Fréttablaðið - 01.04.2010, Blaðsíða 40
28 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvað geri
ég? Ég er
dóp-þefandi
hundur.
Rusty Smallwilly
Endurskoðandi
frá Leeds
Marco Van Root
Tannlæknir
frá Rotterdam
Pierre Sacrebleau
Sauðfjárbóndi
frá Grenoble
Tormod Lökling
Útgefandi í Egmont
Eftir menntaskól-
ann ætla ég út í
kvikmyndabrans-
ann.
Kannski ég fari í
kvikmyndaskóla í
stað menntaskóla.
Ég vissi ekki að
þú væri svona
áhugasamur um
kvikmyndir.
Alls
ekki.
Ég hef bara engan
áhuga á að lenda í
leiðinlegu starfi.
Aaah!
Nýjar sögur
frá Roger!
Pondus
kynnir:
Óþekktir
FJÖLDA-
MORÐINGJAR
og smá um það
sem þeir fást við
dags daglega
Mig langar
að slást.
Mig
líka!
Í alvöru?
Núna?
Jahá!
Sömu reglur
og venjulega?
Hljómar
vel.
Getið þið aldrei komið
ykkur saman um neitt??
Ég fór þangað sem höfuðstöðvar SS og Gestapo voru einu sinni í Berlín. Nú
er þar útisýning á ljósmyndum og gögn-
um sem draga upp mynd af helförinni og
allri ógeðsvitleysunni. Svæðið var jafnað
við jörðu, en það má enn sjá glitta í ein-
hverja kjallara. Það er sterk upplifun að
koma þarna. Maður þykist enn finna fyrir
illskunni og geðveikinni sem spratt fram
á þessum slóðum. Ég hef oft séð myndir af
líkhaugum frá útrýmingarbúðum og fólki
sem dinglar í trjám í almenningsgörðum,
en það hefur aldrei haft sömu áhrif og á
þessum stað.
ÞAÐ sem er kannski mest sjokkerandi við
nasistana er að þeir voru af sömu dýrateg-
und og ég og þú. Þarna innundir dólgslega
töff leðurfrökkunum með hauskúpunum
á bryddingunum voru bara karlgarmar
með táneglur sem þurfti að klippa. Maður
hefur vitað af þessum atburðum síðan
maður man eftir sér og lengi vel var
það hulið skilningi manns hvernig
heil þjóð gat látið æsa sig upp í þessa
sturlun sem stjórnartíð Adolfs Hitl-
er var. Maður fattaði þetta ekki
fyrr en eftir hrunið á Íslandi. Þá
svona skildi maður að minnsta
kosti aðeins betur hvernig heil
þjóð gat látið teyma sig út í að
lifa í blekkingu. Þetta segi ég
þrátt fyrir að ég viti mæta-
vel að það þykir ekki umræðu til tekna að
draga nasistana inn í hana.
ÞVÍ þótt upplagið sé svipað er náttúrlega
stjarnfræðilegur stigsmunur á því hvernig
sturlun þessara þjóða var. Það fer ekki um
mann kalt vatn milli skinns og hörunds
í höfuðstöðvum Arion banka. Í báðum
tilfellum varð þó til einkennisklæddur
úrvalshópur æðri mannvera. Hér mátti
enginn segja styggðaryrði um Armani-
klædd mikilmenni þegar þau fengu það
sama fyrir að byrja í vinnunni og venju-
legur lúði var ævina að skrapa saman
fyrir. Ekki að maður væri tekinn í yfir-
heyrslu í stjórnarráðinu ef maður ræki
upp kvak, heldur var litið á það þannig að
maður væri bara svona helvíti öfundsjúk-
ur hælbítur. Þú skilur þetta ekki. Slappaðu
nú bara af, vertu með og keyptu þér eitt-
hvað á myntkörfuláni.
EFTIR hrunið tóku svokallaðar „rústakon-
ur“ til við að endurreisa sundursprengda
Berlín. Hér tóku konur til við að prjóna.
Vondu nasistarnir fengu langflestir mak-
leg málagjöld. Fæstir sýndu iðrun í Nürn-
berg-réttarhöldunum, sem hófust tæplega
tveimur mánuðum eftir að stríðinu lauk.
Hér er dálítið á huldu hverjir eru vondu
karlarnir – ef það eru þá einhverjir vondu
karlarnir. Það er enn verið að bíða eftir
skýrslunni.
Þegar þjóðir sturlast