Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 56

Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 56
40 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is Þótt enn sé tæpur mánuður þangað til sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíð- legur í kulda og trekki eru menn þegar farnir að setja upp sólgler- augun og bíða eftir sumarsmellunum. Poppvélar bíóhús- anna munu malla þegar sumarsmell- ir Hollywood skella á kvikmyndahúsum borg- arinnar. Þótt ekkert Avat- ar-óveður sé í nánd eru þó nokkrar kvikmyndir sem gera tilkall til konungsdóms í miðasölu. Barnahetjur Börnin verða dugleg við að teyma foreldrana í bíó þetta sumarið því Pixar-fyrirtækið dustar rykið af tveimur þekktustu teiknimynda- persónum sögunnnar, Bósa Ljósár og Vidda kúreka. Að þessu sinni ákveður góðhjartaði eigandinn þeirra, Addi, að losa sig við æsku- vinina og gefa þau á leikskóla. Sér- lunduðu leikföngin sætta sig auð- vitað ekki við að vera lamin og kreist á hverjum degi og undirbúa magnaðan flótta. Önnur og ógn- vænlegri persóna undirbýr einnig endurkomu sína, sjálfur Skrekkur, en fjórða myndin um græna tröllið er sögð vera sú síðasta. Hrói og Prinsinn Eiginkonur ættu ekki að láta sér bregða þótt karlpeningurinn grafi upp gamla trésverðið og skjöldinn og fari að æfa gamla takta úti í garði, því sverð og sandalar eru meginþemað í sumar. Fyrsta ber að nefna Clash of Titans, endur- gerð frá 1981, þar sem Avatar- stjarnan Sam Worthington leikur Perseus, Sam Neil Seif og Ralph Fiennes er Hades. Þær tvær myndir sem marg- ir spá að eigi eftir að berjast um hylli sverðelskandi áhorfenda eru hins vegar Robin Hood eftir Ridley Scott með Russell Crowe í hlutverki hjartgóða þjófsins og svo Prince of Persia með Gísla „okkar“ Garðarssyni í stóru hlut- verki. Ef þær eru ekki meiri hátt- ar klúður hala þær inn nokkrum krónum. Testesterón og stelpumyndir En það er auðvitað ekki bara drepið með sverðum. Því sjálf- ur Iron Man mætir aftur til leiks með Robert Downey innanborðs. Heill her af stjörnum prýðir framhaldsmyndina en Mickey Rourke er skúrkurinn, Testester- ónið fær síðan óheft flæði í kvik- myndum á borð við The Expanda- bles þar sem Sylvester Stallone lætur ljós sitt skína og A-Team en hún er gerð eftir samnefndum sjónvarpsþáttum. Kvenkynið lætur þetta yfir sig ganga gegn loforðum um að unn- ustinn bjóði þeim annaðhvort á Sex and the City 2 þar sem sjón- varpspersónurnar frægu glíma við fylgifiska einkalífsins eða The Twilight Saga: Eclipse þar sem skjáþokki Robert Pattin- son bræðir unglingsstúlkur og siðvandar húsfreyjur. Vafalítið verður Knight and Date með þeim Tom Cruise og Cameron Diaz sú mynd sem pör og skötuhjú geta sanmælst um enda rómantísk hasarmynd fyrir bæði kyn. freyrgigja@frettabladid.is SUMAR SANDALA OG SVERÐA > SMITH UNDIR FELD Will Smith, peningamaskínan frá Hollywood, liggur nú undir feld og reynir að taka ákvörð- un um hvort hann eigi að leika í MIB 3 ( Men in Black 3) eða ævintýramyndinni The City That Sailed. Á meðan bíða framleiðendur og leikstjórar með öndina í hálsinum. Hún gæti ekki verið fjölbreyttari flóran af kvikmyndum sem verða frumsýndar um helgina í kvikmyndahúsum borgar- innar. Fyrsta ber að nefna kvikmyndina Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdóttur með Vesturports-leikhópnum í helstu