Fréttablaðið - 30.03.2010, Page 40
24 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Á þessum degi árið 1949 sam-
þykkti Alþingi aðild Íslands að
Atlantshafsbandalaginu. Í kjölfar-
ið brutust út átök við Alþingis-
húsið þar sem þúsundir höfðu
safnast saman til að mótmæla
inngöngunni.
Hart hafði verið tekist á um
málið á Alþingi í nokkra daga.
Atkvæðagreiðslunni lauk klukkan 14.30 og hafði þingfundur þá
staðið yfir frá deginum áður. Þeir sem mótmæltu fyrir utan Alþingi
meðan á þessu stóð vildu að aðildin yrði lögð í dóm þjóðarinnar.
Mikill hiti var í fólki, sem meðal annars kastaði steinum og mold að
Alþingishúsinu með þeim afleiðingum að rúður brotnuðu. Sló svo
í brýnu milli mótmælenda og lögreglu og einnig varaliðs lögreglu,
sem mestmegnis var skipað ungum sjálfstæðismönnum. Átökun-
um lauk með því að lögregla beitti táragasi.
ÞETTA GERÐIST: 30. MARS 1949
Táragasi beitt við Alþingi
MC HAMMER ER 48 ÁRA Í DAG.
„Ég reyni eftir fremsta megni að
vera ungu fólki góð fyrirmynd. Það
þarf á einhverjum að halda sem
sýnir því að það er til önnur leið.“
Bandaríski tónlistarmaðurinn Stanley
Kirk Burrell, betur þekktur sem MC
Hammer, naut mikilla vinsælda undir
lok níunda áratugs síðustu aldar og
upphafi þess tíunda, sérstaklega fyrir
lag sitt You Can´t Touch This. Hann
varð gjaldþrota árið 1996.
„Það er nóg að gerast hjá samtökun-
um þessa dagana sem endranær. Og
það þarf líka eitthvað að gerast. Við
finnum vel fyrir því að margir eru að
kveikja á mörgu af því sem betur má
fara í umhverfi okkar. Sem dæmi um
það má nefna að mér hefur verið boðið
á fund hjá Umferðarráði til að kynna
hugmyndir okkar. Þar var nær undan-
tekningarlaust tekið vel í þessar hug-
myndir,“ segir Magnús Jensson, for-
maður Samtaka um bíllausan lífsstíl.
Samtökin standa fyrir opnum fundi um
reiðhjólið – besta farartæki borgarinn-
ar, í húsnæði Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands í kvöld klukkan 20.
Samtökin, sem stofnuð voru í maí
árið 2008, samanstanda af hópi fólks
sem hefur það sameiginlega áhuga-
mál að vinna að því að gera bíllausan
lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að væn-
legri kosti en verið hefur. Ýmis starf-
semi fer fram á vegum samtakanna.
Fundir eru haldnir reglulega og þing og
meðal annars boðið upp á kvikmynda-
kvöld einu sinni í mánuði þar sem horft
er á heimildarmyndir um skipulagsmál
og innhald þeirra rætt í þaula. Nokkr-
ir sérhæfðir hópar eru starfandi innan
samtakanna, svo sem sérstakur skipu-
lagshópur, hjólreiðahópur, almennings-
samgangnahópur og fleira. „Einnig er
handbók um bíllausan lífsstíl í vinnslu.
Bókin hefur þegar verið skrifuð og
þessa dagana er verið að fara yfir hana
og bæta við, með það fyrir augum að
flestir innan samtakanna geti komið að
vinnslu hennar,“ segir Magnús.
Hann segir um 1.400 manns hafa
skráð sig á Facebook-síðu samtakanna,
en eitthvað færri séu fastir meðlimir í
sjálfum samtökunum. „En það er tölu-
vert stór hópur fólks sem mætir reglu-
lega á viðburði sem samtökin standa
fyrir. Á þessum opnu fundum er ýmis-
legt rætt. Til að mynda höfum við farið
yfir göngugötur og málefni tengd þeim
og fengum Pósthússtrætinu lokað í kjöl-
farið, og fólk hefur líka deilt reynslu-
sögum af því að vera bíllaust í borginni.
