Fréttablaðið - 30.03.2010, Síða 24
AKUREYRI BÓKAMARKAÐUR Félags íslenskra bókaútgefenda var opnaður á Akureyri í síðustu viku við Dalsbraut. Markaðurinn verður opinn frá 11 til 18 alla daga til og með 6. apríl, að frá-töldum föstudeginum langa og páskadegi, þá verður lokað.
Margrét Guðmundsdóttir sagn-
fræðingur hefur síðastliðna fimm
mánuði unnið að viðamiklu rann-
sóknarverkefni á vegum Akur-
eyrarstofu og Akureyrar Aka-
demíunnar. Verkefnið felur í sér
að sameina allar þær rannsóknir
sem gerðar hafa verið í sambandi
við Akureyri og Eyjafjarðarsvæð-
ið frá árunum 2000-2009. Samtals
eru þetta hátt í 900 færslur og
segir Margrét margt hafa komið
á óvart í ferlinu.
„Það er virkilega hátt hlutfall
nemenda við Háskólann á Akur-
eyri sem velur sér svæðið sem
rannsóknarverkefni í lokaritgerð-
um, eða rúm 25 prósent,“ segir
Margrét. „Stúdentar virðast velja
sér umfjöllunarefni frá nærsvæð-
inu.“ Háskólar á höfuðborgarsvæð-
inu sýni þessu svæði lítinn áhuga.
Hún tekur fram að lokaritgerðir
nemenda Háskólans í Reykjavík
séu ekki birtar í gagnagrunnum
landsins, svo ekki sé vitað hvern-
ig staðan er þar.
Markmið verkefnisins er fyrst
og fremst að kanna og kortleggja
umfang og eðli rannsókna sem
tengjast svæðinu, en einnig til að
sýna fram á þýðingu og notagildi
þeirra. „Það er nauðsynlegt að
hvetja til gagnrýninnar umræðu
um stöðu rannsókna á þessum
svæðum,“ segir Margrét. „Útlistun
á greinunum verður svo komið
fyrir í sameiginlegum gagna-
grunni sem verður opinn öllum.“
Málaflokkar greinanna eru
margir og eru rannsóknir í
menntamálum langflestar. Heil-
brigðismál og saga koma næst.
„Símenntun og fullorðinsfræðsla
virðist vera algjörlega ókannað
svið á þessu svæði. Það kemur á
óvart vegna þess að Akureyri er
mikill símenntunarbær og hafa
þessi mál mikið upp á að bjóða
fyrir fræðimenn,“ segir hún.
Rannsóknin sýndi einnig fram
á mikinn kynbundinn mun í vali
á viðfangsefnum. Konur áttu til
dæmis 95 prósent í rannsóknum
varðandi útlendinga í Eyjafirði og
90 prósent af heilbrigðismálum.
Karlar áttu allar birtingar sem
varða fólksfjölda og 81 prósent af
rannsóknum á sögusviðinu.
Margrét segir að þetta verk-
efni sé mikilvægt til þess að sýna
fram á hvað hefur verið rannsak-
að á Akureyrarsvæðinu, en ekki
síður til þess að sjá hvar skortur
er á rannsóknum. Sem sagnfræð-
ingur sér hún mikla möguleika í
rannsóknum á sögu svæðisins en
einnig mikilvægi þess að miðla
þessari miklu þekkingu sem safn-
ast hefur í gegnum þessi tæplega
þúsund rannsóknarverkefni. - sv
Hátt hlutfall nema fjallar
um Akureyri og nágrenni
Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur vinnur að því að sameina allar þær rannsóknir sem gerðar hafa
verið í sambandi við Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið frá árunum 2000-2009. Margt kom á óvart.
Margrét tekur saman rannsóknir sem
gerðar hafa verið á svæðinu. MYND/SV
Íbúar á Akureyri voru
17.522 talsins 1.
desember 2008.
Bæjarland
Akureyrar
er um
125
ferkíló-
metrar.
Opið
var í
Hlíð-
ar fjalli
153 daga veturinn
2008-2009. Heildar-
fjöldi gesta var 76.048
og fóru þeir 571.877
ferðir í lyfturnar.
www.akureyri.is
Komdu við og skoðaðu
úrvalið í stærstu
og fjölbreyttustu
skóbúð landsins
20 sý
ning
ar up
psel
dar!
Freyvangsleikhúsið
Dýrin í Hálsaskógi
-í leikstjórn Ingunnar Jensdó ur
Frábærir leikdómar:
„Ég verð að viðurkenna að það kom mér algjörlega í opna skjöldu að setjast inn í samkomu-
hús út í sveit og láta hóp áhugaleikara kippa mér a ur um hálfa öld. Upplifunin var slík
að allar þær ölmörgu uppfærslur af þessu leikri Torbjörn Egners sem ég hef só bæði á
Íslandi og erlendis hurfu í skuggann nema þessi eina sanna sem ég nefndi hér í upphafi .“
– Ágúst Þór Árnason, Vikudagur.
Tryggðu þér miða á frábæra skemmtun fyrir alla ölskylduna.
Nánari upplýsingar á www.freyvangur.net