Fréttablaðið - 30.03.2010, Síða 10
10 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
KANÍNUSLAGUR Á heitum vordegi
skammt frá Frankfurt í Þýskalandi
mættust tvær kanínur á grasvelli, og
vildi hvorug gefa eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNING Þúsundir manna bjuggu
í braggahverfum í Reykjavík í
síðari heimsstyrjöld og fyrstu
áratugina eftir stríð. Íbúar hverf-
anna sættu
oft og tíðum
neikvæðum
viðbrögðum
umhverfisins
og voru stimpl-
aðir af samfé-
laginu, ein-
göngu vegna
búsetu sinnar.
Eggert Þór
Bernharðsson
sagnfræðingur mun í hádeginu
skoða þessa sögu og velta því
fyrir sér hvernig þessi dómur
sögunnar yfir braggabúum
hefur birst og hvort breytingar
hafi orðið á þessum viðhorfum á
seinni árum. Fyrirlestur Eggerts,
sem er á vegum Sagnfræðingafé-
lagsins, verður í Þjóðminjasafn-
inu og hefst klukkan 12.05. - kóp
Þúsundir í bröggum eftir stríð:
Braggabúar
voru stimplaðir
EGGERT ÞÓR
BERNHARÐSSON
FRÉTTASKÝRING
Er ríkisstjórnin að falla?
STJÓRNMÁL Hún lét ekki mikið
yfir sér, hjáseta Atla Gíslasonar,
þegar atkvæði voru greidd um
hvort setja ætti lög á verkfall
flugvirkja. Og þó, viðstaddir sáu að
hún virkaði illa á suma þingmenn
Samfylkingarinnar. Einn þeirra
varð hávær í þingsal, hrópaði
segja sumir, í átt að ráðherrum
Vinstri grænna.
Hjásetan var í sjálfu sér ekki
stórmál, en hún var kornið sem
fyllti mælinn hjá Samfylkingunni.
Þar á bæ hafa menn lengi býsnast
yfir því að illa hafi gengið að ná
þingflokki samstarfsflokksins til
að ganga í takt. Í erfiðum málum
hafi hluti hans ekki staðið með
stjórninni.
Hjásetan blés í kergju Samfylk-
ingarfólks sem varð að þessum
orðum Jóhönnu Sigurðardóttur:
„Hoppandi meirihlutar á Alþingi
duga skammt við aðstæður eins og
okkar þjóð er í nú og of mikil orka
og tími fer í að smala þeim saman
og ná málum í gegn. Ein flokks-
systir okkar orðaði þetta ágæt-
lega þegar hún sagði að þetta væri
„eins og að smala köttum“. Þykjast
sumir sjá að sú flokkssystir hafi
verið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
fyrrverandi formaður.
Kyndugt kvöldverðarboð
Heimildarmönnum Fréttablaðsins
ber saman um að skilaboð
forsætisráðherra hafi ekki síst
verið inn í eigin flokk. Síðustu
daga hafa margar sennurnar
verið teknar í hliðarherbergjum
Alþingis og ljóst að þolinmæði
sumra var á þrotum gagnvart
samstarfsflokknum. Ræðan fór vel
í flokksstjórnina og hefur að sögn
hleypt nýju lífi í flokksmenn.
Það er kaldhæðnislegt að sama
dag og ræðan var haldin hitt-
ust ríkisstjórn og makar í fyrsta
kvöldverðarboðinu. Reynt hefur
verið um nokkra hríð að halda
slíka samkomu, en tókst ekki fyrr
en á laugardag. Stemningin var
eilítið undarleg í Ráðherrabú-
staðnum, þegar sest var til borðs
og skötuselurinn snæddur. Ræðan
var þó ekki eitt af umræðuefnum
kvöldsins.
