Fréttablaðið - 01.04.2010, Qupperneq 2
2 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
Einar, eru þeir sem tala í
símann undir stýri alveg úti
að aka?
„Já, þeim væri hollara að spara
orðin og einbeita sér að umferð-
inni.“
Ný rannnsókn sýnir að aðeins einn af
hverjum fjörutíu veldur því að aka og tala
í símann samtímis. Einar Magnús Magn-
ússon er verkefnastjóri umferðaráróðurs
hjá Umferðarstofu.
ELDGOS Hollenska fyrirtækið
E.C.A., sem sótt hefur um að fá
að skrá 20 óvopnaðar orrustuþot-
ur á Miðnesheiði, ætlar að bjóða
landsmönnum í útsýnisflug yfir
gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi
eftir hádegi í dag í sérútbúnum
Herkúles-flutningavélum.
Í tilkynningu sem fyrirtækið
sendi frá sér í gærkvöldi segir
að það hafi ekki farið varhluta
af þeirri neikvæðu umræðu sem
gjarnan fylgi fyrirtækjum sem
starfa að hernaði. Ákvörðunin sé
liður í að bæta ímynd fyrirtækis-
ins á Íslandi og eyða tortryggni í
þess garð.
Herkúles-vélarnar eru yfirleitt
notaðar til að flytja hermenn milli
landa. Áætlað er að tvær slík-
ar lendi á Reykjavíkurflugvelli
klukkan 14.30 í dag og fari með
áhugasama í um einnar og hálfr-
ar klukkustundar útsýnisferð yfir
eldgosið. Í tilkynningunni segir
að samtals komist um 250 manns
í vélarnar og er fólk því hvatt til
að mæta tímanlega í flugstöðina.
„Þetta er hrein ögrun yfir
páskahátíðirnar,“ segir Stefán
Pálsson, formaður Samtaka hern-
aðarandstæðinga. „Það er algjör-
lega forkastanlegt að þetta sé
heimilað og við hljótum að krefj-
ast þess að yfirvöld taki í taumana
og við væntum þess að fá Þjóð-
kirkjuna og biskup með okkur í
að mótmæla þessu harðlega.“ Vél-
arnar séu þess utan óskráðar hér
á landi og því vandséð að flugið
standist lög.
Stefán hvetur fólk til að mæta á
Reykjavíkurflugvöll og mótmæla,
og býst við því að hann muni sjálf-
ur verða vopnaður málningu. „Ef
allt um þrýtur munum við svo auð-
vitað reyna að koma í veg fyrir að
vélarnar komist á loft.“ - fa
Hollenska hernaðarfyrirtækið E.C.A. reynir að bæta ímynd sína á Íslandi við litla gleði hernaðarandstæðinga:
E.C.A. býður upp á gosflug í herflugvélum
ELDGOSIÐ Þeir sem nýta sér boð E.C.A.
eiga mikið sjónarspil í vændum.
FRÉTTABLAÐIÐ / VLHELM
VIÐSKIPTI MP Banki tapaði tæpum
1,2 milljörðum króna í fyrra, sem
er talsverður viðsnúningur frá
rúmlega 860 milljóna króna hagn-
aði fyrir tveimur árum. Efnahags-
aðstæður, 33 prósenta samdráttur
tekna, tiltekt í bókhaldinu og kostn-
aðarsöm uppbygging á viðskipta-
bankastarfsemi frá grunni lituðu
bækur bankans.
Gunnar Karl Guðmundsson, for-
stjóri MP Banka, segir reksturinn
traustan þótt varúðarniðurfærsla á
lánasafni bankans hafi sett skarð í
afkomuna. „Menn voru í góðri trú .
En svo kom í ljós að viðskiptavinir
bankans höfðu orðið fyrir enn frek-
ari búsifjum vegna efnahagshruns-
ins og því varð að taka enn frekari
afskriftir,“ segir hann.
Niðurfærslan, sem ekki felst í
afskrift lána, hljóðar upp á 1.350
milljónir króna og tilkomin vegna
þarsíðasta árs. Þetta jafngildir 35
prósentum af lánasafni bankans.
