Fréttablaðið - 31.03.2010, Qupperneq 39
miðvikudaginn 31. mars 2010 7 |
Lögfræðingurinn Eva H. Baldursdóttir er 27 ára og umhverfi s-
verkfræðineminn Kristín Soff ía Jónsdóttir er 28 ára. Þær skipa
sæti númer 9 og 15 á lista Samfylkingarinnar og hafa áhuga á
atvinnumálum ungs fólks og áhyggjur af atvinnuleysi ungs fólks.
Doði er ekki í boði!
Eva: Neikvæðar afl eiðingar at-
vinnu leysis koma verst niður á
ungu fólki. Það er áfall fyrir marga
að hefj a starfsævina í atvinnuleysi
og oft hefur fólk slæma reynslu af
framhaldsskólakerfi nu. Það ætti
því að leggja allt kapp á að styðja
ungt fólk til náms og vinnu eða
með námskeiðum og ráðgjöf.
Kristín Soffía: Við þurfum að
spyrja okkur: Af hverju hverfur
ungt fólk í stórum stíl frá fram-
haldsnámi? Getum við nýtt betur
frístundamiðstöðvarnar í hverf-
unum til að styðja við ungmenni
16 ára og eldri? Borgin ber áfram
ábyrgð á ungu fólki eftir að grunn-
skóla lýkur.
Eva: Svaranna er líka að leita í
grunn skólanum og hvernig við
skipuleggjum námið þar.
Hefðbundið bóknám getur aldrei
hentað öllum. Það þarf að verða
vitundarvakning um fj ölbreytt
nám við hæfi hvers og eins.
Kristín Soffía: Þegar atvinnu-
leysi meðal ungs fólks er svona
mikið verðum við að þora að fara
• Kristín Soff ía stundar sjósund
• Kristín Soff ía borðar hamborgara að minnsta
kosti tvisvar í viku
• Kristín Soff ía getur tengt rafmagn, skipt um
bremsuklossa og smíðað varmavél
• Kristín Soff ía var einu sinni með hanakamb
• Eva er jafnréttissinni inn að beini og trúir því að
stjórnmál, skipulag og kerfi skorti kvenlegri nálgun
• Eva spilaði bridge á yngri árum og hefur óheilbrigð-
an áhuga á borðspilum og spurningakeppnum
• Eva vill alltaf búa í miðbænum þar sem brakar í
fj ölum og varla sjást veggir fyrir bókum og börnum
„Þegar atvinnuleysi
meðal ungs fólks er
svona mikið verðum
við að þora að fara
nýjar leiðir.“
Síðastliðin þrjú ár hef ég setið í ungmenna-
ráði Kringluhverfi s. Á árlegum borgarstjórn-
arfundi ungmennaráðanna 23. mars talaði
ég um sumarstörf ungmenna. Í því samhengi
kom ég inn á nýlega samþykkt meirihlutans í
Reykjavík fyrir stækkun golfvallar við Korp-
úlfsstaði upp á 230 milljónir. Ég fékk þau svör
að verið væri að standa við gamla samninga en
það vita allir að öll íþróttafélögin hafa þurft að
sætta sig við óuppfyllta samninga vegna krepp-
unnar. Ég fékk líka þau svör á fundinum að við
– unga fólkið – ættum eftir að nota golfvöllinn
mikið. Síðast þegar ég gáði var golf ekki eitt
af stærstu áhugamálum ungmenna. Ungt fólk
hefur áhuga á sumarstörfum og ungt fólk hef-
ur áhyggjur af því að fá enga vinnu hjá
borginni í sumar. Oft er það forsenda
áframhaldandi framhaldsnáms að
ungt fólk nái sér í pening yfi r sumarið.
Af hverju vill borgarstjóri setja 230
milljónir í stærri golfvöll í stað
þess að fj árfesta í framtíð
ungmenna?
Ungt fólk vill búa í borg þar
sem gæluverkefni eru ekki
sett framar hagsmunum
þeirra. Ég og annað ungt
fólk í Reykjavík höfum
fengið nóg af því að far-
ið sé með okkur eins og
annars fl okks íbúa. Þegar ég kynni mér
stefnumál Samfylkingarinnar sé ég ekki
þessa mismunun milli aldurshópa sem
tíðkast hjá meirihlutanum í Reykjavík.
