Fréttablaðið - 31.03.2010, Qupperneq 54
38 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Kiddi rót er kominn í bæinn
með landsþekkta hamborg-
ara sína. Á nýjum hamborg-
arastað í Mosfellsbæ hefur
hann skráð sögu íslenskra
hljómsveita.
„Þetta eru bestu hamborgarar á
landinu. Ég fer ekkert ofan af því
fyrr en einhver getur afsannað
það!“ segir Kristinn T. Haralds-
son, Kiddi rót, sem opnaði Kaffi
Kidda rót í Mosfellsbænum í gær.
Veitingastaðurinn var lengi í
Hveragerði, en Kiddi segist hafa
hrakist þaðan því eigandi hús-
næðisins hafi sett upp óraunhæfa
leigu. „Ég neitaði að borga svona
háa leigu svo við fórum bara. Við
enduðum hérna við hliðina á Krón-
unni í Mosfellsbæ, þar sem Remax
var, og ég sé ekkert eftir því.“
Kiddi segist vera búinn að fá
alvöru fólk í eldhúsið og boðið er
upp á ýmsar veitingar, meðal ann-
ars hina frægu rómantísku ham-
borgara. „Einn sagði: ef þú finn-
ur ekkert við þitt hæfi, þá ertu nú
bara ekkert svangur. Svo er ég
með heljarmikla sýningu hérna
sem toppar allt,“ segir Kiddi
hreykinn. „Ég gerði samning við
Þjóðarbókhlöðuna og þeir flettu
upp öllum dansleikjaauglýsingum
í Mogganum. Án þess að fatta það
skrifaði Mogginn sögu íslenskra
hljómsveita með þessum auglýs-
ingum. Ég raðaði þessu saman á
40 sentimetra breiðan borða sem
sker salinn í sundur og þú getur
séð ár fyrir ár hvaða hljómsveit-
ir voru í gangi. Fyrsta auglýsing-
in er með Þorgeiri Ástvalds frá
1966 og svo heldur þetta áfram til
ársins 1988. Þorgeir kom hérna
og fékk flassbakk. Það staldra
allir við myndina af honum, ég
held hann sé 14 ára eða eitthvað
á henni. Svo er ég með útklipp-
ur og risamyndir af hljómsveit-
um. Þetta kemur helvíti flott út.
Þetta er rokksögulegur veitinga-
staður!“
Kiddi segir fólk gjörsamlega
týna sér í sýningunni. „Það eru
eiginlega öll bönd hérna, frá
gömludansaböndum og upp úr.
Hingað kom einn frá Vinnueftirlit-
inu. Hann sagði: Ég var nú í hljóm-
sveit í gamla daga. Þú ert ábyggi-
lega ekki með mynd af henni af
því hún var nánast óþekkt. Ég
spurði hvaða hljómsveit það væri
og hann sagðist hafa verið í hljóm-
sveitinni Loðmundi. Ég gat bent
honum á risastóra mynd af hljóm-
sveitinni, svo hann sagði: Ég þarf
ekkert að skoða þetta hjá þér, það
er mynd af mér uppi á vegg!“
drgunni@frettabladid.is
Rokksögulegir hamborgarar
KIDDI RÓT Við rokksögulegar minjar úr Mogganum á Kaffi Kidda rót. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Söngkonan Beyoncé
skemmti sér með eig-
inmanni sínum, tónlist-
armanninum Jay-Z, og
vinum á skemmtistaðn-
um Tao í Las Vegas um
helgina. Söngkonan og
vinir hennar sátu lengi
frameftir og drukku
þó nokkrar flöskur af
kampavíni og skemmtu
sér hið besta. Fyrir
helgi héldu bandarísk-
ir fjölmiðlar því fram
að hjónin ættu von á
sínu fyrsta barni, en
þetta ætti að kveða
þær sögusagnir niður.
„Hún leyfði eiginmanni sínum að njóta sín og hélt sér sjálfri til
hlés, en skemmti sér þó augljóslega vel. Hún var greinilega komin í
glas, enda drukku þau þó nokkuð af kampavíni,“ var haft eftir starfs-
manni staðarins.
Beyoncé í glasi
EKKI BARNSHAFANDI Söngkonan Beyoncé drakk
kampavín og skemmti sér vel með eiginmanni
sínum. NORDICPHOTOS/GETTY
> EKKI FELA SKALLANN
Leikarinn Jeff Goldblum vill að kollegar
sínir í Hollywood hætti að reyna að fela
skallann með hárkollu því almenn-
ingur tekur um leið eftir því. „Ég
held að það sé ekki hægt að
leysa hárvandamál karla. Það
fær þá einungis til að hegða sér
undarlega,“ segir Goldblum,
sem sjálfur er alveg laus við
skalla.
