Fréttablaðið - 31.03.2010, Side 16

Fréttablaðið - 31.03.2010, Side 16
16 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR „Við erum mjög ánægð með viðbrögð utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna og teljum að hún hafi lög að mæla,“ segir Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra um orð Hillary Clinton á samráðsfundi fimm ríkja um mál- efni norðurskautsins, sem haldinn var í Kan- ada, „en við höfum reyndar komið þessum sjónarmiðum skýrt á framfæri við banda- rísk stjórnvöld í gegnum utanríkisþjónust- una. Og ég man ekki betur en ég hafi verið eini utanríkisráðherra þessara þriggja ríkja sem utan standa, sem kvaddi sér hljóðs um málið á alþjóðafundi fyrir um tveimur mán- uðum.“ Clinton gagnrýndi Kanadastjórn harðlega fyrir að bjóða hvorki Íslendingum, Finnum og Svíum né fulltrúum frumbyggjaþjóða á norðurslóðum til fundar um norðurskauts- málefni, sem haldinn var í Ottawa í Kanada í gær. „Mikilvægar alþjóðlegar viðræður um málefni norðurskautsins eiga að fara fram með þátttöku allra sem eiga lögmætra hags- muna að gæta á þessu svæði,“ sagði hún. Lawrence Cannon, utanríkisráðherra Kanada, hafði boðið utanríkisráðherrum Bandaríkjanna, Rússlands, Noregs og Dan- merkur til samráðsfundar um málefni norð- urskautsins á mánudag í tengslum við utan- ríkisráðherrafund G8-ríkjanna, sem haldinn var í Kanada. Öll þessi fimm ríki eiga sæti í Norður- skautsráðinu, en til fundarins var ekki boðið utanríkisráðherrum Íslands, Svíþjóðar og Finnlands, þrátt fyrir aðild þeirra að ráð- inu. Ekki var heldur boðið þangað fulltrúum frumbyggjaþjóða sem einnig eiga aðild að Norðurskautsráðinu. „Ég veit ekki af hverju þeir héldu þenn- an fund,“ segir Össur, „en þetta er í annað skiptið sem svona fundur, sem er utan vébanda Norðurskautsráðsins, er haldinn. Síðast var það í Grænlandi fyrir tveimur árum. Við teljum þetta mjög rangt að kljúfa okkur út úr umfjöllun um þessi málefni, því við erum þeirrar skoðunar að allir sem eiga hagsmuni undir eigi að hafa aðkomu þar að, líka frumbyggjaþjóðirnar sem búa í þessum ríkjum.“ Í viðtali við þýska tímaritið Spiegel rétt- lætir Catherine Loubier, talskona kanadíska utanríkisráðuneytisins, fimm ríkja fund- inn með því að hann sé fundur strandríkja við Norður-Íshafið. Þess vegna séu hvorki Ísland, Finnland og Svíþjóð með, og fulltrú- ar frumbyggja væntanlega ekki vegna þess að þeir séu ekki fulltrúar stjórnvalda neins þjóðríkis. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins virðist sem Rússar vilji draga úr möguleik- um þess að Evrópusambandið hafi áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru á vettvangi Norðurskautsráðsins. Ekki er að sjá annað en að Kanadamenn séu þar á svipuðu róli og Rússar, enda eru Kanadamenn verulega ósáttir við Evrópu- sambandið vegna afstöðu þess bæði til hval- veiða og sölu selaafurða. Viðbrögð Clintons hafa líklega orðið til þess að vægi fundarins varð minna en Kandamenn og Rússar höfðu vonast til. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands, sagðist þó ánægður með fundinn. Hann sagðist ekki líta svo á að fimm ríkja fundirnir drægju neitt úr gildi Norður- skautsráðsins, enda þurfi hvort eð er að leysa allar deilur ríkjanna með friðsamleg- um hætti. Cannon sagði sömuleiðis að fimm ríkja fundinum væri hvorki ætlað að koma í stað- Össur fagnar viðbrögðum Hillary Clinton Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fór hörðum orðum um ákvörðun Kanadastjórnar að bjóða fimm af aðildarríkjum Norðurskauts- ráðsins til fundar um málefni norðurskautsins. Össur Skarphéðinsson segir Íslendinga lengi hafa gagnrýnt þetta fyrirkomulag. FRÉTTASKÝRING: Er verið að grafa undan gildi Norðurskautsráðsins? Íslendingar hafa ótvíræðra hagsmuna að gæta þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð siglinga og öryggismála á norðurslóðum. Hlýnun jarðar hefur nú þegar valdið því að umferð skipa norð- ur yfir hefur aukist töluvert. Þótt norðurskautið muni um aldur og ár verða ófært að vetrarlagi vegna íss og kulda, þá er ísinn mun þynnri en áður sem þýðir að á sumrin verður hann mjög gisinn. Innan fárra áratuga verður því fært þvert yfir pólinn að sumarlagi fyrir sérútbúin risastór flutningaskip sem nú þegar eru á teikniborðinu. Leiðin þvert yfir norðurskautið er bæði styttri og auðveldari en norðausturleiðin með strönd- um Rússlands, hvað þá norðvesturleiðin með ströndum Kanada. Af þessum auknu siglingum stafar bæði hætta fyrir Ísland, til dæmis ef óhöpp verða nálægt landinu, en ekki síður tækifæri við að þjónusta skipin. Hagsmunir á norðurslóðum inn fyrir Norðurskautsráðið né grafa undan því. „Satt að segja tel ég að viðræðurnar í dag komi sér vel fyrir Norðurskautsráðið og aðildarríki þess,“ er haft eftir honum í fréttaskeytum. FRÉTTASKÝRING GUÐSTEINN BJARNASON gudsteinn@frettabladid.is AÐ LOKNUM FUNDI Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ásamt föruneyti í Chelsea. N O R D IC PH O TO S/A FP Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is. Þú getur treyst því að við gerum betur við AudiTæknilegt forskot og fagmannleg þjónusta Elías og félagar eru fagmenn fram í fingurgóma þegar kemur að þjónustu við Audi eigendur. Þeir vita að sá hópur er sérstaklega kröfuharður og sættir sig aðeins við lipra, skjóta og fagmannlega þjónustu sem hæfir þessum þýsku gæðabílum. 100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði Ókeypis forgreining

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.