Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 66

Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 66
50 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR KÖRFUBOLTI Úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem deildarmeistarar KR taka á móti ÍR í DHL-höllinni og Keflavík fær Tindastól í heimsókn í Toyota-höll- ina. Á morgun fara síðan hin tvö einvígin af stað þar sem Grinda- vík tekur á móti Snæfelli og Stjarn- an fær Njarðvíkinga í heimsókn í Garðabæ. Fréttablaðið fékk Bárð Eyþórs- son, þjálfara Fjölnis til að spá í ein- vígi átta liða úrslitanna. Bárður er eins og margir aðrir spenntir fyrir úrslitakeppninni sem hefur allt til þess að bera að verða fyrsta flokks þetta vorið. „Ég held að þessi úrslitakeppni í ár verði sú jafnasta og flottasta sem hefur verið hingað til. Mér fannst í mörgum leikjum, sem maður spilaði sjálfur í eða horfði á, að það væri kominn titringur í menn. Þegar maður talaði við leik- menn og þjálfara þá var kominn mjög snemma úrslita keppnisbragur á þetta,“ segir Bárður. KR-ÍR 2-0 „ÍR-ingar eru með hörku mann- skap en maður veit aldrei hvern- ig þeir mæta í leikina. Það er búið að vera þeirra helsta vandamál í vetur. Þeir eru klárlega með lið sem getur strítt KR-ingunum veru- lega,“ segir Bárður. „Ef KR-ingar koma tilbúnir í leikina þá eiga þeir að slá þá út 2- 0,“ segir Bárður um einvígi KR og ÍR. Keflavík-Tindastóll 2-0 „Ég held að Keflvíkingarnir séu alltof sterkir fyrir Tindastól. Hörð- ur Axel er búinn að spila mjög vel í vetur og Keflvíkingar eru farn- ir að spila af meiri hörku eins og sást í seinni hálfleik á móti KR,“ segir Bárður. „Þeir eru farnir að sýna öðru hvoru viðhorfið sem var hjá þeim í gamla daga. Ég held bara að Keflavíkingar séu of sterkir, þeir vinna þá tiltölulega auðveldlega á heimavelli en það gæti orðið erf- iðara fyrir norðan,“ segir Bárður um einvígi Keflavíkur og Tinda- stóls. Hann hefur trú á sínum gömlu lærisveinum í Snæfelli á móti Grindavík. Grindavík-Snæfell 0-2 „Ég held að þetta fari 2-0 fyrir Snæfell. Þeir eru með sterkari hóp og þeir eru með Hlyn Bæringsson. Það er komið aðeins meira jafn- vægi í leik Grindvíkinga eftir að Darrel Flake kom en ég held að liðsheildin sé sterkari hjá Snæfelli,“ segir Bárður. Snæfellingar hafa ekki verið neitt svakalega sterkir varnarlega í vetur en ég held að hefðin fyrir því að spila vörn í Hólminum sé fyrir hendi og þeir lagi hana fyrir úrslitakeppnina. Báðir leikirnir vinnist samt með innan við fimm stigum,“ segir Bárður um einvígi Grindavíkur og Snæfells. Stjarnan-Njarðvík 1-2 Bárður átti erfiðast með að spá fyrir um einvígi Stjörnunnar og Njarðvíkur. „Þetta verður rosa- legt einvígi og þessi rimma fer 2-1 en ég á erfitt með að segja hverjir fara áfram,“ segir Bárður. „Ef ég á að hallast á annað hvort liðið þá er það frekar á það að Njarðvík vinni þetta 2-1, þar sem úrslitakeppnin er tíminn hans Nicks Bradford. Hann er flottur gaur við þessar aðstæður, nýtur sín vel og virðist ná mönnum upp á tærnar,“ segir Bárður, sem telur að Njarðvíkingar taki nú við sér. „Njarðvíkingar tapa þessu ef þeir halda áfram að spila eins og þeir hafa verið að gera upp á síð- kastið en ég hef ekki trú á því að þeir geri það. Siggi kemur þeim í gírinn og svo eru þeir með Brad- ford og heilmikla reynslu. Ég hef trú á því að Njarðvíkingarnir fari í gang og fari þeir í gang þá geta þeir farið alla leið. Þeir þurfa samt að fara í gang,“ segir Bárður. Hér til hliðar má síðan sjá spá þjálfara Hamars (Ágústs Björg- vinssonar) og Breiðabliks (Sæv- alds Bjarnasonar) í samanburði við spá Bárðar. ooj@frettabladid.is Sú jafnasta og flottasta Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, spáði í einvígin í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta. Veislan hefst í kvöld með tveimur leikjum. HANS TÍMI KOMINN Bárður Eyþórsson segir að úrslitakeppnin sé tíminn hans Nicks Bradford og það gæti hjálpað Njarðvíkingum að komast aftur í gang. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÓGLEYMANLEGUR ODDALEIKUR Hápunktur frábærar úrslitakeppni í fyrra var oddaleikur KR og Grindavíkur um Íslandsmeistaratit- ilinn. Það stefnir í ekki síðri úrslitakeppni í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPÁ ÞJÁLFARANNA Hér fyrir neðan má sjá hvernig Bárð- ur Eyþórsson, þjálfari Fjölnis (9. sæti), Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars (10. sæti,) og Sævaldur Bjarnason, þjálfari Breiðabliks (11. sæti) spá því hvernig átta liða úrslitin fara. Þeirra lið voru næst því að komast í úrslita- keppnina í ár. Einvígi átta liða úrslitanna 2010 KR-ÍR KR áfram Bárður Eyþórsson 2-0 Ágúst Björgvinsson 2-0 Sævaldur Bjarnason 2-0 Keflavík-Tindastóll Keflavík áfram Bárður Eyþórsson 2-0 Ágúst Björgvinsson 2-0 Sævaldur Bjarnason 2-0 Grindavík-Snæfell Snæfell áfram Bárður Eyþórsson 0-2 Ágúst Björgvinsson 2-1 Sævaldur Bjarnason 1-2 Stjarnan-Njarðvík Stjarnan áfram Bárður Eyþórsson 1-2 Ágúst Björgvinsson 2-1 Sævaldur Bjarnason 2-1 N1 Deildin KARLAR Fimmtudagur Höllin Kaplakriki Ásvellir Mýrin Akureyri - Fram FH - Grótta Haukar - Valur Stjarnan - HK 19:00 19:30 19:30 19:30 2009 - 2010 Aqua 25 innimálning á böð 4 lítrar 3.995 Deka Pro 4. Loft og veggjamálning. 10 lítrar 4.990 kr.Deka Pro 10 Innimálning. 10 lítrar 5.895 kr. Trappa, 4 þrep 4.995 Allir sem taka þátt fá páskaegg frá Nóa Síríus. Myndavél og páskaegg í verðlaun fyrir skemmtilegustu skreytinguna. Skilafrestur til og með 29. mars. Sjá nánar á www.a4.is Komdu og kíktu á lifandi páskaunga hjá okkur á Smáratorginu. Smáratorgi 1, Kópavogi + Sími: 580-0000 + sala@a4.is + www.a4.is Gleráreyrum 2, Akureyri + Sími: 580-0060 + akureyri@a4.is + www.a4.is Páskaföndurkeppni í A4 Auglýsingasími Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.