
útna millibili á 58. og 61. mínútu.
Guillermo Franco minnkaði mun-
inn fyrir West Ham
West Ham situr nú í síðasta
örugga sætinu í deildinni, þremur
stigum á undan Burnley og Hull
sem koma í næstu sætum. Hull
á leik til góða og getur því náð
West Ham að stigum. - óój
Úlfarnir unnu á Upton Park:
Fimmta tap
West Ham í röð
SÍÐASTI LEIKURINN? Gianfranco Zola,
stjóri West Ham. MYND/GETTY IMAGES