Fréttablaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 31
Ekki þarf að leita langt yfir skammt
til að finna skemmtilegar og fallegar
gönguleiðir í nágrenni borgarinnar.
Ljósmyndararnir og útivistarfólkið
Anna S. Sigurðardóttir og Tryggvi
Þormóðsson hafa um árabil geng-
ið á Hengilssvæðinu og hafa tekið
saman lýsingar á þrettán áhuga-
verðum gönguleiðum á Henglinum.
Þær eru aðgengilegar á vef Orku-
veitu Reykjavíkur á www.or.is undir
Umhverfi og fræðsla. Valin var af
handahófi ein gönguleið og kemur
lýsing á henni hér fyrir neðan:
Sleggjubeinsdalur - Innstidalur
Erfiðleikastig 2. Tæplega 4 km með
heita læknum. Í Innstadal er kjörið
að ganga með börn, gangan er auð-
veld og fjölbreytni dalsins mikil og
ekki skemmir heitur lækur fyrir.
Leiðin hefst í Sleggjubeins-
dal innan við Hellisheiðarvirkj-
un. Gengið er upp hrygginn milli
Sleggju og Skarðsmýrarfjalls upp í
Sleggjubeinsskarð. Að austanverðu
er öflugt og fagurt hverasvæði sem
skartar mikilli litadýrð, útsýnið
eykst með hverju skrefi.
Uppi í skarðinu er vegprest-
ur sem skiptir leiðum, önnur um
vesturhlíð skarðsins upp á Vörðu-
Skeggja, hin sem við göngum leið-
ir okkur inn í Innstadal sem er
innstur Hengladala. Slóðin heldur
áfram með suðurhlið dalsins sem er
grasi gróinn og sléttur, girtur fjöll-
um allan hringinn, Hengillinn í allri
sinni dýrð er til norðurs.
Til norðvesturs gengur gil upp í
Hengilinn með tignarlegum kletta-
beltum þar má ganga á Vörðu-
Skeggja þótt ekki sé það stikuð leið.
Að austanverðu er gróið hraun, þar
þrengist dalurinn. Lækur rennur
eftir dalnum sem verður að Hengla-
dalsá og síðar Varmá, lækjarvatnið
er gott til að fylla á drykkjarílát.
Í hrauninu er vegprestur sem
skiptir leiðum, önnur áfram til
austurs yfir á Ölkelduháls, hin til
norðurs upp á Vörðu-Skeggja. Ef
genginn er spotti yfir dalinn inn á
Vörðu-Skeggja-leiðina, að gömlum
skála og þaðan niður í gilið aust-
an við skálann, er komið að heit-
um læk, hér er notalegt að skella
sér í bað eða aðeins fótabað, velja
má hitastig eftir því hve ofarlega
er farið.
Gönguleiðir á Henglinum
Á vefsíðu Orkuveitunnar má finna leiðarlýsingu á gönguleiðum á Hengilssvæðinu. Á svæðinu er þéttrið-
ið net göngustíga, samtals um 100 kílómetrar. Stígarnir liggja um stórbrotið landslag og jarðmyndanir.
Náttúran á Hengilssvæðinu er stórbrotin og þar má víða finna merkilegar jarðmynd-
anir.
GÖNGUKLÚBBUR var nýlega stofnað-
ur í Skagafirði og er opinn jafnt vönum
göngugörpum sem og tilvonandi
göngugörpum. www.ganga.is
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Fimmtudaga
VERSLUN / VERKSTÆÐI
Helluhrauni 4 220 Hafnarfjörður
Sími 555 4900
Allar nánari upplýsingar um þjónustu og vörur á www.rotor.is. lang - stærsti húsbílavefurinn
Viðgerðir Kæliskápar Reiðhjólagrindur Ferðasalerni Fortjöld
Húsbílaþjónusta og fylgihlutir í ferðalagið
Allt í húsbílinn...
...í settum fyrir handlagna
Rótor ehf býður upp á viðgerðaþjónustu
á rafbúnaði húsbíla og vagna ásamt
uppsetningu og tengingu á þeim búnaði
sem við seljum á einu besta
þjónustuverkstæði landsins.
Gasmiðstöðvar
1900 - 2800W
Vatnshitarar
13L gas / 220V
Sólarsellusett í úrvali.
Afgas og ketilkerfi
Sóthlið
Soot remover
Afgas og ketilkerfi
Vatnshlið
OBWT-3 Organic
OBWT-4 Organic
Þilfar og skrokkur
Navalan rust
Converter
Rust remover
Kjölfesta, sjór
Seaclean
Navalan 402
Eimarar
Liquivap
Descaling liquid
Vélarúmsbotn
Unclean break
Kælivatn véla
NCLT
Colorcooling
Loftkælir
( túrbína )
Air cooler cleaner
Vesturhrauni 1 - 210 Garðabæ
Sími 535 5850 - www.framtak.is
E F N A V Ö R U R
skipavörur og varahlutaþjónusta
Þrif
Örhreinsir
Freyðigljái