Fréttablaðið - 01.04.2010, Blaðsíða 6
6 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
ELDGOS Veginum í Þórsmörk var
lokað í gærkvöldi eftir að ný gos-
sprunga opnaðist á gossvæðinu á
Fimmvörðuhálsi í gær. Metið verð-
ur í dag hvort fólki verður hleypt
að gosinu aftur.
Sjónarvottur lýsti því hvernig
fólk hefði verið í aðeins 30 til 40
metra fjarlægð frá sprungunni
þegar hún opnaðist.
„Fólk sem var svona nálægt var í
stórhættu,“ segir Víðir Reynisson,
deildarstjóri almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra. „Þetta er góð
áminning fyrir alla, að halda sig í
meiri fjarlægð frá eldstöðinni.“
Víðir segir að byggð nærri Mýr-
dalsjökli sé ekki talin í hættu vegna
nýju gossprungunnar. Hún sé ekki
undir jökli og því gildi svipað um
hana og fyrri sprunguna, hún valdi
ekki flóðum.
Breytingar á eldgosinu á Fimm-
vörðuhálsi gætu sett í uppnám
áform mikils fjölda fólks sem ætl-
aði að freista þess að berja gosið
augum um páskahelgina.
Víðir segir að staðan verði metin
snemma í dag. Komi í ljós að nýja
sprungan hafi lítið breyst yfir nótt-
ina séu góðar líkur á því að fólki
verði hleypt að gosinu á ný.
Hann hvetur fólk sem hyggst
skoða gosið til að leggja ekki af
stað fyrr en ljóst sé að opið verði
fyrir umferð að gosstöðinni.
Nýi gígurinn virðist fullt eins
kröftugur og fyrri gígurinn, sem
bendir eindregið til þess að kvik-
an sem þar brýst upp á yfirborðið
sé úr sömu kvikuæð, segir Magn-
ús Tumi Guðmundsson, prófess-
or í jarðeðlisfræði við Háskóla
Íslands.
Hann segir allt benda til þess að
kvikuæðin hafi klofnað á litlu dýpi,
enda hafi skjálftamælar Veður-
stofu Íslands ekki sýnt neina breyt-
ingu þegar sprungan opnaðist.
„Það er engin ástæða til að ætla
að gosið haldi áfram að fara í vest-
ur, en það eru engin merki um að
þetta sé að minnka,“ segir Magn-
ús Tumi.
Hann brýnir fyrir fólki að fara
varlega, opni lögreglan veginn
í Þórsmörk aftur. „Það er alltaf
hættulegt að vera við gosstöðvar,
fólk þarf að hafa allan vara á sér,“
segir Magnús Tumi.
„Margir hafa farið allt of óvar-
lega þarna, þetta er eins og að
keyra öfugum megin yfir blind-
hæð í myrkri, oftast sleppur þú en
ekki alltaf.“
Hraungos líkt og gosið á Fimm-
vörðuhálsi eru þó yfirleitt stöðugri,
og því hættuminni en önnur gos.
Magnús Tumi segir að þeir sem
slasist vegna slíks goss eigi yfir-
leitt mesta sök á því sjálfir.
brjann@frettabladid.is
Ný gossprunga á Fimmvörðuhálsi
999 kr/pk.
Tilboð gildir meðan birgðir endast Birt með fyrirvara um prentvillur
HUMAR 1 kg
SKELBROT
m
ar
kh
on
nu
n.
is
Skuldar þín fjölskylda bílalán
eða íbúðarlán í erlendri mynt?
JÁ 45,3%
NEI 54,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Talar þú í farsíma undir stýri
án þess að nota handfrjálsan
búnað?
Segðu þína skoðun á visir.is
SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, gaf út reglu-
gerð í gær um fyrirkomulag makrílveiða.
Rauði þráðurinn er krafan um að hámarks
verðmæti náist úr þeim 130 þúsund tonnum
sem leyfilegt er að veiða. Til þess verður ný
reglugerð gefin út síðar sem mun kveða á
um vinnsluskyldu á tilteknu hlutfalli makríl-
aflans.
