Fréttablaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 12
12 27. mars 2010 LAUGARDAGUR FRÉTTAVIÐTAL: Hvernig birtist skipulögð glæpastarfsemi í réttarsalnum? JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR jss@frettabladid.is Einkenni skipulagðrar glæpastarf- semi koma glöggt fram í íslensk- um dómsölum. Dæmi um þetta er ósannsögli sakborninga, sem talin er stafa af hreinum ótta. Þetta er nýr veruleiki sem rannsóknarlög- reglumenn og ákæruvaldið þurfa að horfast í augu við. Í sumum stærri málum er vafasamt að hægt hefði verið að sakfella brotamenn ef ekki hefði komið til tæknivinna lögreglu, sem sannaði svo ekki varð um villst að sakborningarnir voru að segja ósatt. Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn- ari, Kolbrún Sævarsdóttir sak- sóknari og Sigríður Elsa Kjartans- dóttir saksóknari, sem öll hafa sótt brotamenn til saka í stórum saka- málum, settust niður með blaða- manni Fréttablaðsins til að ræða um nýjan veruleika sem blasir við í dómsölum. „Í stærri fíkniefnamálum er nánast orðin regla að sakborningar neita staðreyndum sem blasa við,“ segir Valtýr. „Ákvæði laga um að ákæruvaldið geti lagt til þriðjungs mildun refsingar upplýsi sakamað- ur um aðild annarra að broti eða refsilækkun vegna játningar virka ekki í þessum málum, því sakborn- ingar virðast hafa þann möguleika að engu.“ Tilbúnar sögur og skýringar „Þessar tilbúnu sögur og skýring- ar fella þá oft, því þær eru oft mjög ótrúverðugar,“ segir Sigríður Elsa. Hún nefnir sem dæmi amfetamín- verksmiðjumálið, þar sem sakborn- ingar þóttust í upphafi vera að búa til eldvarnarefni. Rannsókn leiddi hins vegar í ljós að það sem fram fór í verksmiðjunni átti ekkert skylt við slíka framleiðslu. Kolbrún nefnir dæmi úr mansals- málinu. Þar náðist mynd af einum sakborninganna ásamt stúlku frá Litháen í eftirlitsmyndavél á hót- eli í Reykjavík. Stúlkan skýrði frá því að þau hefðu komið saman á hótelið. Sakborningur sagðist ekki þekkja stúlkuna og bar að maður- inn á myndinni hlyti að vera af ein- hverjum sem líktist honum. Þá sagðist einn sakborninga hafa kynnst fórnarlambinu á samskipta- síðu á Netinu undir tilteknu nafni. Í ljós kom við rannsókn að það nafn tengdist ekki stúlkunni fyrr en með fölsku skilríki sem stolið var handa henni nokkrum mánuðum síðar. „Þessi saga stóðst því greinilega ekki en hann hélt sig við hana. Ég tel líklegt að sakborningar sem hegða sér svona óttist einhverja og láti sig hafa það að standa fast á sínu hversu fjarstæðukennt sem það kann að vera,“ segir Kolbrún. Dýrmæt tæknivinna lögreglu „Kannski óttast menn að fylgst sé með þessu einhvers staðar annars staðar frá og þá af skipulögðum glæpahópum,“ segir Valtýr. Kolbrún telur að ef til vill sé þarna einnig um að ræða ákveð- inn „kúltúr“ brotamanna í skipu- lagðri glæpastarfsemi. Svo virðist sem þeir beri enga virðingu fyrir lögreglu eða öðrum yfirvöldum og treysti engum. Þannig hafi sak- borningar í mansalsmálinu ítrek- að skipt um verjendur. Talið berst að tæknivinnu lög- reglu í rannsóknum stórra saka- mála. Kolbrún, Valtýr og Sigríður Elsa eru á einu máli um að í sumum málum hefði tæplega eða ekki verið unnt að sakfella sakborninga hefði þeirrar vinnu ekki notið við. „Við verðum að reiða okkur æ meira á þessa greiningar- og tæknivinnu lögreglu við rannsókn mála,“ segir Valtýr. „Þetta á við um staðsetning- ar farsíma, DNA-próf, símhlustanir og fleira. Þetta eru svokölluð óbein sönnunargögn og virðist sem mik- ilvægi þeirra í rekstri sakamála sé sífellt að aukast. Minna sé hægt að reiða sig á framburð vitna og sak- borninga.“ Hætta á réttarspjöllum Sú mikla rannsóknarvinna sem þarf að liggja að baki saksókn í stórum brotamálum getur gert að verkum að sækjandi hefur skamm- an tíma til að undirbúa málssókn. „Það getur verið misdjúpt á gögn- um,“ segir Sigríður Elsa og nefn- ir „skútumálið“ til sögunnar. Þar þurfti að fá gögn um tengingar úr gervihnattasímum frá fyrirtæki í Bandaríkjunum sem bárust ekki fyrr en nóttina fyrir aðalmeðferð málsins. Kolbrún bendir á að í nýjum lögum um meðferð sakamála sem tóku gildi í fyrra hafi verið sett tak- mörk um að ekki megi halda fólki lengur en þrjá mánuði í gæsluvarð- haldi áður en ákæra er gefin út. Þetta setji aukna pressu á ákæru- valdið í umfangsmeiri málum eins og mansalsmálinu þar sem þurft hefði að gefa út ákæru innan tíma- rammans, kalla eftir gögnum frá útlöndum, útvega túlka, boða vitni og halda utan um alla tæknivinnu, auk lögfræðilegra atriða. Vegna naums tíma og umfangs málsins hefði ákæruvaldið þurft að leggja fram gögn eftir útgáfu ákæru. Valtýr undirstrikar að ábyrgð ákærandans sé mikil. Hann sé yfir- leitt einn í umfangsmiklum málum, jafnvel þar sem grunur leiki á að um skipulagða starfsemi sé að ræða og margir sakborningar eigi í hlut. Verjendur í slíkum málum séu hins vegar margir. „Þetta er að mínu mati ekki viðunandi og eykur hættuna á réttarspjöllum,“ segir Valtýr. „Því ber að stefna að því að í slíkum málum séu tveir saksókn- arar, eða saksóknari og saksóknar- fulltrúi.“ Skortur á háttvísi Sú spurning vaknar hvort í við- móti sakborninga gagnvart ákæru- valdinu sé farið að gæta meiri hörku, vanvirð- ingar og jafnvel fyrir- litningar? „Nei, það ber ekki á því,“ segir Kolbrún. „Hins vegar hefur komið upp að einstaka verj- endur hefur skort hátt- vísi. Þeir hafa til dæmis misfarið með réttarfars- reglur og tafið mál með kröfum um úrskurði og með kærum sem ekki verður séð að þjóni hagsmunum skjólstæð- inga þeirra. Nefna má síendurteknar kærur gæsluvarðhaldsúr- skurða héraðsdóms yfir fimm mönnum í man- salsmálinu til Hæstaréttar. Fyrir lágu dómar Hæstaréttar þar sem fallist hafði verið á kröfu lögreglu og ákæruvalds um gæsluvarðhald á þeim forsendum að vitnum staf- aði hætta af mönnum og að hætta væri á að þeir myndu flýja land. Því voru engar líkur á að rétturinn kæmist að annarri niðurstöðu, sér- staklega ekki eftir útgáfu ákæru og sakfellingu héraðsdóms. Þetta veldur auknu álagi á Hæstarétt og ákæruvaldið. Auðvitað á sak- borningur alltaf þann rétt að bera úrskurð um frelsissviptingu undir æðri dómstól en það er samt vands- éð hvaða hagsmunum það þjónar að kæra úrskurði, sem byggjast á sömu forsendum, ítrekað. Þá er óhjákvæmilegt að nefna að í man- salsmálinu bendir ýmislegt til þess að einhver verj- endanna hafi lekið upplýsing- um úr lokuðu þinghaldi í fjöl- miðla sem er vítavert.“ Langt gengið í yfirheyrslum „Enn fremur má nefna hvernig einstakir verj- endur spyrja vitni. Þeir spyrja sama vitni í sífellu sömu spurningarinnar á mismunandi vegu ef þeir fá ekki það svar sem þeir vilja. Mér finnst stundum mjög langt gengið í yfir- heyrslu á vitnum. Þeir eru í raun farnir að rökræða við vitnið. Þetta er oft orðið leiðandi.“ „Það er afar þýðingarmikið að dómari stjórni þinghöld- um, ekki síst þegar sak- borningar eru margir og réttarhöld umfangs- mikil, en láti ekki ekki allt vaða áfram,“ bætir Valtýr við. „Þetta er atriði sem leggja verð- ur áherslu á í þjálfun dómara.“ Á bak við litað gler Sakborningar í man- salsmálinu mótmæltu öllum kröfum vitna um að víkja úr sal og hlýða á framburð þeirra í gegn- um fjarskiptabúnað. Þeir stóðu fastir á sínu og töluðu um mann- réttindabrot. Því þurfti dómsúrskurð til að skera úr um þetta atriði og einungis var fallist á að sakborningar myndu víkja úr dómsal er brotaþoli gaf skýrslu. „Þetta vekur upp spurningu um hvort ekki ætti að hafa sakborning- ana bak við litað gler í svona alvar- legum málum, þannig að vitnin sjái þá ekki,“ segir Kolbrún. „Aðalat- riðið er að þeir geti fylgst með, en hafi ekki áhrif á framburð vitna. Þeir virðast nota þennan rétt, að vera viðstaddir þinghöld, til þess að hræða vitnin.“ Forherðing í réttarsalnum KOLBRÚN SÆVARS- DÓTTTIR Saksókn- ari í mansalsmál- inu. SIGRÍÐUR ELSA KJARTANSDÓTT- IR Saksóknari í „skútumálinu“. VALTÝR SIGURÐS- SON Ríkissaksókn- ari. SKÚTUMÁLIÐ Í Sirtaki-málinu kvaðst einn sakborninga ekki hafa hringt úr skútunni, enda enginn sími verið um borð í henni. Á minniskorti myndavélar sem fannst í skútunni mátti sjá myndir sem teknar höfðu verið um borð, meðal annars af gervihnattasíma. Hins vegar hefur komið upp að ein- staka verjendur hefur skort háttvísi. KOLBRÚN SÆVARSDÓTTIR SAKSÓKNARI Því ber að stefna að því að í slíkum málum séu tveir sak- sóknarar, eða saksóknari og saksóknarfull- trúi. VALTÝR SIGURÐSSON RÍKISSAKSÓKNARI Valtýr Sigurðsson segir að ákærumálum hafi stórfjölgað hjá embætti ríkis- saksóknara. Þau voru 243 talsins árið 2005 en 430 síðastliðið ár. Þá hafði kærumálum frá lögreglu fjölgað á sama tíma úr 85 í 136. Aukning hefur orðið í öðrum málaflokkum. Þrátt fyrir þetta hefur starfsmannafjöldinn verið óbreyttur síðastliðin tíu ár. Sprenging í kærum og ákærum Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Þvottavél WM 14E261DN á hreint frábærum kjörum. Tekur mest 6 kg, vindur upp í 1400 sn./mín. Með 15 mínútna þvottakerfi og íslensku stjórnborði. Tækifærisdagar í verslun okkar! 129.900 Tækifærisverð: kr. stgr. (Verð áður: 169.900 kr.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.