Fréttablaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 42
4 vín&veisla
MARINERING
1 kalkúnn (u.þ.b
4 kg)
2 dl ólífuolía
1 tsk. rósmarín
4 hvítlauksgeirar
1 msk. estragon
salt og pipar
FYLLING
500 g beikon
500 g sveppir
1 stk. sellerí-
stöngull
2 stk. gulir
laukar
6 stk. hvít-
lauksgeirar
1 búnt stein-
selja
400 g smjör
¼ 1 rjómi
1 stk. franskbrauð
Kryddið marið í mortéli og
blandað við olíuna. Nuddað
vel inn í fuglinn og látið standa
í um það bil 1 sólarhring.
Fylling: Saxið sveppi, lauk,
hvítlauk og sellerí og steikið
á pönnu ásamt beikoninu.
Smjörið sett út í og látið
bráðna. Rjóma bætt út á
pönnuna ásamt rifnu brauði
og steinselju. Fyllingin sett
að hluta til í gegnum háls-
opið og því lokað. Restin
sett í fuglinn og lokað fyrir.
Steikið fuglinn í ofni í um
2½ klukkustund við 80° C
hita undir viskustykki vættu í
smjöri. Þá er hitinn hækkaður
í 100° C. Eldunartími er um
það bil 40-50 mínútur á kíló.
Berið fram með sætkartöflu-
stöppu og öðru tilheyrandi.
CASILLERO DEL
DIABLO CHARDONNAY
Frábært hvítvín frá Chile sem
hentar með fjölbreyttum mat og
algjör snilld með kalkúni.
Ávaxtaríkt, mjúkt en töluvert
kraftmikið vín sem enginn
verður svikinn af.
Verð í Vínbúðinni: 1.899.
Kalkúnn fyrir 8
Í STÓRVEISLUNA Kalkúnn hentar vel þegar von er á mörgum góðum gestum.
1 stk. hamborgarhryggur
2 l vatn
2 dl rauðvín
1 stk. laukur
5 stk. negulnaglar
HUNANGSGLJÁI
2 msk. sætt sinnep
2 msk. hunang
2 msk. púðursykur
2 msk. rauðvín
1½ dl möndluflögur
Setjið kjötið í pott
með köldu vatni.
Látið suðuna koma
upp og skiptið um
vatn, en það kemur í veg
fyrir að kjötið verði of salt.
Sjóðið hamborgarhrygg-
inn í vatni ásamt víni,
lauk og negulnöglum í
30-40 mínútur. Takið
hann úr soðinu og
látið kólna. Setjið
hrygginn í ofnskúffu
og snúið beininu niður.
Hrærið saman sinnepi,
hunangi, púðursykri og
rauðvíni og smyrjið því
vandlega á hrygginn.
Dreifið möndluflögum
yfir og brúnið í ofni við
180° C í 15-20 mínútur. Berið
fram með rauðvínssósu og
brúnuðum kartöflum.
TOMMASI ROMEO
- Gyllta glasið 2009
Fékk Gyllta glasið 2009 og skal
engan undra – frábært vín sem
hentar vel með léttum mat en
er einnig frábært eitt og sér.
Verð í Vínbúðinni: 1.899.
Hamborgarhryggur
með hunangsgljáa fyrir 6
4 HÁTÍÐARRÉTTIR
Í GRILLVEISLUNA Kótiletturnar eru eldaðar í heimalagaðri grillsósu.
SPARILEGUR Möndluflögurnar gefa hátíðlegt yfirbragð. NORDICPHOTOSGETTYIMAGES
1 kg svínakótilettur
300 g Tilda-hrísgrjón
salt og pipar
1 vínberjaklasi
1 stk. snittu-
brauð
GRILLSÓSA
3 dl tómatsósa
1 dl matarolía
1 dl sojasósa
2 dl rifsberjahlaup
2 tsk. rauð papríka, smátt
söskuð
4 stk. hvítlauksgeirar,
smátt saxaðir
Hrísgrjónin eru soðin í léttsöltu
vatni. Hráefnið í sósuna er hrært
saman. Kjötið er kryddað, penslað
og grillað við háan hita í 5 mínútur á
hvorri hlið. Síðan sett í álform og sós-
unni hellt yfir og lokað með álpappír.
Látið bakast á grillinu í 15 mínútur.
MEÐLÆTI
Soðin hrísgrjón, snittubrauð og
vínber.
Heimild: Grillbók Hagkaupa
RAIMAT ABADIA
Skemmtilega kraftmikið og
öflugt vín sem kemur frá Spáni.
Svínvirkar með svínakjöti
ásamt öðru kjötmeti
sem fer á grillið.
Verð í Vínbúðinni:
2.099.
Grillbakaðar svínakótilettur
með grillsósu fyrir 4