Fréttablaðið - 26.03.2010, Blaðsíða 68
24 26. mars 2010 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ORÐUÐ VIÐ KÚREKAMYND
Reese Witherspoon og Tom Cruise eiga í
viðræðum við Sony um að leika aðalhlut-
verkin í kúrekamyndinni Paper Wings.
Um er að ræða rómantíska mynd þar
sem Tom á að leika ródeómeistara
sem fellur fyrir ungri kántrísöngkonu
sem Reese á að leika. Það er fyrirtæki
Wills Smith sem vinnur að framleiðslu
myndarinnar.
Valdís Óskarsdóttir frum-
sýndi kvikmyndina Kónga-
veg í stóra sal Háskólabíós
á miðvikudagskvöld. Vel
var mætt á frumsýninguna
og var ekki annað að sjá
en gestir hefðu gaman af
myndinni.
Kóngavegur er önnur mynd Val-
dísar Óskarsdóttur. Líkt og í hinni
fyrri, Sveitabrúðkaupi, er leik-
hópurinn að stórum hluta skip-
aður krökkunum úr Vesturporti.
Stórleikkonan Kristbjörg Kjeld er
einnig meðal leikenda og hún lét
sig ekki vanta á frumsýninguna.
Aðalleikararnir tveir, Gísli Örn
Garðarsson og Daniel Brühl, voru
þó fjarri góðu gamni.
Kóngavegi Valdís-
ar Óskars fagnað
GLEÐISTUND Valdís Óskarsdóttir leikstjóri og stórleikkonan Kristbjörg Kjeld voru
glaðar fyrir frumsýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ólafur Darri Ólafsson og Ingvar Sigurðs-
son sátu í Lödu fyrir utan Háskólabíó
áður en frumsýningin hófst.
Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi
og Ólafur Haukur Símonarson rithöfund-
ur tóku tal saman.
Framleiðendurnir Davíð og Árni tóku á
móti gestum ásamt Bergsteini Björgúlfs-
syni kvikmyndatökumanni.
Ólafur Gunnarsson, Ásdís Thoroddsen
og Gunnur Martinsdóttir Schluter létu
sig ekki vanta.
Ásgrímur Sverrisson tók dóttur sína,
Ernu Sóleyju, með í bíó.
Birkir Kristinsson og Ragnhildur Gísla-
dóttir ákváðu að kíkja út og sýna sig og
sjá aðra.
FERÐALAG
ER ÞROSKANDI
FERMINGARGJÖF
GJAFABRÉFIÐ GILDIR
SEM GREIÐSLA UPP
Í FLUGFAR MEÐ
ICELANDAIR
ÞÚ VELUR UPPHÆÐINA + Pantaðu fermingargjöfina á icelandair.is
Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
www.forlagid.is
FRÓÐLEIKUR FYRIR ALLA