Í lok apríl er svo stefnan sett á sérstakt
Vatnsmýrarþing, þar sem fjallað verður
um Vatnsmýrina sem framtíðarbygg-
ingarland og hvernig unnt sé að skipu-
leggja svæðið þannig að fjölbreytileiki
ríki varðandi það hvernig íbúar koma
sér á milli staða,“ segir Magnús.
Á opna fundinum í kvöld verður
kynning á hjólreiðaáætlun borgarinn-
ar, fjallað verður um hjólreiðar innan
Íþrótta- og Ólympíusambandsins og um
hjólreiðar í máli og myndum. Fundur-
inn er frá 20 til 22 í sal E, 3. hæð í húsi
4 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi
Íslands, Engjavegi 6.
kjartan@frettabladid.is
SAMTÖK UM BÍLLAUSAN LÍFSSTÍL: HALDA OPINN FUND UM REIÐHJÓL Í KVÖLD
Það þarf eitthvað að gerast
BESTA FARARTÆKIÐ Magnús Jensson er formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, sem stofnuð voru í maí 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Minningarathöfn um elsku son okkar,
bróður og mág,
Ríkharð Róbertsson
sem lést í Gautaborg 19. febrúar sl. verður í Áskirkju á
morgun, miðvikudaginn 31. mars, kl. 12.00.
Vigdís Hansdóttir Lars-Peter Sörensen
Robert A. H. Downey Ingigerður Hjaltadóttir
Tómas Róbertsson Nickila Róbertsson
Árni Hreiðar Róbertsson Sigríður Hermannsdóttir
Róbert Róbertsson Ingigerður Jónasdóttir
Vilhjálmur Róbertsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Birna R. Þorbjörnsdóttir
frá Sporði, Hvammstangabraut 20,
Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Hvammstanga
fimmtudaginn 25. mars. Útförin fer fram frá
Hvammstangakirkju föstudaginn 9. apríl kl. 15.00.
Ágúst Jóhannsson
Þorbjörn Ágústsson Oddný Jósefsdóttir
Jóhanna Sigurða Ágústsdóttir Guðmundur Vilhelmsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Fjóla Gísladóttir
Sléttuvegi 13,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 21. mars. Útförin
fer fram miðvikudaginn, 31. mars frá Langholtskirkju
og hefst kl. 13.00.
Gunnlaugur Lárusson
Stefanía Erla Gunnlaugsdóttir
Lárus Gunnlaugsson Kristín Jóna Jónsdóttir
Jónína Gunnlaugsdóttir
Margrét Gunnlaugsdóttir Jón Rafn Gunnarsson
Ólöf Kristín Magnúsdóttir Carl Möller
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Ingibjörg Ólafsdóttir
frá Auðunarstöðum,
lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga, laugardaginn
27. mars.
Kristín Jóhannesdóttir
Margrét Jóhannesdóttir
Guðmundur Jóhannesson
Ólöf Jóhannesdóttir
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Upplýsingar um stærðir og verð,
hafið samband í síma 512 5490 -
512 5495 eða sendið fyrirspurnir á
netfangið timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur,
f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjú
kr-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirík
s og Margr
étar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdóttu
r kennara,
f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðing
ur, f. 18.6.
1975, í sam
búð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeirr
a dóttir er
Þórunn Ás
ta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssyn
i stjórnmá
lafræðingi
, f. 6.6. 198
0.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suðu
r
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu F
uru en eft
ir að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveiði
var aðaláh
ugamál Gí
sla Eiríks a
lla tíð
og sinnti h
ann meðal
annars trú
naðarstörf
um fyrir
Stangveiði
félag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
1
gason
fæddist í
. Hann
firði 12.
drar hans á Þingeyri 8, og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
dur, f.
úkr-
-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún æknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríkur lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmí ar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem auðsýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför elskulegs föður
míns, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Ólafssonar
áður Hólagötu 17, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Rut Sigurðardóttir Bjarni Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Erfidrykkjur af alúð
Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju.
Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta.
Sím i : 525 9930
hot elsaga@hot elsaga. is
www. hot elsaga. is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
9
1
0
1
3