Fréttablaðið - 01.04.2010, Síða 26
26 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
SUSAN BOYLE ER 49 ÁRA Í DAG.
„Ég hef alltaf verið mús-
íkölsk. Ég öskraði þegar
ég var smábarn, söng í
hárbursta sem krakki og í
sturtunni.“
Skoska söngkonan Susan
Magdalena Boyd sló í gegn í
breska raunveruleikaþættin-
um Britain Got Talent þegar
hún söng lagið „I dreamed a
dream“ úr söngleiknum um
Vesalingana.
MERKISATBURÐIR
1855 Einokunarverslun Dana
var aflögð á Íslandi.
1873 Hilmar Finsen varð fyrsti
landshöfðingi Íslands.
1891 Wrigley-fyrirtækið var
stofnað í Chicago.
1896 Álafoss hóf ullarvinnslu.
1924 Adolf Hitler var dæmd-
ur í fimm ára fangelsi
fyrir valdaránstilraun í
München.
1936 Alþýðutryggingalög gengu
í gildi á Íslandi.
1984 Söngvarinn Marvin Gaye
var skotinn til bana af
föður sínum.
2001 Slobodan Miloševic, fyrr-
verandi forseti Júgóslavíu,
gaf sig fram við sérsveit-
ir lögreglu.
Tölvufyrirtækið Apple var stofnað
af Steve Jobs, Steve Wozniak og
Ronald Wayne þennan dag árið
1976. Apple er bandarískt raf-
tækjafyrirtæki með höfuðstöðvar
í Cupertino í Kaliforníu. Apple
þróar, framleiðir og selur meðal
annars borðtölvur, fartölvur, marg-
miðlunarspilara og síma.
Steve Wozniak handsmíðaði
Apple I-tölvurnar í stofunni hjá foreldrum Steve
Jobs. Tölvurnar voru kynntar almenningi í Home-
brew Computer Club sem var áhugamannafélag
um tölvur sem starfaði í Kísildal. Alls voru smíð-
aðar 200 Apple I-vélar sem innihéldu móður-
borð (með örgjörva, vinnsluminni og skjákorti).
Þær komu á markað árið 1984.
Fyrirtækið hét Apple Computer
Inc. fyrstu 30 árin. Hinn 9. janúar
2007 var orðinu „computer“ hins
vegar sleppt úr nafninu til þess
að endurspegla breyttar áherslur
þar sem fyrirtækið einblíndi ekki
lengur á einkatölvuna heldur
einnig annars konar tækjabúnað
og sölu á afþreyingarefni. Meðal
annarra þekktra vörumerkja Apple má nefna
margmiðlunarspilarann iPod sem kom fyrst á
markað 2001, farsímann iPhone sem kom á
markað í júní 2007 og nýjasta viðbótin er iPad
Apple var sett á hlutabréfamarkað hinn 3. janúar
árið 1977.
ÞETTA GERÐIST: 1. APRÍL 1976
Apple-fyrirtækinu komið á fót
40 ára afmæli
Fertugur er í dag
Hrólfur Hjaltason
sagnhafi Víðimel 36. Boðið verður upp
á koníak og kleinur milli kl. 17 og 20 á
Fimmvörðuhálsi. Allir velkomnir, allar
g jafi r afþakkaðar nema í peningum.
Afhendist í Icesave sjóð Íslands eða
beint til alþjóða Gjaldeyrissjóðsins.
70 ára afmæli
Hafsteinn Reykjalín
Jóhannesson
Er 70 ára í dag, 1. apríl ´10. Hann er fæddur
og uppalinn á Hauganesi v/Eyjafjörð, en
lengst af búið í Kópavogi. Hann er mikill
félagsmálamaður og nýtur þess, svo og einn
af þessum lífslistamönnum sem fl est geta
ef reyna. Hann er vélvirkjameistari, vél-
fræðingur, starfaði sem vélstjóri, framkv.
stj., forstjóri og hótelstjóri. Smíðaði sinn
eigin jeppa, sem hann er búinn að eiga í 54 ár. Svo og skúlptúra, haldið
10 olíumálverkasýningar sjálfur eða með öðrum. Einn af stofnendum
Fél. Frístundamálara. Samið texta og á nú 10 tónverk við eigin texta.
Einn af stofnendum Rótarýklúbbsins Þinghóll. Er í skipulagsnefnd
Kópavogs, svo stiklað sé á nokkrum atriðum. Í tilefni þessara tímamóta
býður hann ætting jum og vinum að eiga dagstund með sér í Glersalnum
Salavegi 2, Kóp. í dag, 1. apríl, milli kl. 16.00 og 19.00. Ekkert gabb núna.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Benedikt Þorvaldsson
húsasmiður, frá Hólmavík, Hrafnistu,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 30. apríl. Jarðarför auglýst síðar.
Guðbrandur Benediktsson Guðlaug Þorkelsdóttir
Þorvaldur Helgi Benediktsson Sigurlaug Gísladóttir
Birgir Benediktsson Sigrún Sigurðardóttir
Sigrún Benediktsdóttir
Steinþór Benediktsson Hildur Guðbjörnsdóttir
og afabörn.