Jákvæður fundur
Vel má vera að ræða Jóhönnu hafi
styrkt Samfylkingarfólk í trúnni,
en hún fór misvel í VG-liða, svo
ekki sé meira sagt. Hafi kergjan
verið Samfylkingarmegin fyrir
ræðuna var hún VG-megin eftir
hana. Miklar skeytasendingar fóru
af stað á milli þingmanna og æðstu
stjórnenda og sýndist sitt hverjum.
Ákveðið var, að ósk Jóns Bjarna-
sonar, að ræða málið á þingflokks-
fundi í gær.
Gagnrýnt var, af sumum, að
Jóhanna hefði með ræðu sinni kall-
að eftir stjórnunarstíl sem væri
vart boðlegur; tilskipanir að ofan
sem allir hlaupa eftir. Þá fór illa
í suma þingmenn hvernig tilkynnt
var um að ákveðinn fjöldi ríkis-
stofnana yrði lagður niður.
Almennt var litið á fundinn sem
jákvæðan, þegar upp var staðið.
Hann var hreinskiptinn en heim-
ildarmönnum Fréttablaðsins ber
saman um að menn hafi komið
jákvæðir út af honum og engan bil-
bug sé á þeim að finna hvað varðar
stjórnarsamstarf.
Átakafletir
Fram undan eru stjórnkerfisbreyt-
ingar, en í stjórnarsáttmálanum er
kveðið á um að fækka ráðuneytum
úr tólf í níu. Þar er kveðið á um
nýtt atvinnuvegaráðuneyti, en Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, hefur lýst sig
mótfallinn þeim breytingum.
Heimildarmenn innan Samfylk-
ingarinnar kvörtuðu yfir því; ekki
væri tækt að vinna gegn stjórnar-
sáttmálanum. Það ætti raunar líka
við um málefni Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins og ýmsar yfirlýsingar í
húsnæðismálum.
Á móti kvarta margir VG-liðar
yfir að þeir fórni of miklu af eigin
stefnu og sannfæringu í stjórnar-
samstarfinu. Þá eigi orðfæri sumra
ráðamanna samstarfsflokksins
meira skylt við tungutak Viðskipta-
ráðs en vinstri flokks.
Samhentir formenn
Ljóst er að stjórnin springur ekki
við þennan hvell. Jafnljóst er þó að
þolinmæðin er ekki mikil, á hvorn
bóginn sem er. Of mikill metingur
þykir í þeim sem tjá sig um stjórn-
arsamstarfið og of lítið talað saman
út á við.
Samstarf formanna flokkanna,
Jóhönnu og Steingríms J. Sigfús-
sonar, er með ágætum og á milli
þeirra ríkir traust. Þau hreyfa sig
að sögn varla án þess að tala hvort
við annað.
Formenn og varaformenn flokk-
anna hittust á sunnudag og vel fór
á með þeim. Þrátt fyrir góðan vilja
þeirra og jákvæðni að þingflokks-
fundi loknum, er hins vegar ljóst
að erfið mál eru fram undan sem
reyna munu á samstöðuna.
kolbeinn@frettabladid.is
Kergjan varð að köttum
Kergja Samfylkingarfólks vegna óróa í Vinstri grænum braust út í samlíkingu
forsætisráðherra um ketti sem erfitt er að smala. Málið var rætt á þingflokks-
fundi VG. Ræðan hreinsaði andrúmsloftið hjá Samfylkingunni.
Dalshrauni 13, Hafnarfi rði - sími 578 9700
TILBOÐ
HELGARINNAR
Páskalambið:
lambalæri fyllt með fersku pesto
og brauðteningum
Grísa hamborgarahryggur
Páska desertinn:
ekta frönsk súkkulaðimús
Lamba innralæri
ferskt og kryddað
Minnum svo á úrval forrétta og deserta.
LÍNUDANS Ríkisstjórnin er talin munu lifa af hvellinn sem varð við nýlega samlíkingu forsætisráðherra þar sem smölun katta kom
við sögu. Um leið liggur fyrir að grunnt er á því góða í stjórnarsamstarfinu og þolinmæði ekki mikil, sama til hvors stjórnarflokks-
ins er horft. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
DÓMSMÁL Veitingamenn í nektar-
geiranum ætla að krefjast skaða-
bóta af ríkinu vegna nýrra laga
sem banna nektardans.
