Fréttablaðið - 31.03.2010, Page 16
16 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
„Við erum mjög ánægð með viðbrögð utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna og teljum að
hún hafi lög að mæla,“ segir Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra um orð Hillary
Clinton á samráðsfundi fimm ríkja um mál-
efni norðurskautsins, sem haldinn var í Kan-
ada, „en við höfum reyndar komið þessum
sjónarmiðum skýrt á framfæri við banda-
rísk stjórnvöld í gegnum utanríkisþjónust-
una. Og ég man ekki betur en ég hafi verið
eini utanríkisráðherra þessara þriggja ríkja
sem utan standa, sem kvaddi sér hljóðs um
málið á alþjóðafundi fyrir um tveimur mán-
uðum.“
Clinton gagnrýndi Kanadastjórn harðlega
fyrir að bjóða hvorki Íslendingum, Finnum
og Svíum né fulltrúum frumbyggjaþjóða á
norðurslóðum til fundar um norðurskauts-
málefni, sem haldinn var í Ottawa í Kanada
í gær.
„Mikilvægar alþjóðlegar viðræður um
málefni norðurskautsins eiga að fara fram
með þátttöku allra sem eiga lögmætra hags-
muna að gæta á þessu svæði,“ sagði hún.
Lawrence Cannon, utanríkisráðherra
Kanada, hafði boðið utanríkisráðherrum
Bandaríkjanna, Rússlands, Noregs og Dan-
merkur til samráðsfundar um málefni norð-
urskautsins á mánudag í tengslum við utan-
ríkisráðherrafund G8-ríkjanna, sem haldinn
var í Kanada.
Öll þessi fimm ríki eiga sæti í Norður-
skautsráðinu, en til fundarins var ekki boðið
utanríkisráðherrum Íslands, Svíþjóðar og
Finnlands, þrátt fyrir aðild þeirra að ráð-
inu. Ekki var heldur boðið þangað fulltrúum
frumbyggjaþjóða sem einnig eiga aðild að
Norðurskautsráðinu.
„Ég veit ekki af hverju þeir héldu þenn-
an fund,“ segir Össur, „en þetta er í annað
skiptið sem svona fundur, sem er utan
vébanda Norðurskautsráðsins, er haldinn.
Síðast var það í Grænlandi fyrir tveimur
árum. Við teljum þetta mjög rangt að kljúfa
okkur út úr umfjöllun um þessi málefni, því
við erum þeirrar skoðunar að allir sem eiga
hagsmuni undir eigi að hafa aðkomu þar að,
líka frumbyggjaþjóðirnar sem búa í þessum
ríkjum.“
Í viðtali við þýska tímaritið Spiegel rétt-
lætir Catherine Loubier, talskona kanadíska
utanríkisráðuneytisins, fimm ríkja fund-
inn með því að hann sé fundur strandríkja
við Norður-Íshafið. Þess vegna séu hvorki
Ísland, Finnland og Svíþjóð með, og fulltrú-
ar frumbyggja væntanlega ekki vegna þess
að þeir séu ekki fulltrúar stjórnvalda neins
þjóðríkis.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
virðist sem Rússar vilji draga úr möguleik-
um þess að Evrópusambandið hafi áhrif á
þær ákvarðanir sem teknar eru á vettvangi
Norðurskautsráðsins.
Ekki er að sjá annað en að Kanadamenn
séu þar á svipuðu róli og Rússar, enda eru
Kanadamenn verulega ósáttir við Evrópu-
sambandið vegna afstöðu þess bæði til hval-
veiða og sölu selaafurða.
Viðbrögð Clintons hafa líklega orðið
til þess að vægi fundarins varð minna en
Kandamenn og Rússar höfðu vonast til.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, sagðist þó ánægður með fundinn.
Hann sagðist ekki líta svo á að fimm ríkja
fundirnir drægju neitt úr gildi Norður-
skautsráðsins, enda þurfi hvort eð er að
leysa allar deilur ríkjanna með friðsamleg-
um hætti.
Cannon sagði sömuleiðis að fimm ríkja
fundinum væri hvorki ætlað að koma í stað-
Össur fagnar viðbrögðum Hillary Clinton
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fór hörðum orðum um ákvörðun Kanadastjórnar að bjóða fimm af aðildarríkjum Norðurskauts-
ráðsins til fundar um málefni norðurskautsins. Össur Skarphéðinsson segir Íslendinga lengi hafa gagnrýnt þetta fyrirkomulag.
FRÉTTASKÝRING: Er verið að grafa undan gildi Norðurskautsráðsins?
Íslendingar hafa ótvíræðra hagsmuna að gæta
þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð siglinga
og öryggismála á norðurslóðum. Hlýnun jarðar
hefur nú þegar valdið því að umferð skipa norð-
ur yfir hefur aukist töluvert.
Þótt norðurskautið muni um aldur og ár
verða ófært að vetrarlagi vegna íss og kulda,
þá er ísinn mun þynnri en áður sem þýðir að á
sumrin verður hann mjög gisinn.
Innan fárra áratuga verður því fært þvert
yfir pólinn að sumarlagi fyrir sérútbúin risastór
flutningaskip sem nú þegar eru á teikniborðinu.
Leiðin þvert yfir norðurskautið er bæði styttri og
auðveldari en norðausturleiðin með strönd-
um Rússlands, hvað þá norðvesturleiðin með
ströndum Kanada.
Af þessum auknu siglingum stafar bæði
hætta fyrir Ísland, til dæmis ef óhöpp verða
nálægt landinu, en ekki síður tækifæri við að
þjónusta skipin.
Hagsmunir á norðurslóðum
inn fyrir Norðurskautsráðið né grafa undan
því. „Satt að segja tel ég að viðræðurnar í
dag komi sér vel fyrir Norðurskautsráðið
og aðildarríki þess,“ er haft eftir honum í
fréttaskeytum.
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
AÐ LOKNUM FUNDI Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ásamt föruneyti í Chelsea.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Þú getur treyst því að við gerum betur við AudiTæknilegt forskot
og fagmannleg þjónusta
Elías og félagar eru fagmenn fram í fingurgóma þegar kemur að þjónustu við Audi
eigendur. Þeir vita að sá hópur er sérstaklega kröfuharður og sættir sig aðeins við
lipra, skjóta og fagmannlega þjónustu sem hæfir þessum þýsku gæðabílum.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði Ókeypis forgreining