Steingríms Þórðarsonar
frá Ljósalandi í Vopnafirði og
Höllu Eiríksdóttur
frá Eskifirði.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu samúð og hlýhug vegna andláts
foreldra okkar, tengdaforeldra, afa
og ömmu,
Eiríkur Sigríður
Steingrímsson, Sigurjónsdóttir
Þórður Guðbjörg
Steingrímsson, Eysteinsdóttir
Elsa Albína Hans Guttormur
Steingrímsdóttir, Þormar
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju
við andlát elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðlaugar
Sigurjónsdóttur
Hrafnistu Reykjavík, áður Ásvegi 16.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar A-3,
fyrir góða umönnun.
Ólöf Einarsdóttir Bogi Þórðarson
Sigurlaug Einarsdóttir
Erna Einarsdóttir Bergþór Einarsson
Einar Örn Einarsson Hulda Sólborg Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, besti vinur, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og tengdasonur,
Jón Ingvi Sveinsson
Skarðshlíð 17, Akureyri,
lést að heimili sínu þann 26. mars. Útför hans fer fram
frá Hvítasunnukirkjunni Akureyri þann 6. apríl kl. 14.
Jarþrúður Sveinsdóttir
Pétur Á. Jónsson Guðrún Kristjánsdóttir
Margrét S. Jónsdóttir Arnar Þorbjörnsson
Sveinn Kr. Jónsson
Aðalgeir A. Jónsson Inga S. Arnardóttir
barnabörn, langafadrengur
Aðalheiður Björgvinsdóttir.
Bróðir okkar, fósturbróðir og mágur,
Ingimar Oddsson
frá Presthúsum í Garði,
lést á heimili sínu í Linköping í Svíþjóð 15. mars.
Sóley Oddsdóttir
Eyjólfur Gíslason Helga Tryggvadóttir
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Elskulegur sonur okkar, faðir, tengda-
faðir, afi, sambýlismaður og bróðir
Gylfi Gunnarsson
rafeindavirkjameistari,
lést mánudaginn 29. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Elsa Árnadóttir Magnús Ragnarsson
Haukur Gylfason Margrét M. Olsen
Bríet Alda Hauksdóttir Olsen
Guðrún Sigurðardóttir
Valgerður Gunnarsdóttir
Guðjón G. Magnússon
Auður S. Magnúsdóttir Kristinn Sigurðsson
Ragna J. Magnúsdóttir Jón Bjarni Geirsson.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Háskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst
hafa hafið samstarf um að bjóða upp á
MA-nám í menningarfræði.
Í menningarfræði er helstu kenning-
um samtímans á sviði hug- og félags-
vísinda stillt saman í tilraun til að
byggja upp sjálfstæða og gagnrýna
hugsun um samfélag og menningu.
Nemendur útskrifast með sameigin-
lega gráðu frá báðum skólum. Að sögn
Ástráðar Eysteinssonar, forseta fræða-
sviðs Háskóla Íslands, er þetta eitt
viðamesta samstarf sem skólinn hefur
tekið upp við einkarekinn háskóla.
„Menningarfræði hefur verið kennd
við Háskóla Íslands sem aukagrein
til BA-prófs. Það hefur staðið til lengi
að bjóða upp á þverfaglegt framhalds-
nám fyrir nemendur úr ýmsum grein-
um, aðallega félags- og hugvísindum.
Menningarfræði býður upp á mikla
fjölbreytni og nemendur geta nýtt sér
ólíkar tengingar og bakgrunn.“
Fjárhagslegar aðstæður réðu því
hins vegar að framhaldsnám í menn-
ingarfræðum frestaðist og að leitað
var til Bifrastar eftir samstarfi. „Þar
er boðið upp á MA-nám í menningar-
stjórnun, sem er auðvitað skylt svið,
og þar er líka Jón Ólafsson prófessor,
fyrrum kennari við Háskóla Íslands og
mikill áhugamaður um þessi mál. Það
var í samráði við hann sem við lögðum
upp í þetta ferðalag.“
Ástráður segir ekki auðvelt að
splæsa saman prófgráðum tveggja
háskóla, sérílagi þegar annar er ríkis-
rekinn en hinn einkarekinn. „Það tók
langan tíma að finna rétta farveginn.
En ég held að það hafi verið fyrirhafn-
arinnar virði. Án þessa samstarfs hefði
hvorugur skólinn varla geta boðið upp
á þetta nám. Þótt skólarnir séu í sam-
keppni er líka mikilvægt að þeir sam-
nýti kraftana þar sem við á.“
Nokkur vaxtarbroddur hefur verið í
menningartengdu framhaldsnámi með
hagnýtar áherslur. Ástráður segir það
endurspegla meiri ásókn. „Fleiri ljúka
meistaranámi án þess að stefna endi-
lega á doktorspróf eða vísinda- eða
fræðistarfi. Fyrir vikið hafa praktísk-
ar áherslur aukist í MA-náminu í bland
við fræðilegar áherslur. Þetta nám er
enn einn liðurinn í því.“
bergsteinn@frettabladid.is
HÁSKÓLI ÍSLANDS OG BIFRÖST: LEIÐA SAMAN HESTA SÍNA Í NÝRRI NÁMSGREIN
Býður upp á mikla fjölbreytni
ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON Segir lengi hafa
staðið til að bjóða upp á nám í menn-
ingafræði á framhaldsstigi en fjárhagslegar
ástæður staðið í vegi fyrir því. Samstarf skól-
anna hafi gert kleift að bjóða upp á námið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI