Fréttablaðið - 01.04.2010, Side 12
1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
Styrkir úr
Pokasjóði
Stjórn Pokasjóðs hefur ákveðið að
auglýsa eftir umsóknum um styrki
fyrir árið 2010.
Frestur til að sækja um styrk úr
Pokasjóði rennur út 15. apríl nk.
Umsóknir skulu fylltar út á
www.poka sjodur.is en þar eru
allar upp lýsingar um sjóðinn,
fyrir komulag og styrki.
Í ár hefur verið ákveðið að ein-
skorða styrki við tvö málefni, þ.e.
mannúðar mál og umhverfismál.
Bæði einstaklingar og félagasamtök
geta sótt um styrki úr sjóðnum.
UMSÓKNARF
RESTUR
RENNUR ÚT 1
5. APRÍL
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
Opnunartímar um páskana og síma verslana má finna á www.BYKO.is
Frábært verð og vöruúrval
í timburverslunum BYKO!
248kr./lm
Vnr. 0058254
Girðingaefni
Fura afhefluð 22x95 mm,
A-gagnvarið.
Pallaefni
0058324 Fura alhefluð 27x95 mm A-gagnvarin 304 kr./lm.
0058504 Fura alhefluð 45x95 mm A-gagnvarin 418 kr./lm.
0058506 Fura alhefluð 45x145 mm A-gagnvarin 609 kr./lm.
0059954 Fura alhefluð 95x95 mm A-gagnvarin 861 kr./lm.
ÓDÝRT
ÓDÝRT
KLÁRAÐU PALLINN
FYRIR SUMARIÐ
UMHVERFISMÁL Beita þarf afbrigðum eigi að taka frum-
varp um rammaáætlun um verndun og nýtingu á dag-
skrá Alþingis á yfirstandandi þingi. Í gær var útbýt-
ingardagur, en þá þarf að leggja fram þau frumvörp
sem lögð verða fyrir þingið.
Frumvarpið hefur verið í þingflokki Vinstri grænna
frá því í desember og hefur verið nokkuð umdeilt.
Heimildir Fréttablaðsins herma að umþóttunartím-
inn hafi farið fyrir brjóstið á Samfylkingarfólki, sem
vilji ljúka málinu. Nokkuð hafi kastast í kekki á milli
stjórnarflokkanna, en á síðustu dögum hafi samvinn-
an orðið mun meiri. Samstaða sé að nást um megin-
línur og vinnan gangi vel.
Mikillar tortryggni hefur gætt í hópi náttúruvernd-
arsinna gagnvart hugmyndunum. Það er ekki síst sú
staðreynd að meta eigi náttúruperlur eins og Geysi
og Gullfoss. Þeir treysta því illa að það sé einungis
gert til að fá viðmið fyrir önnur svæði, líkt og fullyrt
er. Raunar má segja að sú tortryggni sem ríkt hefur
undanfarin ár í þessum málaflokki endurspeglist í
vinnunni.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist bjart-
sýn á að vinnunni ljúki á næstunni. Kynningarferli á
áætluninni á að ljúka 19. apríl, en sá frestur verður
líklega framlengdur um tvær vikur. Stefnt er að því
að frumvarpið hljóti afgreiðslu fyrir þann tíma. - kóp
Frumvarp um rammaáætlun hefur verið í þingflokki VG síðan í desember:
Rammaáætlun þarf afbrigði
FYRSTI ÁFANGI KYNNTUR Fyrsti áfangi rammaáætlunar var
kynntur árið 2007. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík,
stýrir vinnuhópi um áætlunina. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti hefur leyft
olíuboranir um 80 kílómetra út
af ströndum Virginíu, þvert gegn
tveggja áratuga gömlu banni við
olíuborun út af ströndum Banda-
ríkjanna. Hann hafnar þó beiðn-
um um nýjar boranir á nokkrum
stöðum í Alaska.
Með því að leyfa boranir
skammt út af ströndum Banda-
ríkjanna hunsar hann ráðlegging-
ar umhverfisverndarsinna, sem
hafa barist hart fyrir því að bann-
ið verði látið gilda áfram.
„Þetta er ekki
ákvörðun sem
hefur verið mér
auðveld,“ sagði
Obama í gær
þegar ha nn
kynnti málið, og
reyndi að svara
strax hávær-
um andmælum
sem hann bjóst
við að fá frá
umhverfisverndarsinnum.
Hann sagðist hafa skoðað málið
vandlega í meira en ár og kom-
ist að þessari niðurstöðu með
hliðsjón af gríðarlegri orkuþörf
landsmanna, nauðsyn þess að
skapa ný störf og styrkja sam-
keppnishæfi bandarískra fyrir-
tækja.
„Að átta sig ekki á þessum
veruleika hefðu verið mistök,“
sagði hann.
Hann fór heldur ekki dult með
að með þessari ákvörðun væri
hann að tryggja sér stuðning rep-
úblikana við viðamikið loftslags-
frumvarp sem bíður afgreiðslu
þingsins. - gb
Obama heimilar olíuboranir út af ströndum Bandaríkjanna:
Rýfur tveggja áratuga bann
BARACK OBAMA