Fréttablaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 35
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
mars 2010
Tryggvagötunni,
steinsnar frá gatna-
mótum Geirsgötu, stend-
ur hátt steinhús byggt
eftir skipulaginu frá 1927,
neðsta hæðin hefur undan-
farna áratugi hýst margs
konar starfsemi en lengst
af var þetta vörugeymsla
með gamla laginu: stórum
hleðsluhurðum, gildum
burðarsúlum og rými sem
er bæði hátt til lofts og teyg-
ir sig í suður undir sjávarbakkann
sem Vesturgatan byggðist á. Vestan
við voru verslunarhús og pakkhús
Geirs gamla Zoëga, austan megin
var þorp Hlíðarhúsabæjanna. Hér
var kjarni gömlu Reykjavíkur.
Hingað hefur Börkur Arnarson og
hans fólk flutt i8 Gallerí af Klapp-
arstígnum þar sem það hefur verið
í nær áratug.
Átta sinnum átta
„Við vorum með geymslu og litla
skrifstofu hérna í rúmt ár. Við
vorum búin að vera að hugsa okkur
til hreyfings í nær tvö ár. Komum
hingað með fólk að skoða verk sem
ekki var pláss fyrir á Klappar-
stígnum og þegar hárgreiðslustof-
an Slippurinn, sem var í helmingn-
um af húsnæðinu, fann sér annan
stað gátum við farið að láta teikna
þetta rými upp eftir okkar þörfum.
Sumir verða hissa þegar þeir sjá
hvað galleríið er hlutfallslega lítið
miðað við allt rýmið, en skipulag-
ið er rétt eins og vinnuþörfin er:
galleríplássið sjálft er átta sinnum
átta metrar sem okkur fannst mjög
fallegt. Ásmundur og Steinþór í
Kurt og pí – sem eru ekki bara flin-
kir arkitektar heldur skilja hvað við
erum að gera og hvað við erum að
höndla með – eru miklir áhugamenn
um myndlist sjálfir og hafa unnið
með rými sem eru til þess fallin að
sýna myndlist, bæði opinber rými
og heimili fólks sem hefur þessa
þörf að lifa með myndlist í kring-
um sig. Að mínu viti hafa þeir skilað
fantagóðu verki.“
Byrjandi á tíunda ári
Gallerí i8 er á fimmtánda ári. Það
var fyrst til húsa í lágum kjallara í
Ingólfsstræti 8 – þaðan kom nafnið
– varla fimmtíu fermetra gólffleti.
Nú eru þau komin í framtíðarhús-
næði og á gólfi sem er tæplega 300
fermetrar. Galleríið var frá upphafi
sýningarstaður fyrir fámennan val-
inn hóp listamanna. Börkur segir að
fyrir flutninginn á Klapparstíg árið
2000 hafi orðið breyting á rekstrin-
um, þá hafi orðið ljóst að þetta gat
orðið bisness en þau hafi í raun lítið
kunnað til verks í heimi listmiðlun-
ar sem var búin að vera háþróuð
starfsemi beggja vegna Atlandsála
þótt innsæið hafi verið til staðar.
Hvergi
Börkur Arnarson í nýju húsnæði i8 gallerí á Tryggvagötu 16. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
i8 Gallerí er fl utt af Klapparstíg og komið í nýtt, en
gamalt, húsnæði við Tryggvagötu. Þar stendur nú
yfi r sýning á verkum Hreins Friðfi nnssonar og þau
mæðgin Edda Jónsdóttir og Börkur Arnarson eru með
spennandi sýningaáætlun jafnframt því sem i8 hefur
náð fótfestu á helstu myndlistarmessum beggja vegna
Atlantshafsins. Blaðamaður hitti Börk í nýja húsnæð-
inu sem er í senn skrifstofa, sýningarsalur og geymsla
fyrir verk þeirra listamanna sem i8 vinnur með, en í
þeirrra hópi eru stór nöfn, bæði íslensk og erlend.
MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
BANGINN
FRAMHALD Á SÍÐU 2
Skyldulesning fyrir
ljóðvini alla, konur
og ekki síst
karla
Ritdómur
um ljóðasafn
Ingibjargar
Haraldsdóttur
SÍÐA 6
Kirkjulista-
hátíð hefst
á morgun
Birki í stað pálma
SÍÐA 4