Fréttablaðið - 31.03.2010, Page 30
Flestir finna fyrir grænum fiðringi þegar
páskar nálgast og taka forskot á sæluna
með því að kaupa sér túlípana, hýasintu
eða páskaliljur í blómabúðum. Frétta-
blaðið skoðaði hvernig hægt er að fegra
heimilið á einfaldan hátt síðustu daga fyrir
páska og eru blóm þar í stóru hlutverki.
Gul blóm, páskaliljur, túlípanar og liljur,
fara vel í alls kyns ílátum, glösum, krukk-
um, kertastjökum og eins og hér – í
umbúðum.
Hýasintur eru æðislegar nokkrar saman
í mismunandi litum. Stundum er hægt
að fá sérstaka vasa undir þær en einnig
mætti notast við rúma kertastjaka.
Í raun þarf ekki sérstakt páskaskraut til
að gera páskaborðið hátíðlegt. Allt sem
þarf er blómvöndur í páskalitnum, og
jafnvel þrjá vendi ef borðið er stórt.
Þessi skreyting er einfaldari en hún lítur út fyrir að vera. Hér hafa stenslar verið
notaðir til að mála falleg mynstur á eggin. Slíkir stenslar fást víða í föndurbúðum og
gaman að nota milda pastelliti á eggin. Svo má setja eggin í eggjabikara eða glös og
skreyta svo jafnvel með blómum og raða öllu á kökudisk.
Dásamlegar
páskaskreytingar
KOLAPORTIÐ verður opið frá 11 til 17 á skírdag,
laugardaginn 3. apríl og annan í páskum 5. apríl.
Lokað er föstudaginn langa og á páskadag.
Eggið átti að vera páskagjöf til keis-
araynjunnar Maríu Fyodorovnu og
dugði ekkert minna til en skíragull.
Að utan leit eggið út eins og venju-
legt hvítt hænuegg en þegar það var
opnað kom í ljós eggjarauða úr skín-
andi gulli.
Inni í sjálfri eggjarauðunni var svo
gullhæna með smaragðsskreytta kór-
ónu. Keisaraynjan varð svo hrifin af
gjöfinni að Alexander bauð Faber-
gé og mönnum hans að búa til eitt
egg á ári. Einu skilyrðin sem Alexand-
er setti voru að eggin yrðu öll ein-
stök og innihéldu óvæntan glaðning.
Þessi hefð lifði Alexander því þegar
sonur hans, Nikulás II., tók við stjórn-
artaumunum urðu eggin tvö á ári. Eitt
fyrir konu Nikulásar, Alexöndru, og
eitt fyrir móður hans. Eggin urðu allt í
allt 57 talsins en framleiðslu þeirra var
hætt eftir byltinguna árið 1918.
Nítján egg hvíla nú í faðmi rúss-
neska bjarnarins, átta eru glötuð og
afgangurinn dreifður um söfn og sýn-
ingarsali víða um heim.
Rándýrt páskaegg
ÁRIÐ 1885 FÉKK ALEXANDER III. RÚSSA-
KEISARI GULLSMIÐINN FABERGÉ TIL AÐ
BÚA TIL MJÖG SÉRSTAKT PÁSKAEGG.
Inni í egginu var eggjarauða úr gulli.
Frekari upplýsingar og skráning á heimasíðu
Íslenskra Fjallaleiðsögumanna eða í síma 587 9999
FJALLALEIDSOGUMENN.IS
allaleidsogumenn@ allaleidsogumenn.is
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Stuttkápur
Gallajakkar • Bolir
Glæsilegar
yfi rhafnir
Verð 19.900 kr.
▼
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447