„Við teljum að afskriftirnar nú séu
orðnar fullnægjandi,“ segir hann
en viðurkennir að ekkert megi úti-
loka. Annað högg á íslenskt efna-
hagslíf geti haft í för með sér enn
frekari niðurfærslu.
Eftir því sem næst verður komist
var tæpur helmingur þeirra útlána
sem MP Banki færði inn á varúðar-
reikning lán til eignarhaldsfélaga.
Umfangsmesta lánið sem fært var
niður var til félags Björg ólfs Guð-
mundssonar, formanns banka-
stjórnar Landsbankans, vegna
kaupa hans á breska Úrvalsdeild-
arliðinu West Ham. MP Banki tók
félagið yfir ásamt Straumi og Byr
eftir að veldi Björgólfs hrundi
haustið 2008 og á enn hlut í því.
Gunnar vill ekki tjá sig um lánið
vegna West Ham en segir lán til
eignarhaldsfélaga ekki slæm út af
fyrir sig.
Meira máli skipti hvernig trygg-
ingar hafi verið á bak við þau
almennt. „Lán til eignarhaldsfélaga
eru yfirleitt mjög góð og greitt af
þeim,“ segir hann.
jonab@frettabladid.is
MP Banki tapar fé
vegna West Ham
Lán vegna kaupa Björgólfs Guðmundssonar á breska úrvalsdeildarliðinu West
Ham hefur verið fært verulega niður í bókum MP Banka. Forstjórinn segir
reksturinn traustan þrátt fyrir tap upp á rúman milljarð á síðasta ári.
GUNNAR KARL Ein umfangsmesta varúðarniðurfærsla MP Banka í fyrra var lán vegna
kaupa á West Ham. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMKEPPNISMÁL Samkeppnisstofnun hefur sett bönk-
um ítarleg skilyrði vegna yfirtöku þeirra á fyr-
irtækjum sem starfa á mikilvægum samkeppnis-
mörkuðum.
Skilyrðin eru sett til að draga úr samkeppnisrösk-
un sem stafað getur af eignarhaldi banka á viðkom-
andi fyrirtækjum.
Helstu skilyrði eru þau að bönkunum verða sett-
ar þröngar tímaskorður til að selja fyrirtækin aftur.
Sölufresturinn verður ákveðinn fyrir hvert tilvik,
og verður ekki gefinn upp til að skekkja ekki skil-
yrði til sölu.
Bankarnir eiga enn fremur að tryggja að yfirtek-
in fyrirtæki starfi sem sjálfstæðir keppinautar á
markaði. Til að tryggja það skal meirihluti stjórnar-
manna koma utan bankans.
Skilyrðin eru sett með ákvörðunum sem varða
yfirtöku bankanna á þremur fyrirtækjum. Í fyrsta
lagi yfirtöku Vestia, eignarhaldsfélags Landsbank-
ans, á Teymi. Í öðru lagi ar fjallað um yfirtöku
Íslandsbanka á Ingvari Helgasyni og B&L. Í þriðja
lagi er fjallað um yfirtöku Arion banka á Högum.
Samkeppniseftirlitið telur að framangreindar
yfirtökur raski samkeppni og að nauðsynlegt sé því
að setja þeim skilyrði sem ætlað er að vinna gegn
þeirri röskun. Hafi bankarnir fallist á að hlíta þeim
skilyrðum sem sett eru fram í viðkomandi ákvörð-
unum. - bj, jhh
Samkeppniseftirlitið setur bönkunum ítarleg skilyrði við yfirtökur á fyrirtækjum:
Fá stuttan tíma til að selja
SELJA Haga, móðurfélag Bónuss, Hagkaupa, 10-11 og fleiri
verslana, nema í takmarkaðan tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞÝSKALAND, AP Súkkulaði gæti
minnkað líkurnar á hjartasjúk-
dómum, samkvæmt nýrri þýskri
rannsókn. Hún leiddi í ljós að
þeir sem borða lítinn skammt af
súkkulaði á hverjum degi gætu
minnkað líkurnar á að fá hjarta-
áfall eða heilablóðfall um allt að
40 prósent.
