Fréttablaðið - 01.04.2010, Side 30
1. APRÍL 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● tómstundir
Kemur út þriðjudaginn 13. apríl
Sérblað
um dekk
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband
Hlynur Þór • hlynurs@365.is • Sími 512 5439
Nýtt námskeið, sem ber yfirskriftina Ættfræði-
grúsk, hefst hjá Mími símenntun í byrjun apríl.
Þar mun sagnfræðingurinn Eyrún Ingadóttir
kenna aðferðir til að finna heimildir sem er hægt
að nota til að skrifa ævibrot fólks úr fortíðinni.
Farið verður yfir hvar hægt er að nálgast ætt-
fræðiupplýsingar, hvernig er hægt að finna upp-
lýsingar um látna einstaklinga í kirkjubókum og
manntölum og hvaða upplýsingar finnast í slík-
um heimildum. Þá verða kynnt gögn sem geta
gefið upplýsingar um efnahag og aðrar aðstæð-
ur einstaklinga í fortíðinni auk þess sem farið
verður í hvaða heimildir er hægt að sækja á net-
inu. Eins verða gefnar leiðbeiningar um munn-
legar heimildir og hvernig sé best að vinna úr
upplýsingum.
Námskeiðið er sex stunda og stendur frá 7. til 15. apríl. - ve
Ættfræðigrúsk hjá Mími
Fyrsta manntalið á Íslandi
var tekið árið 1703.
Eyrún fer meðal annars yfir það hvernig hægt er að finna upplýsingar um látna ein-
staklinga í kirkjubókum og manntölum.
● STOLT SIGLIR FLEYIÐ MITT Sigling-
ar eru indælt sport í tómstundum og ýmsir sem
kenna kúnstina við að sigla. Siglingafélag Reykja-
víkur, Brokey, heldur reglulega námskeið í sigl-
ingum fyrir börn og fullorðna. Félagsbáturinn
Sigurvon er notaður á fullorðinsnámskeiðum
sem fara fram á Ingólfsgarði og á sundunum. Sjá
nánar á www.brokey.is
Skátaandinn er hressandi afl
sem ýmsir kynnast á ung-
dómsárum með flokkastarfi,
útilegum, varðeldum og söng.
Orðtakið: „Eitt sinn skáti, ávallt
skáti“, á við marga. Meðal
þeirra er Guðmundur Þór Pét-
ursson verkfræðingur.
„Skátastarfið er auðvitað mest
fyrir börn og unglinga þótt einstaka
vit leysingar eins ég séu að grautast
í því líka,“ segir Guðmundur Þór
glaðlega. Hann var nýlega kjörinn
félagsforingi skátafélagsins Skjöld-
unga sem starfar í Vogahverfinu í
Reykjavík og hefur verið viðriðinn
það svo lengi sem hann man. „For-
eldrar mínir voru báðir í skátunum
og ég var kominn á skátamót sem
ungbarn. Svo gengur hann í erfðir
þessi góðkynja sjúkdómur og verð-
ur að lífsstíl.“
Skátastarfið felst í
mannrækt í víðum
skilningi þess orðs og
Guðmundur Þór viður-
kennir að ávallt sé þörf
á fullorðnum einstakl-
ingum sem tilbúnir séu
til að gefa af tíma sínum,
halda utan um starfið
og miðla hinum yngri.
Hann upplifði að fara á
alheimsmót skáta í Ástr-
alíu 17 ára gamall en fyrri
hluta Gilwell-námskeiðs
sem er hápunktur foringjaþjálfun-
ar, tók hann á Úlfljótsvatni í ágúst
í fyrra. „Það var gaman að vinna
fram á nótt með höfuðljós við að
súrra saman trönur í mannvirki og
keppa við hina flokkana,“ segir
hann og kveðst hafa
nýlokið síðari hluta
námskeiðsins.
Guðmundur
Þór er í vinnunni
en hátt í 50 Skjöld-
ungar í árlegri páska-
útilegu á Úlfljótsvatni
þegar viðtalið við hann
fer fram. Flestir þeirra
eru á aldrinum 10-16
ára en nokkrir eldri,
að hans sögn. „Þessir
krakkar eru með hug-
myndaflugið í lagi,“
segir hann hlæjandi.
„Þeir ætla að hafa
jólaþema með tann-
læknaívafi og nætur-
leikurinn á að fjalla um brjálaðan
tannlækni. Þá fara þeir út um mið-
nætti að leita að einhverjum fjár-
sjóði.“ Ekki segir hann þó gott að
giska á hver fjársjóðurinn sé. „Í síð-
ustu útilegu var hægt að finna fullt
af peningabunkum en einn hópur-
inn fann tóma flösku, annar vatns-
flösku og sá þriðji flösku með mold.
Þar reyndist fjársjóðurinn kominn,
loft, vatn og jörð.“
Þegar hringt er í skátamiðstöð-
ina á Úlfljótsvatni svarar Magnús
Daníel Karlsson útilegustjóri en
bak við hann heyrast skátasöngv-
ar sungnir við raust. „Það er verið
að vinna hér í verkefnum, æfa nýja
söngva, læra leiki og hnúta. Reynd-
ar eru söngvarnir gamlir en þeir
hafa legið í hálfgerðum dvala og
nú er verið að rifja þá upp,“ lýsir
hann. Magnús Daníel segir mat-
reiðslukeppni fram undan, einn-
ig stóra kvöldvöku og varðeld ef
veður leyfi. - gun
Fjársjóður er í ýmsu formi
„Hann gengur í erfðir þessir góðkynja sjúkdómur og verður að lífsstíl,“ segir Guðmundur Þór um skátahugsjónina. Hér er hann
með hundinn Breka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í turninum er frábært að æfa
klifur og sig.
Hér er fáninn afhentur en á hverjum morgni er athöfn þegar hann er dreginn að húni
því skátar læra allt um þjóðfánann.
● UNDUR Í IÐRUM
JARÐAR Hellaskoðun
gefur nýja sýn á íslenska
náttúru og er skemmtilegt
tómstundasport. Hægt er að
kaupa leiðsögn um hella hjá
sérhæfðum ferðaþjónustum,
en einnig er hægt að skoða
sjálfur. Mikilvægt er að undir-
búa hellaskoðun vel og vera
með réttan útbúnað, ef ske
kynni að eitthvað færi úr-
skeiðis og hellirinn ekki í al-
faraleið. Ferðaáætlun þarf
því alltaf að skilja eftir hjá að-
standendum, sem og eitt-
hvað með áberandi lit uppi
á yfirborðinu, sem flýtir fyrir
ef leita þarf að fólki. Sjá nán-
ari leiðbeiningar um útbún-
að og varúðarráðstafanir á
heimasíðu Landsbjargar.