Davíð Steingrímsson, sem rekur
Vegas, segir engan vafa á þessu:
„Ég hef ekki brotið nein lög eða
reglur og hef fjárfest og stólað á að
geta rekið staðinn til 2013, þegar
gildandi rekstrarleyfi rennur út.“
Nýju lögin taka gildi 1. júlí.
Grétar Ingi Berndsen, sem rekur
Óðal, er á sama máli: „Ég er með
leyfi til loka árs 2011 sem er tekið
úr sambandi og væntanlega verða
bætur fyrir það.“
Jafnframt
íhuga þeir báðir
hvor t k æra
skuli þingkon-
una Steinunni
Valdísi Ósk-
arsdóttur fyrir
meiðyrði, en
hún hefur meðal
annars sagt að
rekstri nektar-
staða fylgi jafn-
an skipulögð glæpastarfsemi og
mansal.
Ásgeir Davíðsson, eigandi veit-
ingastaðarins Goldfinger, hefur
ekki ákveðið hvort hann fer í
skaðabótamál gegn ríkinu, en telur
sinn skaða geta numið allt að 800
milljónum króna.
Steinunn Valdís Óskarsdótt-
ir, formaður allsherjarnefndar
Alþingis, segir að tvær allsherj-
arnefndir hafi skoðað málið og
allir þingmenn séu meira og minna
sammála um það: „Þingið setur
oft lög sem breyta því sem var
áður. Ef menn telja sig eiga rétt á
skaðabótum þá verða þeir bara að
láta reyna á það.“ Farið hafi verið
rækilega yfir málið með tilliti til
skaðabótaskyldu. - kóþ
Eigendur Goldfinger, Óðals og Vegas ósáttir við lög gegn nektardansi:
Veitingamenn krefjast bóta
GRÉTAR INGI
BERNDSEN
Meðal tólf bestu í heimi
Bókaverslunin Mál og menning við
Laugaveg er á lista yfir tólf bestu
bókabúðir heims. Listinn er tekinn
saman af danska blaðinu Berlingske
Tidende. Á listanum eru heims-
þekktar bókaverslanir á borð við
Hatchhards í Lundúnum, The Mysteri-
ous Bookshop í New York og Cathach
í Dublin.
VERSLUN
Sorpa frestar gjaldtöku
Sorpa ákvað í gær að fresta áður
ákveðinni gjaldtöku á garðaúrgangi á
þessu ári. Íbúum höfuðborgarsvæðis-
ins verða jafnframt kynntar leiðir til að
draga úr umfangi garðaúrgangs.
UMHVERFISMÁL
Hafa áhyggjur af ímyndinni
Ísraelar hafa nokkrar áhyggjur af
ímynd þjóðar sinnar ef marka má
nýja skoðanakönnun. Nær helmingur
aðspurðra telur ímyndina hafa versn-
að eftir deilu landsins við Bandaríkin
um byggingu nýrra húsa í austurhluta
Jerúsalem.
ÍSRAEL
BÚRMA, AP Lýðræðishreyfingin í
Búrma ætlar ekki að bjóða fram í
þingkosningum, sem herforingja-
stjórnin hefur boðað til síðar í ár.
Hreyfingin segir greinilegt að
kosningarnar verði ekki lýðræð-
islegar. Þetta verða fyrstu þing-
kosningar í landinu í tvo áratugi.
Herforingjastjórnin hefur lagt
ríka áherslu á að stjórnarand-
stæðingar gæti hófs í baráttunni.
Leiðtogi Lýðræðishreyfingar-
innar, Aung San Suu Kyi, hefur
verið í stofufangelsi meira og
minna síðan 1990. - gb
Óttast lýðræðishalla í Búrma:
Aung San Suu
Kyi ekki fram