hlutverkum auk þýska stórstirnisins Daniel Bruhl. Myndin segir frá upp- gjafarlistamanninum sem snýr aftur heim frá Þýskalandi eftir fremur tíð- indalaus ár og kemst að því að allt er breytt á gamla, góða Íslandi. Auk Vesturports-hópsins og Daniels leika Sigurður Sigurjónsson, Kristbjörg Kjeld og Þröstur Leó Gunnarsson stór hlutverk í myndinni. George Clooney fer fyrir fríðum hópi leikara í kvikmyndinni The Men Who Stare at Goats. Hún segir frá blaða- manni einum sem kemst á snoðir um að sérsveitarhermenn í Írak hafi reynt yfirnáttúrulegar aðferðir í stríðinu, meðal annars hugarstjórnun og annað slíkt. Meðal annarra leikara má nefna nýbakaðan Óskarsverðlaunahafa, Jeff Bridges. Rómantíska gamanmyndin When in Rome skartar Kirsten Bell og Josh Duhamel í aðalhlutverkum en hún segir frá starfsmanni Guggenheim- safnsins sem trúir ekki á sanna ást. Fjórða myndin sem verður síðan frumsýnd er náttúrulífsmyndin Earth þar sem BBC, Discovery og Disney leiða saman hesta sína í ferðalagi um lífríki jarðar. Aðalpersónur myndarinn- ar eru hvalir, ísbirnir og fílar en þulur er James Earl Jones, sjálfur Svarthöfði. - fgg Fræðsla, Róm og íslenskt hjólhýsahyski KÓNGAVEGUR FRUMSÝNDUR Kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur, Kóngavegur, verður frumsýnd um helgina. Vesturport og Daniel Bruhl leika aðalhlutverkin. ERU EKKERT AÐ LEIKA Ewan McGregor ætlar ekki að leika fyrir Madonnu og Freida Pinto er ekki næsta Bond- stúlkan. Robert Pattinson, aðalleikarinn úr vampírumyndunum Twilight, var innilokaður á tökustað kvik- myndarinnar Remember Me í New York. Pattinson bjóst við náðugum dögum í stóra eplinu en kvenkyns aðdáendur hans gerðu honum lífið leitt. „Ég veit ekki af hverju ég bjóst ekki við þessu. Þetta átti bara að vera lítil mynd en stundum var áreitið frá ljósmyndurum og aðdáendum of mikið,“ sagði Pattinson sem gerir í því að reyna fara huldu höfði til að sleppa við slíka ásókn. Innilokaður á tökustað ROBERT PATTINSON Komst í hann krappan. SMELLVÆNT SUMAR Bósi Ljósár og Viddi snúa aftur í þriðju Leikfangasögunni og hún verður meira að segja í þrívídd. Robert Downey birtist aftur sem Tony Stark í Iron Man og Gísli Örn Garðarsson leikur stórt hlutverk í hugsanlegum smelli sumarsins, Prince of Persia. Eru ekki með Fjölmiðlafulltrúi skoska leik- arans Ewan McGregor hefur vísað því á bug að hann ætli að leika í næstu kvikmynd Madonnu. Fjölmiðlar birtu fréttir af því að Ewan hygð- ist leika aðalhlutverkið í kvik- mynd sem Madonna hefur hug á að gera um breska konunginn Játvarð áttunda, sem afsalaði sér konungsdæminu til að gift- ast hinni fráskildu Wallis Simp- son árið 1936. Fjölmiðlafulltrú- inn vísaði þessi öllu á bug og sagði Ewan ekki vera að íhuga þetta hlut- verk. McGregor er ekki fyrsta stjarnan sem þarf að lýsa því yfir að hún sé ekki að leika í einhverri kvikmynd. Fjölmiðl- ar greindu frá því að Freida Pinto, stjarnan úr Slumdog Millionaire, hefði skrifað undir samning við aðstandendur nýj- ustu Bond-myndarinnar um að leika Bond-gellu. Þetta virtist allt saman gott og blessað þar til fjölmiðlafulltrúi leikkon- unnar sendi frá sér yfirlýsingu um að Pinto hefði ekki skrif- að undir neinn samning sem fæli í sér leik í næstu my nd um leyniþjón- ustumann- Aukin og endurbætt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.