Úthlutun aflans verður með þeim hætti að
112 þúsund tonnum verður úthlutað til þeirra
útgerða sem hafa aflað sér veiðireynslu á
undanförnum árum. Önnur skip, og er þar
farið eftir skipastærð, geta sótt um leyfi til
veiðanna og verða til úthlutunar fimmtán
þúsund tonn til þeirra. Auk þess verður þrjú
þúsund tonnum ráðstafað til skipa sem fyr-
irhuga veiðar á línu og handfæri, í net eða
gildrur, samkvæmt leyfi Fiskistofu.
Tekið er fram í reglugerðinni að fram-
sal aflaheimildanna er óheimilt og ekki er
verið að úthluta varanlegum heimildum til
fleiri ára. Eins að reglugerðin gefi ekki mynd
af framtíðarfyrirkomulagi veiðanna enda
sé ekki fyrir hendi samkomulag við önnur
strandríki um fyrirkomulag veiðanna.
Í reglugerðinni er tekið fram að eðlilegt
sé að veita fleirum aðgang að veiðunum en
hafi stundað þær síðastliðin ár. Hins vegar
verði mögulegt að endurúthluta vannýttum
heimildum svo unnt verði að veiða það
heildarmagn sem heimilað er. - shá
Meirihluta kvótans ráðstafað til skipa sem hafa aflað sér veiðireynslu:
Ný skip fá hlutdeild í makríl
■ 112 þúsund lestum verður ráðstafað til skipa
sem stunduðu makrílveiðar í flottroll eða nót á
árunum 2007, 2008 og 2009 og skal skipt hlut-
fallslega miðað við heildarafla skipanna á árinu
2007, 2008 og til og með 11. júlí 2009.
■ Þrjú þúsund lestum skal ráðstafað til skipa
sem fyrirhuga veiðar á línu eða handfæri, í net
eða gildrur samkvæmt leyfi Fiskistofu.
■ Fimmtán þúsund lestum skal ráðstafað til
skipa, sem hvorki falla undir flokk 1 eða 2 en
sótt hafa um leyfi til makrílveiða eigi síðar en
30. apríl. Ráðstöfun aflamagns samkvæmt þess-
um lið verður tengd skipastærð. Magn í lestum
mun ráðast af fjölda umsókna, en ekkert skip
fær þó meira en þúsund lestir.
Ráðstöfun 130.000 tonna
makrílkvóta
Hrunagil
Hvannárgil
Ný sprunga
Eldri sprunga
Gönguleið
KJARAMÁL Viðræður unglækna
og forsvarsmanna Landspítalans
runnu út í sandinn í gærkvöldi og
ekkert benti til annars en að ríf-
lega sextíu læknar myndu leggja
niður störf á miðnætti.
Læknarnir eru óánægðir með
nýtt vaktakerfi sem taka átti
gildi í dag og telja að með því sé
þeim gert að vinna mun fleiri
stundir í mánuði en áður.
Framkvæmdastjóri lækninga
á Landspítalanum fullyrti í fjöl-
miðlum í gær að búið væri að
tryggja öryggi sjúklinga ef til
verkfalls kæmi.
Reynt var að koma til móts
við læknana á samningafundi í
gærkvöldi með því að leggja til
stofnun nefndar sem myndi skoða
breytingarnar eftir að þær væru
komin á. Á það var ekki fallist. -sh
Viðræður fóru út um þúfur:
Enn ósamið við
unglækna í gær
STJÓRNSTÖÐ Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, stýrði
aðgerðum frá Stjórnstöð almannavarna í Skógarhlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ferðamenn mega ekki
lengur fara að gosinu
Fólk sem var nærri gossprungunni sem opnaðist á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi
var í stórhættu segir deildarstjóri almannavarna. Byggð stafar ekki hætta af
nýju sprungunni. Margir hafa farið óvarlega nærri gosinu segir jarðfræðingur.
NÝ GOSSPRUNGA Krafturinn í nýju gossprungunni var svipaður og í gígnum sem fyrir var, sem bendir til þess að kvikan sem þar
brýst upp sé úr sömu kvikuæð, segir jarðfræðingur. Nýju sprunguna má sjá hægra megin við fjallið sem myndast hefur í gosinu á
Fimmvörðuhálsi undanfarna tíu daga. MYND/GÍSLI GÍSLASON
Á kortinu má sjá hvar ný sprunga
hefur opnast norðvestan við eldri
sprungu.
KJÖRKASSINN