Þess vegna treysti ég Samfylkingunni.
Natan Kolbeinsson,
16 ára Reykvíkingur.
HANNA BIRNA OG GOLFVÖLLURINN
Mánudagskvöldið 23. mars bauð
Dagur B. Eggertsson stórum hópi
ungs fólks heim til sín í stofu til
að heyra raddir ungra Reykvík-
inga. Húsfyllir var á fundinum og
þátt tóku fulltrúar úr stjórnum
nemendafélaga framhaldsskóla
og talsmenn ungliðahreyfi nga
Rauða krossins, KSS og UNICEF.
Góðar umræður sköpuðust um
borgarmálin og margir höfðu
áhyggjur af sumrinu. Fáir voru
komnir með örugga vinnu og allir
voru sammála um að virkja yrði
ungt fólk sem ekki fengi vinnu í
sumar. Margir söknuðu ,,Húss
unga fólksins“ sem var í Austur-
bæjarbíói síðasta sumar og var
vel heppnað. Því miður er ekki
á döfi nni hjá núverandi meiri-
hluta í borginni að endurvekja
Austurbæ. Í stofunni hans Dags
var mikið rætt um hagsmunamál
framhaldsskólanema; forvarnir,
tómstundastarf, samgöngur og
aðkomu ungs fólks að ákvarð-
anatöku, bæði innan sinna skóla
og við stjórn borgarinnar. Okkur
var ofarlega í huga staða stjórn-
málanna og allir voru sammála
um að vekja þyrfti áhuga og auka
lýðræðislega þátttöku ungs fólks
við stefnumótun í borgarmál-
unum. Fundurinn var frábær og
stefnt er á fl eiri fundi svo ungt fólk
geti skipst á skoðunum um mál
sem varða það sjálft. Á persónu-
legum heimafundum með borg-
arfulltrúum og frambjóðendum
er auðvelt að koma hugmyndum
sínum, áhyggjum og ábendingum
á framfæri og þannig sköpum við
betri borg.
Hildur Hjörvar er í stjórn Nemenda-
félags MH og skipar 19. sæti á lista
Samfylkingarinnar
UNGT FÓLK
HEIMA Í STOFU
HJÁ DEGI
nýjar leiðir. Borgin getur gert
átak í starfsþjálfunarverkefnum;
fyrir ungt fólk sem hættir námi,
fyrir nýútskrifaða og fyrir náms-
menn á sumrin. Borgin á líka að
vera brú milli einkafyrirtækja og
unga fólksins og styðja við ung
fyrirtæki sem sinna nýsköpun.
Nýsköpun má ekki tengja bara við
hönnun og hugvit, nýsköpun er
einfaldlega ný tækifæri í atvinnu-
málum.
Eva: Við lifum erfi ða tíma en um
leið áhugaverða. Það eru skarpar
línur milli Sjálfstæðisfl okks og
Samfylkingar í borginni í atvinnu-
málum: Samfylkingin viðurkenn-
ir að stjórnvöld verða að grípa til
virkra aðgerða gegn atvinnuleysi
á meðan Sjálfstæðisfl okkurinn
ypptir öxlum, vill gera sem minnst
og láta markaðinn um þetta.
Kristín Soffía: Það er sama frjáls-
hyggjuhugsunin og kom okkur í
hrunið. Fólk segir að það sé frið-
ur í Reykjavík en doði er ekki það
sama og friður.
Eva: Allt frumkvæði í atvinnu-
málum í Reykjavík er komið
frá Samfylkingunni. Borgin er
fj öltengi og á að koma á samstarfi
og tengslum milli einstaklinga og
fyrirtækja í borginni. Reykjavík
er höfuðborg og henni á að stýra
af krafti, ábyrgð og gleði. Doði er
ekki í boði fyrir Reykjavík.
~ Bjarni Karlsson níu ára gamall
gutti um borð í Akraborginni í
Reykjavíkurhöfn. Á þeim árum var
ísbíltúr niður á höfn hámarkslúxus
og skipsferð tilefni til uppstillingar
á ljósmynd!
Lj
ós
m
yn
d:
O
lg
a A
le
ks
ee
nk
o