Fréttablaðið - 27.03.2010, Page 1

Fréttablaðið - 27.03.2010, Page 1
27. mars 2010 — 73. tölublað — 10. árgangur Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sprotaiðnaður ófriðar- svæða í heiminum. HERFYRIRTÆKI 22 TÓNLIST 30 Haraldur Sigurðsson hefur upplifað draum allra eldfjallafræðinga síðustu dagana. ELDGOS 28 TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG DÓMSMÁL Dæmi eru um að sakborn- ingar í alvarlegum brotamálum hafi hótað túlkum í dómsal og hrætt þá svo að þeir hafa hætt í miðjum rétt- arhöldum. Ákæruvaldið hefur þá þurft að bregða skjótt við og útvega nýja túlka. Embætti ríkissaksóknara sótti nýverið mál þar sem túlkurinn varð mjög hræddur og kvaðst aldrei ætla að koma aftur. Annar túlkur var fenginn til að hlýða á skýrslutöku, til þess að úr því fengist skorið hvað fram hefði farið. Í ljós kom að sak- borningurinn hafði hótað túlknum lífláti. Sækja hefur þurft dómtúlka til annarra landa, því þeir sem eru búsettir hér þora hreinlega ekki að taka starfann að sér. Þetta kemur fram í viðtali Frétta- blaðsins við Valtý Sigurðsson ríkis- saksóknara, Kolbrúnu Sævarsdóttur saksóknara og Sigríði Elsu Kjartans- dóttur saksóknara. Þau ræða í blað- inu í dag um breytingar sem orðið hafa á rannsóknarferli brotamála og störfum ákæruvaldsins með til- komu skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi. „Það eru ekki til löggiltir túlk- ar í austurevrópskum málum hér á landi,“ segir Kolbrún. „Oftast fáum við fólk sem gerir þetta utan sinnar hefðbundnu vinnu við eitthvað allt annað. Eða þá að við verðum að fá túlka að utan. Oft er þetta fólk skít- hrætt.“ Í sumum grófum árásarmálum hafa engir túlkar fengist og eitt til- vik nefna saksóknararnir þar sem flytja þurfti inn túlka frá London. Í því máli var um að ræða árás manna á samlanda sína á Hverfisgötu. Í mannslátsmálinu í sumarbú- staðnum í Grímsnesi þurfti að skipta um túlk og fá nýjan frá útlöndum. „Í því tilviki var túlkurinn búinn að fá nóg, auk þess sem sakborning- arnir kröfðust þess að skipt yrði um túlk,“ útskýrir Valtýr. - jss / sjá síðu 12 Líflátshótanir hræða túlka úr réttarhöldum Sakborningar í alvarlegum brotamálum hafa orðið uppvísir að því að hóta túlkum í dómsal, jafnvel lífláti. Fyrir vikið hefur ákæruvaldinu reynst erfitt að útvega túlka og í sumum tilvikum hefur orðið að sækja þá til útlanda. Veljum nýtt framboð um í vor Borgarmálafélag F-lista Heiðarleika Nýtt Nova blað fylgir blaðinu í dag! ÆPANDI LITIR OG GRAFÍSK MYNSTUR STÍLL 50 Ekkert annað í boði en að vera hress Felix Bergsson og Hlédís Sveins- dóttir á rökstólum FÓLK 34 NÁTTÚRA Í gærkvöldi var gríðar- leg stemning í Fljótshlíð þegar um þúsund manns lögðu leið sína þangað að skoða eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Þeir sem hætta sér í návígi við gosið eru hvattir til að vera vel búnir. - gb / sjá síðu 4 Eldgosið á Fimmvörðuhálsi: Tilkomumikið en varasamt Bubbabyltingin 30 ára. menning[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] mars 2010 Tryggvagötunni, steinsnar frá gatna-mótum Geirsgötu, stend-ur hátt steinhús byggt eftir skipulaginu frá 1927, neðsta hæðin hefur undan-farna áratugi hýst margs konar starfsemi en lengst af var þetta vörugeymsla með gamla laginu: stórum hleðsluhurðum, gildum burðarsúlum og rými sem er bæði hátt til lofts og teyg-ir sig í suður undir sjávarbakkann sem Vesturgatan byggðist á. Vestan við voru verslunarhús og pakkhús Geirs gamla Zoëga, austan megin var þorp Hlíðarhúsabæjanna. Hér var kjarni gömlu Reykjavíkur. Hingað hefur Börkur Arnarson og hans fólk flutt i8 Gallerí af Klapp-arstígnum þar sem það hefur verið í nær áratug. Átta sinnum átta„Við vorum með geymslu og litla skrifstofu hérna í rúmt ár. Við vorum búin að vera að hugsa okkur til hreyfings í nær tvö ár. Komum hingað með fólk að skoða verk sem ekki var pláss fyrir á Klappar-stígnum og þegar hárgreiðslustof-an Slippurinn, sem var í helmingn-um af húsnæðinu, fann sér annan stað gátum við farið að láta teikna þetta rými upp eftir okkar þörfum. Sumir verða hissa þegar þeir sjá hvað galleríið er hlutfallslega lítið miðað við allt rýmið, en skipulag-ið er rétt eins og vinnuþörfin er: galleríplássið sjálft er átta sinnum átta metrar sem okkur fannst mjög fallegt. Ásmundur og Steinþór í Kurt og pí – sem eru ekki bara flin-kir arkitektar heldur skilja hvað við erum að gera og hvað við erum að höndla með – eru miklir áhugamenn um myndlist sjálfir og hafa unnið með rými sem eru til þess fallin að sýna myndlist, bæði opinber rými og heimili fólks sem hefur þessa þörf að lifa með myndlist í kring-um sig. Að mínu viti hafa þeir skilað fantagóðu verki.“ Byrjandi á tíunda ári Gallerí i8 er á fimmtánda ári. Það var fyrst til húsa í lágum kjallara í Ingólfsstræti 8 – þaðan kom nafnið – varla fimmtíu fermetra gólffleti. Nú eru þau komin í framtíðarhús-næði og á gólfi sem er tæplega 300 fermetrar. Galleríið var frá upphafi sýningarstaður fyrir fámennan val-inn hóp listamanna. Börkur segir að fyrir flutninginn á Klapparstíg árið 2000 hafi orðið breyting á rekstrin-um, þá hafi orðið ljóst að þetta gat orðið bisness en þau hafi í raun lítið kunnað til verks í heimi listmiðlun-ar sem var búin að vera háþróuð starfsemi beggja vegna Atlandsála þótt innsæið hafi verið til staðar. Hvergi Börkur Arnarson í nýju húsnæði i8 gallerí á Tryggvagötu 16. i8 Gallerí er fl utt af Klapparstíg og komið í nýtt, en gamalt, húsnæði við Tryggvagötu. Þar stendur nú yfi r sýning á verkum Hreins Friðfi nnssonar og þau mæðgin Edda Jónsdóttir og Börkur Arnarson eru með spennandi sýningaáætlun jafnframt því sem i8 hefur náð fótfestu á helstu myndlistarmessum beggja vegna Atlantshafsins. Blaðamaður hitti Börk í nýja húsnæð-inu sem er í senn skrifstofa, sýningarsalur og geymsla fyrir verk þeirra listamanna sem i8 vinnur með, en í þeirrra hópi eru stór nöfn, bæði íslensk og erlend.MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON BANGINN FRAMHALD Á SÍÐU 2 Skyldulesning fyrir ljóðvini alla, konur og ekki síst karla Ritdómur um ljóðasafn Ingibjargar Haraldsdóttur SÍÐA 6 Kirkjulista- hátíð hefst á morgun Birki í stað pálma SÍÐA 4 Vín&veisl Mars 2010 ÞAKKLÆTI OG GLEÐI Þau Paul Ramses, Rosmary Atieno og sonur þeirra Fídel Smári eru himinlifandi yfir að mega nú dvelja á Íslandi. Sjálfur íhugar Paul að bjóða fram krafta sína í íslenskum stjórnmálum, þó hann hafi ekki gert upp við sig hvaða flokkur eigi best við. Sjá síðu 20. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.