Fréttablaðið - 30.03.2010, Qupperneq 28
30. MARS 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● páskar
Katrín B. Fjeldsted innan-
húsarkitekt gefur ímynd-
unaraflinu lausan tauminn um
páskana.
„Mér finnst bara um að gera að
brjóta upp hefðina og nota hluti
á óvenjulegan máta,“ segir Katr-
ín B. Fjeldsted, innanhúsarkitekt
og umsjónarmaður þáttarins Inn-
lit/útlit á Skjá einum, þegar blaða-
maður biður hana um ráðlegging-
ar varðandi hentugar borðskreyt-
ingar á páskunum. „Einu sinni blés
ég til að mynda upp litlar blöðrur í
tennisboltastærð, setti lítinn miða
á blöðruna með nafni viðkomandi
gests og festi á fótinn á vínglösun-
um.“
Þá kveðst Katrín ekki eltast
við páskalitina um páskana. „Ég
er bara ekkert gefin fyrir gult og
grænt skraut, hvorki á borðum né
annars staðar, heldur fer frekar út
í mismunandi afbrigði af bláum
sem er mjög páskalegur í bland
við hvítt.“ Þó segist hún halda í þá
hefð að skreyta með trjágreinum
um páskana. „Það er alltaf fallegt
og vorlegt að skreyta borðið aðeins
með blómum og þess háttar,“ segir
hún og bætir við að það sé um að
gera að gefa ímyndunaraflinu laus-
an tauminn um páskana. - rve
Blátt og hvítt um páskana
Gerviegg frá Dansi á rósum.
Skemmtilegt matarstell sem Katrín fékk í Kisunni og notar bæði við hversdagsleg tilefni og til hátíðarbrigða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Katrín, sem hefur umsjá með þættinum Innlit/útlit, fylgir ekki hefðum í skreytingum.
Eggjabakkar eru vinsælt fönd-
urefni á leikskólunum en henta
okkur fullorðna fólkinu ekki
síður.
Byrjið á að fjarlægja lokið af
tveimur eggjabökkum og málið
þá í einhverjum fallegum og vor-
legum lit, svo sem fjólubláum eða
túrkísbláum.
Raðið því næst upp í hólfin í
bakkanum því sem ykkur dett-
ur í hug, hvort sem er hvítum eða
máluðum páskaeggjum, hýasint-
um, páskaliljum í litlum kerta-
glösum eða öðru grænu en hægt
er að setja smá mold í hólfin á
bakkanum.
Einnig er mjög fallegt, eins og
gert er hér, að setja mold í eggja-
skurn og koma blómum fyrir þar
ofan í.
- jma
Vinsælt og fallegt föndur
Innihald páskaeggja er æði misjafnt og ræðst að sjálfsögðu af því
hvaða nammi er búið til af hverjum framleiðanda. Gerð var mjög
óformleg könnun á innihaldi algengustu páskaeggjanna. Þyngd og
stærð eggja er mismunandi milli framleiðenda en ákveðið var að
velja egg af svipaðri stærð. Kíkt var inn í egg númer 5 frá Nóa-Sír-
íusi sem vegur 460 g, egg númer 9 frá Freyju sem vegur 505 g, egg
númer 5 frá Góu sem vegur 430 g og Bónusegg númer 5 sem vegur
420 g en þess má geta að Góa framleiðir eggin fyrir Bónus. - sg
Kíkt inn í eggið
Góuegg númer 5
vegur 430 g. Í því er
ýmislegt góðgæti á
borð við lakkrís frá
Appollo, toffísleikjó,
góukúlur og -rús-
ínur, hlaupkarla og
karamellur.
Freyjurísegg númer
9 vegur 505 g og er
því þyngst eggjanna
fjögurra. Í því eru
meðal annars Freyju
karamellur, rískúlur,
hlaup og ýmislegt
smálegt.
Nóaeggið númer
5 vegur 460 g. Inni
í því eru meðal
annars pokar af
Nóakroppi, krítar,
töggur, smartís,
kúlur, brjóstsykur og
ýmislegt fleira.
NOKKUR RÁÐ FRÁ KATRÍNU:
1. Skipulag. Vertu búinn að kaupa allt í borðskreytinguna með góðum fyrirvara.
2. Föndur. Föndraðu eitthvað með fjölskyldunni og notaðu í borðskreytingu og
aðrar skreytingar. Til dæmis má mála egg, skrifa nafn gestanna á þau og setja í
eggjabikar.
3. Óhefðbundið. Um páska er um að gera að fara eigin leiðir í borðskreyting-
um, þar sem fyrir þeim eru ekki eins sterkar hefðir og víða erlendis.
4. Gjöf. Keyptu einn leirpott fyrir hvern gest. Skrifaðu nafn viðkomandi á pottinn
og settu í hann fallega jurt.
5. Kerti. Þótt bjart sé orðið getur verið fallegt að setja nokkur kerti á borðið. Haltu
þig við oddatölur, til dæmis þrjú eða fimm kerti á borð.
Eggjabakkaskreyting hinna fullorðnu,
prýdd blómum sem sett hafa verið ofan
í eggjaskurn fyllta af mold.
Bónuspáskaegg
númer 5 vegur 420
g. Það er framleitt
af Góu og því er
innihaldið á svip-
uðum nótum og í
Góuegginu.