Fréttablaðið - 30.03.2010, Qupperneq 54
38 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. kyrr, 6. eftir hádegi, 8. slagbrand-
ur, 9. mánuður, 11. gangþófi, 12.
stöðvun, 14. reika, 16. kaupstað,
17. dýrahljóð, 18. námstímabil, 20.
borðaði, 21. láð.
LÓÐRÉTT
1. umræðuefni, 3. þys, 4. garðplöntu-
tegund, 5. til sauma, 7. álandsvindur,
10. strá, 13. tunnu, 15. arða, 16.
ófarnaður, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lygn, 6. eh, 8. slá, 9. maí,
11. il, 12. aflát, 14. ramba, 16. bæ, 17.
urr, 18. önn, 20. át, 21. land.
LÓÐRÉTT: 1. þema, 3. ys, 4. glitbrá, 5.
nál, 7. hafræna, 10. íla, 13. ámu, 15.
arta, 16. böl, 19. nn.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Lilja Skaftadóttir.
2 Of Monsters and Men.
3 Ragna Ingólfsdóttir.
„Þetta er hús er í gríðarlega góðu
standi og það væri sárt að taka
ákvörðun um að loka því. Það er
ekki ólíklegt og gæti orðið niður-
staðan,“ segir Jón Eiríkur Jóhanns-
son, rekstrarstjóri kvikmyndahúsa
Senu, sem reka Regnbogann.
Starfsfólki Regnbogans var sagt
upp um síðustu mánaðamót og nú
er unnið að því að endurskipuleggja
reksturinn. „Eins og staðan er núna
gæti allt eins orðið að við lokum í
sumar, hreinsum út það sem við
eigum og skilum húsinu um ára-
mót,“ segir Jón Eiríkur, en leigu-
samningur Senu við eigendur hús-
næðisins rennur út í lok ársins. „Við
ætlum að reyna að fá niðurstöðu í
endurskipulagninguna á næstu
þremur mánuðum. Við vonum að
við fáum einhverja möguleika á að
framlengja leigusamningnum. Ef
við náum lækkun á leigu og ein-
hverri rekstrarstoð undir Regnbog-
ann aftur þá höldum við áfram.“
Regnboginn er fyrsta fjölsala
kvikmyndahús landsins og opn-
aði árið 1980. Húsið hefur oft
verið endurnýjað um árin og er í
dag búið mjög góðum tækjum og
sætum, segir Jón Eiríkur.
„Það eina sem vantar er
kannski bílastæðin,“ segir
hann. „En þetta er eina
miðbæjarbíóið. Reykjavík
missir þá síðasta bíóið í
miðborginni.“
atlifannar@frettabladid.is
SÍÐASTA BÍÓIÐ Regnboginn við Hverfisgötu hefur verið eina bíóið í mið-
borginni síðan Stjörnubíó og Bíóborgin hættu starfsemi fyrir átta árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SÁR NIÐURSTAÐA Jón
Eiríkur, rekstrarstjóri
kvikmyndahúsa
Senu, segir að það
yrði sárt að loka
Regnboganum.
BÍÓFLÓTTINN ÚR MIÐBORGINNI
Regnboginn er síðasta bíóið í miðborg Reykjavíkur. Stjörnubíó við
Laugaveg hætti starfsemi í lok apríl árið 2002 og Bíóborgin við
Snorrabraut hætti í júlí sama ár.
Fjalakötturinn, síðar Gamla bíó, var fyrsta bíóið í mið-
borginni og hóf sýningar 1906 og sýndi í Aðalstræti til
1927 þegar það flutti í nýtt húsnæði við Ingólfsstræti,
þar sem Íslenska óperan er núna. Nýja bíó var stofnað
1912 og flutti í nýtt húsnæði við Austurstræti 1920.
JÓN EIRÍKUR JÓHANNSSON: STARFSFÓLKI REGNBOGANS SAGT UPP
Framtíð Regnbogans óviss
eftir 30 ár í miðborginni
„Sushi-barinn í Bankastrætinu
er með besta sushi-ið í bænum.
Svo finnst mér frönsk pylsaá
pylsubarnum í Laugardalnum
alltaf rosalega góð líka en ég
leyfi mér oftar að fara í sushi-
ið.“
Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans.
„Þetta er eitt skemmtilegasta viðtal sem ég
hef farið í lengi,“ segir Örn Elías Guðmunds-
son, best þekktur sem Mugison. Hann var í
tæplega hálftíma löngu viðtali við kanadísku
sjónvarpsfréttakonuna Roxanne og stallsyst-
ur hennar. Sem er kannski ekki í frásögur
færandi nema fyrir þá staðreynd að Roxanna
starfar hjá NakedNews-fréttastofunni þar
sem allir starfsmennirnir klæða sig úr föt-
unum á meðan þeir lesa fréttir. Útsending-
arnar eru á Netinu og nýtur sjónvarpsstöðin
töluverðrar hylli. „Já, já, prinsinn að vestan
hoppaði bara í viðtal og talaði um íslenska
menningu og matarlyst við tvær naktar
konur,“ útskýrir Örn.
Tónlistarmaðurinn segist ekki hafa verið
undir neinni pressu um að koma nakinn
fram. „Önnur þeirra renndi reyndar hýru
auga til mín með slíka bón í huga. En ég er
giftur maður með tvö börn og get ekkert
verið standa í svoleiðis hlutum. Ég var líka
nývaknaður og nýkominn í fötin og fannst
eitthvað asnalegt að vera fara úr þeim aftur.“
Örn hefur nánast verið á stöðugu ferðalagi
síðan í nóvember og spilaði nýverið á sér-
stökum íslenskum menningarhátíðum í Bos-
ton og Toronto. Hann kveðst hafa þyngst um
sjö kíló á þessum túr, er bæði kominn með
belg og alvöru túttur.
„Já, hann Þórarinn Eggertsson, mat-
reiðslumaður af Orange, var með okkur og
maturinn sem hann eldaði var bara svo girni-
legur að maður var alltaf að narta eitthvað.
Með þessum afleiðingum.“ - fgg
Mugison í viðtali á nektarstöð
„Þetta er allt að skýrast, við bind-
um núna vonir við að geta farið út
í maí,“ segir Alma Guðmundsdótt-
ir, einn liðsmanna stúlknasveitar-
innar The Charlies. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá í nóvember á
síðasta ári skrifuðu stúlkurnar
undir samning við plötufyrirtæk-
ið Hollywood Records sem tilheyr-
ir Disney-samsteypunni en það
hefur á sínum snærum stórstjörn-
ur á borð við Miley Cyrus og Jonas
Brothers.
Upphaflega stóð til að tríóið færi
út í janúar en síðan tók við mikið
pappírsflóð, eitthvað sem þær
Alma, Steinunn Camilla og Klara
bjuggust hreinlega ekki við að væri
svona gríðarlegt. „Maður þarf að
útskýra í þaula hvað maður er að
fara að gera allan þennan tíma og
þetta tók bara miklu lengri tíma
en við bjuggumst við. Núna erum
við eiginlega bara að bíða eftir því
hvort við fáum vegabréfsáritun í
eitt eða þrjú ár,“ segir Alma.
Söngkonan segir forsvarsmenn
Hollywood Records vera ótrúlega
þolinmóða og þeir bíði bara róleg-
ir. „Við erum líka búnar að vera
á fullu við að taka upp og koma
okkur í form. Við erum búnar að
semja heilan helling af lögum og
höfum líka fengið slatta af lögum
að utan,“ útskýrir Alma og viður-
kennir að það sé óneitanlega svo-
lítið dýrt að bíða svona. „Þetta
kostar auðvitað allt sitt, meira að
segja ferlið við að fá svona vega-
bréfsáritun er ekkert ókeypis. Við
erum því búnar að leggja ýmislegt
í sölurnar fyrir þetta.“ - fgg
Pappírsflóð tefur The Charlies
SÉRSTAKAR AÐSTÆÐUR Mugison er
þekktur fyrir að lenda í sérkennileg-
um aðstæðum. Hann var í viðtali við
fáklædda Roxanne á Naked News á
dögunum.
Á KAFI Í PAPPÍR Alma, Steinunn Camilla og Klara hafa verið á kafi í pappír að und-
anförnu.
Eins og Fréttablað-
ið greindi frá á
dögunum þá hafa
búlg arskir fjölmiðl-
ar farið mikinn
í slúðri um
fyrirsætuna og
athafnakonuna
Ásdísi Rán að
undanförnu. Nú
síðast gengu þeir
svo langt að segja að hjónbandi
hennar og Garðars Gunnlaugsson-
ar væri lokið vegna framhjáhalds
hennar. Ásdís hló að sögunum í
viðtali við Fréttablaðið á sínum
tíma, en hefur nú einnig svarað
búlgörskum fjölmiðlum. Þar sagðist
hún ekki þurfa neina elskhuga aðra
en eiginmann sinn, enda væru þau
hamingjusamlega gift.
Til stóð að nakti kokkurinn
Jamie Oliver kæmi til
landsins og yrði viðstadd-
ur opnun Hamborgara-
fabrikku Simma og Jóa.
Oliver er gríðarlega
upptekinn þessa
dagana, en eins og
félagarnir var hann
að frumsýna nýjan
raunveruleikaþátt á
dögunum á bandarísku sjónvarps-
stöðinni ABC. Annars hefur opnun
fabrikkunnar verið seinkað til 9.
apríl og þar ku meðal annars spila
inn í gjaldþrot tækjabirgjans.
Nú styttist í að söngkonan Hera
Björk fari til Noregs ásamt fríðu
föruneyti að taka þátt í Eurovision.
Svona ferð er mjög kostnaðarsöm
og nú er svo komið að styrkurinn
frá RÚV dugar ekki til að borga
undir allan hópinn. Hópurinn hefur
því ákveðið að halda fjáröflunar-
kökubasar í Kringlunni á morgun
og ætlar Hera sjálf að skella á sig
svuntu og baka kökur í
kvöld og í fyrramálið.
Húsmæður og -feður
geta gert slíkt hið sama
því allir geta styrkt
Heru með því að
koma með kökur
og brauð á
basarinn. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI