Fréttablaðið - 30.03.2010, Síða 56
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ráðið í næstu viku
Nýr dagskrárstjóri Sjónvarpsins
verður, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins, ráðinn til starfa í
næstu viku. Páll Magnússon hefur
þó ekki hitt neinn af þeim 37 sem
sóttu um stöðuna heldur hafa
umsækjendurnir þurft að taka hin
ýmsu próf hjá ráðning-
arskrifstofu Capacent.
Meðal þeirra sem sóttu
um voru Þorfinnur
Ómarsson, Egill Óskar
Helgason og Sigur-
jón Kjartansson en
þeir fá væntanlega
svör strax eftir
páska.
Sorg á Tjörn á Vatnsnesi
Þær voru sorglegar fréttirnar sem
bárust frá Tjörn á Vatnsnesi á
sunnudaginn þegar um 250 land-
námshænur drápust í bruna. Júlíus
Baldursson, staðarhaldari á Tjörn,
hefur verið frumkvöðull í ræktun á
þessum hænsnastofni og
hann bauð meðal annars
upp á að fólk gæti keypt
landsnámshænu sem
hann sá síðan um að
ala. Meðal þeirra sem
áttu slíka hænu var
tónlistarmaðurinn
Samúel Jón
Samúelsson,
oftast kallaður
Sammi í Jagúar.
www.forlagid.is
1 Jóhanna þegar komin með
kattasmala-myndband
2 Enn lýst eftir Svövu Hrönn
3 Íslensku flugfélögin nýta sér
eldgosið
4 Kettir gætu kennt
þingmönnum ýmislegt
5 Tólf ákærðir fyrir hnífstungu
Ráðið í næstu viku
Handboltahetjan Þorgils Óttar
Mathiesen hefur sagt sig úr stjórn
einkahlutafélagsins 7 hægri ehf.
Þorgils var varamaður í stjórninni
fyrir Kristján Arason, fóstbróður úr
handboltanum. Þeir Kristján og Þor-
gils eru með þekktari handbolta-
kempum landsins en heiti félagsins
má rekja til samspils skyttu og línu-
manns. Samspil þeirra
Kristjáns og Þorgils á
fjármálavellinum hlýt-
ur að teljast til afleiks
en félagið tapaði 747
milljónum króna árið
2008 og skuldaði tvo
milljarða í lok árs.
- fgg / jab