Fréttablaðið - 01.04.2010, Blaðsíða 32
1. APRÍL 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● tómstundir
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Bjarni Þór
• bjarni thor@365.is
• sími 512 5471
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 512 5439
Sigríður Dagný
• sigridurdagny@365.is
• sími 512 5462
Kemur út fimmtudaginn
8. apríl
Heilsa
Sérblað Fréttablaðsins
Sylvía Ólafsdóttir laganemi
lætur ekkert hindra sig í að
sinna áhugamálum og öðrum
hugðarefnum.
„Ég einfaldlega slökkti á sjón-
varpinu og lífið tók u-beygju. Fór
að gera eitthvað uppbyggilegt á
kvöldin og vaknaði aftur til lífs-
ins,“ segir Sylvía sem senn lýkur
námi við Háskólann við Bifröst.
„Þessi viðsnúningur hófst árið
2003 þegar ég var einstæð með
þrjú ung börn og stóð mig að því
að kunna sjónvarpsdagskrána utan
að. Þá blöskraði mér hversu aumu
lífi ég lifði eftir langan vinnudag,
því eftir að hafa sinnt börnum og
komið þeim í svefn tók við heila-
laust gláp á sjónvarpsseríur þar
til svefninn tók völd,“ segir Sylvía
sem ákvað að skrá sig í það sem
hún kallar hobbífög í fjarnámi við
Verkmenntaskólann á Akureyri.
„Þar tók ég bara fög sem ég
hafði áhuga á og lærði ítölsku,
spænsku, forritun, rekstrarhag-
fræði, listir og menningu og alls
kyns fög sem mér þóttu áhuga-
verð,“ segir Sylvía sem nokkrum
árum síðar stóð sjálfa sig að því að
vera búin að ljúka yfir 200 eining-
um á framhaldsskólastigi.
„Þá hætti ég í vinnunni og fór
í fullt nám í lögfræði á Bifröst,
en í Borgarfirði er umhverfið svo
stórkostlegt að enn fleiri áhugamál
bættust við, eins og útivist, fjall-
göngur og golf, enda stutt á fjöll og
golfvöllinn sem er í þriggja mín-
útna göngufæri að heiman,“ segir
Sylvía sem einnig er gallharður
Liverpool-aðdáandi og meðlim-
ur í Liverpool-klúbbnum á Íslandi
ásamt þremur sonum sínum sem
eru 8, 14 og 15 ára.
„Það er yfirleitt þannig að ég
fæ áhuga á einhverju og þeir hríf-
ast með, en við gerum allt meira
og minna saman. Ég fór í skipti-
nám á vegum Bifrastar til Ítalíu,
tók drengina með mér og kom á
óvart hversu ofboðslega auðvelt
það var. Þeir sóttu grunnskóla þar
ytra í fjóra mánuði og við ferðuð-
umst óteljandi borgarferðir um
alla Evrópu til að skoða kirkjur og
söfn,“ segir Sylvía sem nýtt gat ít-
ölskunámið frá Verkmenntaskólan-
um á Ítalíu og gefið sonum sínum
kost á að læra tungumálið með
dvöl í landinu fagra. Sjálf heldur
hún ítölskunni við með því að lesa
bækur, horfa á bíómyndir og hlusta
á tónlist þeirrar þjóðar, en þess má
geta að hún hefur einnig gott vald
á þýsku, spænsku, ítölsku, ensku
og dönsku, og er ágætlega talandi
á rússnesku og frönsku.
Sylvía, sem lýkur tveimur meist-
aragráðum við Háskólann á Bif-
röst um áramót, er búin að skipu-
leggja sumarfríið í þaula en þau
mæðgin ætla að fara hringinn og
skoða landið sitt í ár. „Strákarnir
eru bestu ferðafélagarnir því þeir
draga ekki ákvarðanir mínar í efa
heldur ræð ég hvert við förum og
hvað við ætlum að sjá,“ segir hún
hlæjandi. „Við ferðumst mikið inn-
anlands og utan og nú sé ég á námi
þeirra hvað það allt hefur komið
þeim til góða og hvað þeir standa
sig vel í landafræði, sögu og tungu-
málum. Þá erum við fastagestir á
bókasafninu í Borgarnesi, liggj-
um saman í stofunni á kvöldin með
bækurnar okkar eða spilum Trivi-
al Pursuit þar sem mestur tími fer
í að spjalla um spurningarnar og
viða að okkur frekari fróðleik.“
Sylvíu vex ekkert í augum og
finnst gott að hafa alið strákana
sína upp í að allt sé mögulegt. Hún
segir ómögulegt að lesa skólabæk-
ur allan sólarhringinn. „Lög eru
vissulega torlesin en það venst
furðulega vel og maður er fljótur
að komast inn í þau. Einmitt þess
vegna er gott að hafa áhugamál
til að kúpla sig frá lærdómnum og
koma ferskur inn aftur.“
Hún segir marga
á golfvellinum brosa þegar hún
mæti með synina þrjá, en þeir hafa
smitast af golfbakteríunni eins og
móðir þeirra.
„Golf lætur mann ekki í friði;
svo skemmtilegt er það. Það er líka
sport sem fjölskyldan getur stund-
að saman ævina á enda,“ segir
Sylvía sem einnig hefur brennandi
áhuga á bílum, matargerð og hann-
yrðum, svo fátt sé nefnt.
„Yngsti strákurinn var veikur
um daginn og þá kenndi ég honum
að prjóna. Hann prjónaði heilan
trefil í veikindunum; rauðan sem
hann kallar nú Liverpool-trefilinn.
Þá lærði maður ótal margt í mat-
argerð á Ítalíu og nú er svo komið
að strákarnir sjá stundum um mat-
inn, dýrindis pastarétti sem þeir
galdra fram eftir að hafa smitast
af matargerðaráhuga mínum,“
segir Sylvía sem kvíðir því að yf-
irgefa Bifröst að námstíma lokn-
um.
„Ég á eftir að sakna þess mikið
að vera hér og ekki síst strákarnir
sem eru í æðislegum sveitaskóla á
Varmalandi. Í sveitinni slær annar
taktur og tími er nægur til sam-
vista, lærdóms og áhugamála.“
- þlg
Blöskraði sjónvarpsglápið
Sylvía Ólafsdóttir er kona með mörg áhugamál, en það voru einmitt áhugamálin sem
urðu til þess að líf hennar tók u-beygju til betri vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi
starfrækir þrjár deildir, knattspyrnu-
deild, handknattleiksdeild og fimleikadeild
og í þeim öllum er lögð áhersla á öflugt
starf fyrir börn og unglinga, ekki síður en
meistaraflokkana. Í fimleikadeildinni eru
til dæmis að jafnaði rúmlega 320 iðkend-
ur enda þykja fimleikar góður undirbún-
ingur fyrir aðrar íþróttir. Þar eru áhalda-
fimleikar fyrir stelpur jafnt sem stráka
frá þriggja ára aldri, einnig hópfimleik-
ar fyrir stúlkur og fimleikar sem afreks-
íþrótt. - gun
Fim og frjálsleg börn
Handboltinn freistar ungra manna á Seltjarnarnesinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM