Fréttablaðið - 31.03.2010, Side 70
54 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
Tökulið bandaríska sjónvarpsþáttarins Bachelor-
ette er komið til Íslands. Fram undan eru nokkrir
tökudagar þar sem piparmeyjan, Ali Federtowsky,
hittir nokkra álitlega piparsveina og deilir með
þeim fögrum stundum í íslenskri náttúru. „Ég get
ekkert tjáð mig um þetta mál,“ segir Einar Sveinn
Þórðarson hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus,
sem sinnir tökuliðinu meðan á dvöl þess stendur.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur
það komið Íslendingunum á tökustað eilítið á
óvart hversu umfangsmikið þetta verkefni er. Öll
hers ingin gisti á Hotel Nordica í fyrradag og svo
hófst vinnan fyrir alvöru. Ekki var enn búið að
fljúga yfir eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi en
eftir því sem Fréttablaðið kemst næst stendur það
til. Bandaríkjamennirnir gætu vart verið heppn-
ari með veður því þótt í kortunum sé kalt loft þá er
bæði spáð lygnu og björtu veðri við gosstöðvarnar.
Ali Fedotowsky tók þátt í síðustu þáttaröð
Bachelor en hafnaði sjálf rós frá þáverandi pipar-
sveini, Jake Pavelka, og tilkynnti að hún hygðist
einbeita sér enn frekar að vinnu sinni hjá Face-
book. Hún hefur hins vegar sagt upp þeirri vinnu
og hyggst leita að ástinni, meðal annars á Íslandi.
Fyrsti sýningardagurinn á þáttunum í Bandaríkj-
unum er 24. maí. - fgg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. slitna, 6. frá, 8. krá, 9. dýra-
hljóð, 11. nudd, 12. raun, 14. plata,
16. tveir eins, 17. hár, 18. umfram, 20.
fæddi, 21. sæla.
LÓÐRÉTT 1. skordýr, 3. í röð, 4. skor-
dýr, 5. traust, 7. hefting, 10. ar, 13.
tala, 15. samtals, 16. efni, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mást, 6. af, 8. bar, 9. urr,
11. nú, 12. reynd, 14. skífa, 16. tt, 17.
ull, 18. auk, 20. ól, 21. unun.
LÓÐRÉTT: 1. maur, 3. áb, 4. sandfló,
5. trú, 7. frestun, 10. ryk, 13. níu, 15.
alls, 16. tau, 19. ku.
„Upp á síðkastið hef ég fengið
eitthvað í áttina að grísku salati.
Það er klassískur morgunmatur
hjá mér.“
Magnús Jensson, formaður Samtaka um
bíllausan lífsstíl.
„Ég er búinn að taka lítinn túr,
prófa uppistand á ensku og hitta
vini mína,“ segir uppistandarinn
Ari Eldjárn.
Ari hélt á dögunum til Lund-
úna þar sem hann tróð upp með
stutt uppistand á nokkrum litl-
um klúbbum í borginni. Hann var
svo staddur á klúbbnum The Com-
edy Store á mánudagskvöld þegar
sjálfboðaliða var boðið að stíga á
svið og skemmta í fimm hrika-
legustu mínúturnar í höfuðborg-
inni. Þá fá áhorfendur í klúbbn um
skotleyfi á skemmtikraftana og
algengt er að þeir séu baulaðir
niður áður en þeir byrja. „Ég rauk
upp á svið,“ segir Ari. „Ég hjólaði
í þá og keyrði í fjórar mínútur.“
Eins og við mátti búast fékk Ari
að finna fyrir því að vera Íslend-
ingur, en hann lét það ekki á sig
fá. „Hann heimtaði að fá Icesa-
ve-peninginn sinn aftur. Ég gaf
honum þúsundkall og hann reif
seðilinn í sundur fyrir fram-
an nefið á mér. Þá tók ég hann í
gegn,“ segir hann.
Ari er í uppistandshópnum Mið-
Ísland og hefur meðal annars náð
að fullkomna Bubba Morthens-
eftirhermu við góðar undirtektir
áhorfenda. Í London hermdi hann
eftir söngvaranum Morrissey með
frábærum árangri − svo góðum að
áhorfendur þökkuðu fyrir sig með
dynjandi lófataki. Honum var svo
vísað af sviðinu þegar fjór-
ar mínútur og 57 sekúnd-
ur voru liðnar, en þá hafði
hann tilkynnt að hann
ætti því miður ekki meira
efni. Áhorfendur urðu afar
óánægðir og bauluðu þegar
starfsmaður sló í gong, sem
gefur til kynna að skemmtikraft-
ar eiga að yfirgefa sviðið. - afb
Ari Eldjárn stóðst prófið í Lundúnum
KOMIN Ali Federtowsky er komin til Íslands ásamt fríðum hópi
piparsveina.
FYNDINN Í LONDON Ari Eldjárn steig á
svið í London og lagði í erfiðar fimm
mínútur.
Bachelorette komin til Íslands
„Ég kveð Regnbogann með sökn-
uði. Ég er búinn að vera þarna í
30 ár og bý yfir mikilli reynslu,“
segir Halldór Ómar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri móttökusviðs
Regnbogans.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að Regnboganum yrði lokað í
sumar ef Sena finnur ekki rekstr-
arstoð undir bíóið og fær ekki
betri leigusamning. Öllu starfs-
fólki hefur verið sagt upp störf-
um á meðan reynt er að greiða úr
rekstrarvandanum. Halldór Ómar
hefur starfað í kvikmyndahús-
inu frá því að það var opnað árið
1980. Honum hefur verið tilkynnt
að hann fái starf í Háskólabíói, ef
Regnboganum verður lokað.
„Þetta er rétt. Björn Sigurðs-
son, rekstrarstjóri hjá Senu, var
að segja mér að mér stendur til
boða að fara í Háskólabíó. Ég vil
gera það,“ segir Halldór, en hann
var staddur í strætó á leiðinni í
Regnbogann þegar Fréttablaðið
náði í hann. „Ég verð í nýjum bún-
ingi og fæ nýtt spjald. Þar stendur
Háskólabíó – framkvæmdastjóri
móttökusviðs.“
Halldór hefur sett svip sinn á
bæjarlífið, enda búinn að taka á
móti gestum í Regnboganum og
rífa af miðum í 30 ár. Hann er þó
spenntur fyrir nýjum starfsvett-
vangi, en gerir eina kröfu áður en
hann yfirgefur Hverfisgötuna: „Ég
verð að láta taka mynd af mér við
Regnbogann þegar hann hættir.“
atlifannar@frettabladid.is
HALLDÓR ÓMAR SIGURÐSSON: KVEÐUR REGNBOGANN MEÐ SÖKNUÐI
Framkvæmdastjóri mót-
tökusviðs færir sig um set
30 ÁRA REYNSLA Halldór Ómar hefur
verið yfirmaður móttökusviðs Regnbog-
ans frá upphafi. Hann færir sig um set
yfir til Háskólabíós nú þegar óvissa er
um framtíð Regnbogans.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hópur aðdáenda
Jónsa úr Sigur Rós
fékk að hlýða á
nokkurs konar gener-
alprufu fyrir tón-
leikaferð hans
um heiminn
sem hefst eftir
viku. Haldnir
voru tónleikar
í myndveri í
London síðasta
föstudagskvöld
og voru þeir
kvikmyndaðir í bak og fyrir. Allir
sem tóku þátt í verkefninu þurftu
að vera með dýragrímur á höfðinu
á meðan Jónsi flutti lögin sín með
aðstoð hljómsveitar sinnar. Tónleik-
arnir stóðu yfir í sjötíu mínútur og
flutt voru öll lögin af nýju plötunni
Go auk nokkurra glænýrra laga.
Ný sundlaug á Hofsósi var vígð á
laugardaginn að viðstöddu
fjölmenni. Sundlaugin er
gjöf athafnakvennanna
Lilju Pálmadóttur og
Steinunnar Jónsdóttur
en einn þeirra sem
hafa verið dug-
legir að taka
sundsprett á
morgnana
er einmitt
eiginmað-
ur Lilju,
Baltasar Kormákur.
Og nýtt ofurband lítur dagsins ljós
um páskana þegar hljómsveitin
Dalvik-All Stars leikur fyrir dansi í
félagsheimilinu Víkurröst laug-
ardagskvöldið 3. apríl. Þeir sem
það skipa eru meðal annars Matti
Matt og Matthías Stefánsson,
oftast kenndir við Papana og Eyþór
Ingi úr Bandinu hans
Bubba. Sá sem
lemur húðirnar er
hins vegar þekkt-
ari sem söngvari
en hann heitir
Friðrik Ómar.
- fb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Hverfisgötu.
2 Hálf öld.
3 Snæfell.