Þýsku vísindamennirnir fylgd-
ust með 20 þúsund manns um átta
ára skeið. Þeir komust að því að
það væru 39 prósenta lægri líkur
að þeir fengju hjartaáfall eða
heilablóðfall sem borðuðu að jafn-
aði sex grömm af súkkulaði á dag.
Aðrar rannsóknir hafa gefið
svipaðar niðurstöður en engin
þeirra hefur náð yfir jafn langan
tíma og þessi. Vísindamenn varar
hins vegar við óhóflegu súkkulaði-
áti. Það geti leitt til þyngdaraukn-
ingar sem auki líkurnar á hjarta-
sjúkdómum. - bs
Súkkulaðiunnendur gleðjast:
Súkkulaði gott
fyrir hjartað
PÁSKAEGG Súkkulaði í smáum skömmt-
um getur verið gott fyrir hjartað en var-
ast skal að háma það í sig í stórum stíl.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vottaði Medvedev samúð
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, sendi Dimitry Medvedev,
forseta Rússlands samúðarkveðjur
sínar og þjóðarinnar allrar í gær, mið-
vikudag, vegna hryðjuverkaárásanna í
Moskvu á mánudag.
FORSETAEMBÆTTIÐ
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra hefur
falið Umhverfisstofnun að kanna
hvernig staðið hefur verið við tut-
tugu skilyrði
sem umhverf-
isráðuneytið
setti á sínum
tíma í úrskurði
um umhverf-
isáhrif Kára-
hnjúkavirkj-
unar, og ætlað
var að draga úr
umhverfisáhrif-
um virkjunar-
innar.
Svandís segir að sér hafi borist
ábendingar um að vanhöld hafi
verið á að staðið hafi verið við
skilyrðin. Ábendingarnar snúi
að lónstæðinu, sandfoki og rofi í
náttúrunni.
Landsvirkjun sendi frá sér yfir-
lýsingu vegna þessa í gærkvöld. Í
henni kom fram að Landsvirkjun
telur sig í einu og öllu hafa upp-
fyllt nefnd skilyrði frá upphafi
framkvæmda. „Finnist eitthvað
athugavert mun fyrirtækið bæta
þar úr,“ segir þar. - sh
Umhverfisráðherra:
Lætur kanna
efndir við Kára-
hnjúkavirkjun
SVANDÍS SVAVARS-
DÓTTIR.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Berti G ÍS frá
Suðureyri er enn þá aflahæsti
smábáturinn undir 10 brúttó tonn
það sem af er mars en bátarnir
á Vestfjörðum hafa róað lítið að
undanförnu. Þetta kemur fram á
vef Bæjarins besta.
Berti G ÍS hefur veitt 33 tonn í
tíu róðrum það sem af er mánuð-
inum. Í öðru sæti er Björg Hauks
ÍS frá Ísafirði með 29 tonn í átta
róðrum. Bátarnir veiða báðir á
línu.
Berti G frá Suðureyri aflahár:
Veiddi 33 tonn
í tíu róðrum
Eigið fé MP Banka nam í lok síðasta árs fimm milljörðum króna samanborið
við 6,6 milljarða í lok árs 2008.
Skuldir og skuldbindingar nám 57,5 milljörðum króna, sem er 23 prósenta
aukning á milli ára.
Eiginfjárhlutfallið nam 14,9 prósentum en var 22,3 prósent ári fyrr. Almennt
krefst Fjármálaeftirlitið sextán prósenta eiginfjárhlutfalls sparisjóða en tólf
prósenta hjá viðskiptabönkum.
Lykiltölur úr ársreikningi MP Banka
SPURNING DAGSINS
DETTUR ÞÚ
Í LUKKUPOTTINN
Útivistarleikur
Homeblest & Maryland
Ef þú kaupir Homeblest eða
Maryland kexpakka gætir þú unnið
glæsilegan vinning.
3 x 50.000 kr. úttektir
48 x 15.000 kr. úttektir
frá Útilífi, Intersport eða Markinu.
Leynist vinningur í
pakkanum þínum!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
40
48
1