Fréttablaðið - 30.03.2010, Blaðsíða 44
28 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 30. mars 2010
➜ Tónleikar
20.00 Verkið Stabat Mater eftir Ant-
onín Dvorák verður flutt á tónleikum
í Áskirkju við Vesturbrún. Flytjendur
eru Guðríður St. Sigurðardóttir (píanó),
Hallveig Rúnarsdóttir (sópran), Jóhanna
Ósk Valsdóttir (alt), Einar Clausen
(tenór), Benedikt Ingólfsson (bassi) og
Kór Áskirkju.
12.15 Douglas Brotchie organisti flyt-
ur fjölbreytta og fagra barokktónlist á
hádegistónleikum í Hafnarfjarðarkirkju
við Strandgötu. Allir velkomnir og eng-
inn aðgangseyrir.
➜ Sirkus
20.00 Sirkus Íslands verður með
sýningu í Salnum við Hamraborg í
Kópavogi þar sem fjör og dirfska ráða
för í jafnvægislistum, gripli, húlahringj-
um, loftfimleikum. Nánari upplýsingar á
www.midi.is.
➜ Sýningar
Í Gallerí Smíðar og skart við Skóla-
vörðustíg 16A hefur Alain Jean Garrabé
opnað myndlistarsýningu þar sem hann
sýnir 30 ný málverk. Opið virka daga kl.
10-18 og laugardaga kl. 10-16.
➜ Síðustu forvöð
Í Gallerí Art 67 við Laugaveg 67
stendur yfir sýning á verkum Torfa
Harðarsonar. Opið virka daga kl. 12-18.
Sýningin stendur til 31. mars.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
mynd Orson Welles Tragedy of Othello
(1952). Sýningin fer fram í Bæjarbíói við
Strandgötu í Hafnarfirði. Nánari upplýs-
ingar á kvikmyndasafn.is.
➜ Málþing
17.00 Listfræðafélagið heldur málþing
undir yfirskriftinni Túlkun myndlistar
á líðandi stundu. Málþingið fer fram í
Nýlistasafninu við Skúlagötu 28 og er
öllum opið.
➜ Blúshátíð 2010
20.00 Blússöngkonan Deitra Farr
kemur fram á tónleikum ásamt Nordic
All Stars Blues Band á Hilton
Reykjavík Nordica við Suð-
urlandsbraut.
Blúshátíð í Reykjavík 2010
stendur til 1. apríl. Nánari
upplýsingar á www.
blues.is og www.
midi.is.
➜ Fyrirlestrar
12.05 Eggert Þór Bernharðsson flytur
erindið „Dómi snúið? Braggabúar og
breytt viðborf“ í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safns Íslands við Suðurgötu.
➜ Málstofa
15.00 Málstofa verður haldin í
fundarsal Seðlabankans að Sölvhóli.
Málshefjandi er Katrín Ólafsdóttir. Efni
málstofunnar er Efficiency of collective
bargaining: Analysing changes in the
wage structure in the public sector in
Iceland.
Einsöngvarar úr röðum Kórs Langholts-
kirkju ásamt Þorbirni Rúnarssyni tenór
flytja á föstudaginn langa Jóhannesar-
passíuna eftir J.S. Bach. Fluttar verða
útleggingar Bachs á píslarsögunni í
kórum og aríum. Píslarsaga Jóhannes-
arguðspjallsins er lesin og hugleiðingar
Bachs fluttar á þeim stöðum sem við
á. Lesari er Ingvar E. Sigurðsson leikari.
Strengjakvartett leikur með og stjórnandi
er Jón Stefánsson.
Einsöngvarar úr röðum kórfélaga eru:
María Vigdís Kjartansdóttir sópran, Vala
Sigríður Guðmundsdóttir Yates sópran,
Arnheiður Eiríksdóttir alt, Lilja Dögg
Gunnarsdóttir alt, Andri Björn Róbertsson
bassi og Magnús Guðmundsson bassi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Flytja Jóhannesarpassíuna
ÆFA JÓHANNESARPASSÍUNA Einsöngvarar úr röðum Kórs
Langholtskirkju æfa Jóhannesarpassíuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
> Ekki missa af
Leiklestur á kanadíska/inúíta
leikritinu Night verður haldinn
á ensku í Norræna húsinu
í dag klukkan 16.30. Líf
mannfræðings frá Torontó og
16 ára inúítastúlku fléttast
saman með afdrifaríkum hætti
á norðurslóðum Kanada.
Leikritið er samið af leikhús-
fólki frá Nunavut, Íslandi og
Suður-Kanada. Vinnan við
leikritið fór fram á Akureyri og
í Pond Inlet, þar sem leikritið
gerist. Að leiklestri loknum
mun stjórnandi verkefnisins,
Christopher Morris, fjalla um
verkið og bakgrunn þess.
Kl. 17
Sögusýning um Keflavíkurgöngur verð-
ur opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag
klukkan 17. Í sumar verða fimmtíu ár
liðin frá því að efnt var til fyrstu Kefla-
víkurgöngunnar til að mótmæla veru
bandarísks herliðs á Íslandi og aðild
landsins að Nató. Sýningar í Þjóðarbók-
hlöðunni eru öllum opnar og aðgangur
er ókeypis.
Dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík sem stendur yfir
frá 12. maí til 5. júní var
kynnt í gær. Við sama tæki-
færi var opinberuð einkenn-
ismynd hátíðarinnar.
Listahátíð í Reykjavík er 40 ára um
þessar mundir og hafa bækistöðvar
hennar verið fluttar í upprunalegt
aðsetur hátíðarinnar, hið sögufræga
hús Gimli á Bernhöftstorfunni.
Bandaríska rokksveitin Led
Zeppelin spilaði á fyrstu Listahá-
tíðinni árið 1970. Síðan þá hefur
tíðarandinn breyst á meðan hátíð-
in sjálf hefur ávallt reynt að halda
í gildi sín. „Í grunninn er útgangs-
punkturinn sá sami. Þetta er enn þá
hátíð allra listgreina og horfir bæði
út í heim og á íslenska listsköpun.
Þetta upplegg frá 1970 er enn í fullu
gildi,“ segir Hrefna Haraldsdóttir,
listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
„Auk íslenskra listamanna koma
á hátíðina erlendar stórstjörnur og
listamenn á hraðri uppleið, eins og
tíðkast hefur frá upphafi. Það sem
einkennir einnig hátíðina í ár eru
listviðburðir sem stefna saman
fleiri en einni listgrein.”
Dagskráin í ár verður glæsileg
eins og svo oft áður. Yfir sextíu við-
burðir verða haldnir þar sem allar
listgreinar koma við sögu. Íslenskir
listamenn munu sýna á sér nýjar og
óvæntar hliðar, í mörgum tilvikum í
samstarfi við erlenda listamenn.
Hljómsveitin Amadou & Mari-
am opnar hátíðina með tónleikum
í Laugardalshöll og á meðal ann-
arra hápunkta eru tónleikar norska
píanósnillingsins Leifs Ove Andsnes
og tónleikar Kristins Sigmundsson-
ar þar sem hann flytur eftirlætis
óperuaríur sínar ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og Óperukórn-
um. Megas heldur sína fyrstu tón-
leika á Listahátíð og flytur meðal
annars nýtt efni eftir son sinn, tón-
skáldið Þórð Magnússon. Uppfærsla
á Rómeó og Júlíu kemur frá Litháen
í leikstjórn eins virtasta leikstjóra
Evrópu, Oskaras Korsunovas, og
einnig verður íslenska leikverk-
ið Af ástum manns og hrærivélar
frumsýnt.
Í fyrsta sinn verður haldin sér-
stök hátíð ljósmyndarinnar hér á
landi og nefnist hún Raunveruleika-
tékk. Tuttugu ljósmyndasýningar
verða í sýningarsölum, söfnum og
á götum úti, auk námskeiða og við-
burða í tengslum við þær. Einkenn-
ismynd Listahátíðar í ár var afhjúp-
uð í gær og nefnist hún Afi. Hún er
eftir ljósmyndarann Friðgeir Helga-
son sem opnar sýninguna Breiðholt
– í augnablikinu á hátíðinni í vor.
Miðasala á Listahátíð í Reykjavík
er hafin á síðunum Listahatid.is og
Midi.is. Miðaverði er stillt í hóf og
er á bilinu eitt þúsund til rúmlega
fimm þúsund krónur. Auk þess er
ókeypis aðgangur á marga viðburði.
freyr@frettabladid.is
Sextíu viðburðir
á Listahátíð í ár
Fyrsta plata dúettsins The Go-Go
Darkness sem heitir einfaldlega
The Go-Go Darkness fær góða
dóma á frönsku tónlistarsíðunni
Rockittothemoon.com. Dúett-
inn er skipaður Henrik Baldvini
Björnssyni úr Singapore Sling
og Elsu Maríu Blöndal og kom
platan út hér á landi skömmu
fyrir síðustu jól. „Þetta er ekki
eins ágeng tónlist og Singapore
Sling spilar en samt ekki fjarri
þeim rótum. Andrúmsloftið er
myrkt og bjagað og raddirnar
tvær smella virkilega vel saman
á þessari dáleiðandi plötu,“ sagði
gagnrýnandinn.
Dáleiðandi
Darkness
THE GO-GO DARKNESS Dúettinn fær
góða dóma í Frakklandi fyrir plötu sína.
MYND/RAMSES GRANADOS
DAGSKRÁIN KYNNT Listrænn stjórnandi Listahátíðar kynnti dagskrána í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Krabbamein – Karlmenn
Ljósið endurhæfi ng fer nú a ur af stað með 8 vikna
fræðslufundi, sem miða að auknum skilningi og þekk-
ingu á brey ngarferli sem verður í lífi karlmanna sem
greinast með krabbamein.
Hefst miðvikudaginn 7. apríl kl. 17:30–19:00
Umsjón: Ma Ósvald heilsufræðingur.
Gestafyrirlesarar: Krabbameinssérfræðingur, geðlækn ir,
sjúkraþjálfari, ungur krabbameinsgreindur karlmaður
og fl eiri.
Skráning og upplýsingar í síma 561-3770 www.ljosid.is
Ljósið endurhæfi ngar og stuðningsmiðstöð, Langholstsvegi 43, 104 Rvk