Fréttablaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 59
MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010
Tónlistarmaðurinn Gímaldin og
hljómsveit hans halda tónleika á
Rosenberg þriðjudaginn 6. apríl.
Tilefnið er útgáfa þriðju sólóplötu
hans og þeirrar fyrstu í átta ár,
Sungið undir radar.
„Þetta er unnið upp úr sarpin-
um sem safnaðist þegar ég var í
Rússlandi,“ segir Gímaldin, sem
heitir réttu nafni Gísli Magnús-
son. Hann flutti heim frá Rúss-
landi fyrir ári, eftir að hafa dval-
ið þar í tæp fjögur ár við nám í
svæðafræði og rússnesku. „Þessi
tími gaf vel af sér því efnið sem
er til kemst á fjórar plötur og
tvær eru þegar komnar út,“ segir
hann og á þar við nýju plötuna og
tíu laga leyniplötu sem fylgir í
kaupbæti með geisladiska-útgáfu
hennar.
Sungið undir radar, sem kemur
einnig út á netinu, hefur að geyma
rólegheita popprokk eins og heyrist
í laginu Ljúlja sem Lára Sveinsdótt-
ir syngur. Hægt er að hlusta á það á
síðunni Gimaldin.com. Með Gímald-
in spila á tónleikunum á Rosenberg
gítarleikarinn Gísli Már og tromm-
arinn Þorvaldur Gröndal. Lög af
nýju plötunni verða ekki flutt held-
ur efni af næstu plötu á eftir. „Þetta
tríó er að taka upp annað efni og við
ætlum að spila það, því þetta band
sem tók upp poppplötuna var aldrei
starfrækt. Kannski, þegar við kynn-
um næstu plötu, spilum við lög af
þessari,“ segir Gímaldin. - fb
Fyrsta sólóplata
Gímaldíns í átta ár
Á ÆFINGU Tónlistarmaðurinn Gímaldin og hljómsveit hans á æfingu fyrir tónleikana
á Rosenberg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
400.000.000
+2.000.000.000
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fjögur í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
Tvöfaldur fyrsti vinningur stefnir
í 400 milljónir og Ofurpotturinn
stefnir í 2.000 milljónir.
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 31. MARS 2010
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
Tvöfal
dur
1. vinn
ingur
Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðskona í fótbolta stendur sig
frábærlega og skoraði bæði mörkin í landsleiknum gegn Serbum