Ástralski leikarinn Sam Worthington fer
með hlutverk í ævintýramyndinni Clash
of the Titans ásamt stórleikurunum Liam
Neeson og Ralph Fiennes. Worthington
sló rækilega í gegn í kvikmynd James
Cameron, Avatar, en þrátt fyrir það seg-
ist hann hafa kviðið því mjög að leika á
móti Neeson.
„Þetta var mjög ógnvekjandi. Hann
er stóri strákurinn og þegar maður fær
að leika með stóru strákunum þá þegir
maður og lærir. Liam er mjög þokkafull-
ur leikari, hann er herramaður og birtist
sem mikið afl á kvikmyndaskjánum. Ég
lærði mjög mikið af því að starfa sam-
hliða honum. Maður fylgist vel með því
sem hann gerir og hann er einnig örlát-
ur á góð ráð. Það sama má segja
um Ralph Fiennes. Samanlagt hafa
þeir komið að næstum hundrað kvik-
myndum, þannig að fyrir byrjanda
eins og mig var þetta afar lær-
dómsríkt,“ sagði Worthington í
viðtali við tímaritið Collider.
Leikarinn efnilegi seg-
ist jafnframt reyna að setja
nokkuð af sjálfum sér í
hverja persónu sem hann
leikur, á þann hátt verði þær
trúverðugri. „Starf leikarans
er að sjá til þess að áhorfand-
inn fái peninganna virði. Það
er mitt starf.“
Lafhræddur við Liam Neeson
Adam Lambert, stjarnan úr American Idol,
er orðinn þreyttur á að tala um vin-
konu sína, Lady Gaga, í viðtölum.
Stutt er síðan hann sagðist hafa
spjallað við hana yfir viskíglasi
og eftir það hafa fjölmiðlar vilj-
að vita meira um vináttu þeirra.
„Ég var að ljúka við þriðja
þýska viðtalið mitt þar
sem mér var sagt að ég
hefði lýst því yfir að ég
væri karlkyns útgáf-
an af Lady Gaga. Það
myndi ég aldrei segja.
Ég er Adam Lambert,“
sagði hann á Twitter-
síðu sinni. „Auðvitað er
ég aðdáandi hennar og
ég ber mikla virðingu
fyrir henni. Sviðsfram-
koma okkar beggja er
ættuð úr leikhúsinu
en við erum gjörólík-
ar manneskjur,“ sagði hann og hélt áfram:
„Fyrsta spurningin hjá alltof mörgum frétta-
mönnum tengist Gaga. Þó að mér þyki vænt
um hana er þetta orðið þreytandi. Mig langar
frekar að tala um mína tónlist og ég er viss
um að hún er á sama máli.“
Lambert hefur einnig beðið frétta-
menn um að hætta að spyrja sig
um hvernig það var að hitta Mad-
onnu, hvort hann hafi verið beð-
inn um að syngja með Queen og
hvort hann hafi kysst söngkon-
una Keshu. „Mér finnst gaman að
fara í viðtöl og ég er ekkert pirr-
aður yfir því en ég vona bara að
með þessum skilaboðum mínum
fækki þessum spurningum.“
Næsta útgáfa Lamberts verður
endurhljóðblönduð EP-plata og er
hún væntanleg í næsta mánuði.
Vill ekki tala um Lady Gaga
EFNILEGUR Sam Worthing-
ton fer með hlutverk í kvik-
myndinni Clash of the Titans
ásamt Liam Neeson.
NORDICPHOTOS/GETTY
AVATAR Sam
fór með annað
aðalhlutverkið í
myndinni Avatar.
LADY GAGA Drakk viskí
með Adam Lambert.
ADAM LAMBERT
Idol-stjarnan nennir
ekki lengur að tala
um vinkonu sína,
Lady Gaga.
Páskatúr 2010
31.3. - Breiðin Akranesi. Forsala á Breiðinni frá 16-18 í dag.
2.4. - Aldrei fór ég suður Ísafirði. 2.4. - Edinborgahúsið Ísafirði.
3.4. - Félagsheimilið Hvammstanga.
4.4. - Spot Kópavogi. Forsala á Spot alla helgina.