Fréttablaðið - 31.03.2010, Page 29
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Það gekk ekki alveg eftir að sjá
eldgosið í allri sinni dýrð, en ég
sá það þó með kíki. Svo komst ég
líka í fyrstu útilegu ársins,“ segir
Erna Benediktsdóttir, sem stund-
ar meistaranám í framleiðsluverk-
fræði og stjórnun í Stokkhólmi.
Erna er stödd í páskafríi á Íslandi
og hafði hugsað sér að nýta tæki-
færið og skoða eldgosið á Fimm-
vörðuhálsi.
Hópurinn, fjórir fullorðnir og
einn hundur, lagði upp í ferðalag-
ið síðastliðinn föstudag. „Við ókum
Fljótshlíðina, að Þórólfsfelli, og
höfðum meðferðis stjörnukíki og
venjulegan kíki til að skoða gosið
úr fjarlægð, enda ekki leyfilegt að
keyra inn í Þórsmörk. Stemning-
in var mjög góð, bæði hjá okkur
og öllum þeim sem þarna voru á
ferð,“ segir Erna.
Um kvöldið komu ferðalangarnir
að Skógum og komust þá að því að
tölvan í pallbílnum hafði bilað, lík-
lega sökum þess að farið var yfir
ár á leiðinni að Þórólfsfelli, meðal
annars með þeim afleiðingum að
bremsurnar urðu óvirkar. Hóp-
urinn ákvað því að elda kvöldmat
og tjalda einu kúlutjaldi sem þau
gistu fjögur í. Hundurinn Tinni
lét fara vel um sig í fortjaldinu.
„Ég var klædd í tvöfalt föðurland,
íþróttabuxur, ullarbol, tvær mjúk-
ar peysur, ullarpeysu, dúnvesti,
eyrnaband, vettlinga, tvö pör af
ullarsokkum og í svefnpoka. Þrátt
fyrir útbúnaðinn var mér ískalt í
fjögurra gráðu frostinu, en þetta
var samt rosalega hressandi,“
segir Erna og hlær. „Ég mæli nú
samt ekki með því að neinn leiki
þetta eftir nema viðkomandi sé
mjög heitfengur, sem ég er ekki,“
bætir hún við.
Þegar Erna og félagar vöknuðu á
laugardagsmorgninum komust þau
að því að allir bifvélavirkjar sem
þau reyndu að ná í voru í helgarfríi
og bíllinn því enn óstarfhæfur. Þau
höfðu ætlað að rölta upp á Fimm-
vörðuháls og skoða gosið, en vildu
ekki taka þá áhættu að fá ekki
far til Reykjavíkur þegar niður
kæmi.
„Við stelpurnar skildum því
strákana eftir til að hafa áhyggj-
ur af bílnum og húkkuðum okkur
far í bæinn með indælum manni
og portúgölskum vini hans. Í bíln-
um ræddum við um fjallgöngur,
útivist og hversu heppin við erum
að eiga þetta fallega land, hvað
sem öðru líður. Í staðinn fyrir að
sjá eldgosið komst ég í tæka tíð í
tveggja ára afmæli litlu frænku
minnar og Ólympíustærðfræði-
verðlauna-afhendingu einnar af
sex litlu systrum mínum,“ segir
Erna, sátt við málalokin.
kjartan@frettabladid.is
Mjög kalt en hressandi
Erna Benediktsdóttir, meistaranemi í verkfræði, ætlaði að skoða eldgosið um síðustu helgi ásamt fleir-
um. Þau komust þó ekki lengra en að Skógum þar sem tjaldað var í fjögurra gráðu frosti.
Tölvan í pallbílnum sem Erna og félagar ferðuðust á bilaði á leiðinni að Fimmvörðuhálsi með þeim afleiðingum að bremsurnar
urðu óvirkar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SÖNGVAHÁTÍÐ BARNA verður haldin klukkan 17 á skírdag í tengslum við Kirkju-
listahátíð í Hallgrímskirkju. Þar koma fram 100 börn úr kórum víðs vegar úr borginni
ásamt þekktum hljóðfæraleikurum undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar organista.
Gistiheimili í Kaupmannahöfn
Herbergi og studioíbúðir
í miðbænum
sími 0045-2848 8905La Villa
Sími: 581 2141 - www.hjahrafnhildi.is
Bókin um
Fimmvörðuháls
Útivist
fæst hjá
Laugavegi 178 • Sími 562 1000
www.utivist.is