Fréttablaðið - 31.03.2010, Page 8
8 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
-tryggjum öryggi í viðskiptum
Ert þú örugglega þú?
www.sff.is
Til að auka öryggi í viðskiptum þurfa
allir viðskiptavinir banka, sparisjóða og
eignarleigufyrirtækja að sanna á sér
deili með því að framvísa gildu skilríki.
Gild skilríki eru vegabréf, ökuskírteini
og nafnskírteini.
Samkvæmt lögum um peningaþvætti er skylt
að framvísa gildum persónuskilríkjum
Hafi r þú ekki sannað á þér deili er mikilvægt að þú gerir það.
NÝTT LANDSLAG Miklar breytingar hafa orðið á umhverfinu á Fimmvörðuhálsi eftir að eldgos hóf að spúa hrauni. Gestir og heppn-
ir ferðalangar borðuðu í gær tveggja rétta sælkeramáltíð við rætur eldstöðvarinnar. Matinn elduðu matreiðslumeistararnir á Hótel Holti, undir
stjórn Friðgeirs Eiríkssonar. Boðið var upp á humarsúpu og glóandi skötusels- og humarspjót sem elduð voru á heitu hrauninu. Gunnar V. Andr-
ésson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var með í för og myndaði herlegheitin, og umhverfið sem matargestir gátu notið til hins ítrasta á meðan þeir
gæddu sér á kræsingunum í kuldanum á Fimmvörðuhálsinum í gær. Framhald verður á eldamennsku í þessu sérstaka eldhúsi náttúrunnar, og
verður sérstökum gestum Hótels Holts boðið að njóta þeirra. Auk þeirra munu nokkrir heppnir ferðamenn fá að bragða á herlegheitunum.
Birta spá á miðvikudag
Sýn Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar (OECD) á horfur í sjö helstu
iðnríkjum heims og á evrusvæðinu
verður birt miðvikudaginn 7. apríl.
Pier Carlo Padoan, aðalhagfræðingur
OECD, kynnir spá stofnunarinnar í
höfuðstöðvum hennar í París.
EFNAHAGSMÁL
1 Við hvaða götu er kvik-
myndahúsið Regnboginn, sem
til stendur að loka?
2 Hvað er langt síðan fyrsta
Keflavíkurgangan var gengin?
3 Hvaða lið bar sigurorð af
Grindavík í átta liða úrslitum
Iceland Express-deildarinnar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54
VEISTU SVARIÐ?
REYKJAVÍK Velferðarráð Reykja-
víkur hefur samþykkt tillögu
Velferðarsviðs um að styrkja
starfsemi skammtímaheimil-
is fyrir unglinga í Reykjavík á
aldrinum 13 til 18 ára.
Styrking heimilisins felur í
sér að starfsfólki verður fjölg-
að til þess að mæta betur þörf-
um þeirra sem þurfa á þjón-
ustu þess að halda. Á heimilinu
verður gert ráð fyrir þremur
ungmennum í vistun á hverj-
um tíma en fjórða plássið verði
neyðarpláss.
Skammtímaheimilið hefur
verið rekið frá árinu 2005 og er
ætlað ungmennum sem vegna
aðstæðna sinna þurfa á vistun
að halda til skemmri tíma. - shá
Starfsfólki verður fjölgað:
Heimili fyrir
ungt fólk eflt
VIÐSKIPTI Alls voru 82 fyrirtæki
tekin til gjaldþrotaskipta í febrú-
ar. Það er minna en í sama mán-
uði í fyrra, þegar fyrirtækin voru
88. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofu Íslands.
Nýskráningum einkahlutafé-
laga fækkaði á milli ára. Í febrú-
ar 2010 voru skráð 148 ný einka-
hlutafélag, en 236 í sama mánuði
í fyrra. Það jafngildir rúmlega 37
prósenta lækkun á milli ára. Að
auki voru skráð 64 samlagsfélög
í febrúar. Flest voru fyrirtækin í
verslun. - kóp
Einkahlutafélögum fækkar:
82 fyrirtæki
urðu gjaldþrota
UMFERÐ Alvarleg umferðarslys í
fyrra voru fimmtán prósentum
færri en árið áður, eða 170 miðað
við 200 árið 2008. Þetta kemur fram
í árlegri samantekt slysaskráning-
ar Umferðarstofu.
Árið 2009 létust 17 manns í 15
umferðarslysum, samanborið við
12 látna í jafnmörgum slysum árið
áður. Báðar tölur eru nokkru lægri
en meðalfjöldi látinna í umferðinni
undanfarin tíu ár, sem er 22 á ári. Á
síðustu þremur árum hafa að með-
altali tæplega 15 látist í umferðar-
slysum á landinu, en næstu þrjú
ár á undan létust rúmlega 24 ár
hvert. Mest fækkaði slysum milli
ára á Suðurnesjum, eða um 35 pró-
sent. Á Vestfjörðum fækkaði þeim
um 32 prósent, á Suðurlandi um
24 prósent og á höfuðborgarsvæð-
inu um 23 prósent. Á Norðurlandi
vestra fjölgaði slösuðum hins vegar
um 19 prósent og á Austurlandi um
13 prósent.
Þá er einnig kannað hvort um
raunfækkun slysa sé að ræða, með
tilliti til fólksfjölgunar, fjölda öku-
tækja, ekinna kílómetra og annarra
hagtalna sem geta haft áhrif. Að
teknu tilliti til þess fækkaði slys-
um um ellefu prósent milli ára. - sh
Alvarleg umferðarslys voru 170 í fyrra, samanborið við 200 árið áður:
Slysum fækkaði um 15 prósent
UMFERÐARSLYS Alvarlegum slysum
fækkaði mest á Suðurnesjum milli ára,
en á Norðurlandi vestra fjölgaði þeim
um fimmtung milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON