Fréttablaðið - 01.04.2010, Síða 46
34 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Kvikmyndanördar velta ýmsu fyrir
sér. Á vefsíðu breska blaðsins Sun
er rætt um misheppnað val á leik-
urum. Leikkonan Denise Richards
kemst þar á blað fyrir hlutverk sitt
sem Dr. Christmas Jones í Bond-
myndinni The World Is Not Enough.
Lesandi blaðsins vill meina að hún
hafi ekki verið trúverðug sem
kjarnorkueðlisfræðingur og eru
eflaust margir hjartanlega sam-
mála honum. „Ég veit hvernig Bond-
myndir geta verið en samt hef ég
aldrei séð vel vaxinn kjarnorkueðl-
isfræðing hlaupa um í níðþröngum
fötum,“ skrifaði hann.
Annar lesandi er undrandi á ráðn-
ingu Vals Kilmer í hlutverk leður-
blökumannsins í Batman Forever.
„Hvað er málið? Náunginn er allt-
of lítill. Ég heyrði að hann hefði
þurft að standa á palli í atriðunum
með Nicole Kidman. Það er eitthvað
rangt við það.“
Einn lesandi blaðsins er ósáttur
við Tobey Maguire sem köngulóar-
manninn Pétur Parker. „Hann var
alltof mikil veimiltíta sem Pétur
Parker. Áður en hann fékk ofur-
kraftana var Pétur Parker algjör
nörd. En eftir að Maguire byrjaði að
skjóta köngulóarvefnum út um allt
gekk hann um með aumingjasvip
eins og hvolpur sem hafði verið
sparkað í.“
Aðrir sem fá
skömm í hattinn
eru Uma Thur-
man sem þótti
ekki hafa kyn-
þokkann sem
þurfti til í The
Avengers og
belgíska buff-
ið Jean-Claude
Van Damme, einfaldlega
vegna allra myndanna
sem hann lék í. „Hvort
sem hann lék löggu á
tímaflakki eða öryggis-
vörð á hokkíleik hljóm-
aði hann alltaf eins og
ferðamaður sem var
nýkominn til lands-
ins frá Belgíu,“ skrifaði
óánægður lesandi.
Misheppnaðar ráðningar
KJARNORKUEÐLISFRÆÐING-
UR? Þykir ekki hafa passað
í hlutverk kjarnorkueðlis-
fræðings í The World Is Not
Enough.
TOBEY MAG-
UIRE Of mikil
veimiltíta
í hlutverki
Kóngulóar-
mannsins.
> LEIKUR BRIMBRETTAHETJU
Sean Penn er í samningaviðræð-
um um að leika brimbrettahetj-
una og ævintýramanninn Jay
Moriarty í kvikmynd um ævi
hans. Curtis Hansson, sem
leikstýrði L.A. Confidential,
verður leikstjóri myndarinnar,
sem nefnist einfaldlega Jay
Moriarty.
Í nýrri bók eftir fyrrverandi blaðamann
kvikmyndabiblíunnar Variety um fram-
leiðslufyrirtæki Stevens Spielberg,
DreamWork, er því haldið fram að leik-
stjórinn sé haldinn hálfgerðu ofsóknar-
brjálæði. Óttast hann mjög að upplýs-
ingar um nýjar myndir sínar rati til
keppinauta sinna.
Enginn fær að sjá þegar Spielberg
skoðar efni úr myndum sem hann er
með í undirbúningi og öll skjöl sem eru
send út af skrifstofu hans eru dulkóðuð.
Einnig er þannig um hnúta búið á skrif-
stofu hans að ómögulegt er að heyra sím-
töl leikstjórans því sérhannaður skjöld-
ur úr plexigleri gnæfir yfir skrifborðinu.
„Þegar Spielberg er ekki á skrifstofunni
eru myndavélar sem taka upp allt sem ger-
ist þar og hann getur séð það heima hjá
sér,“ segir í bókinni. Sömuleiðis kemur
þar fram að leikstjórinn er vel búinn
undir náttúruhamfarir. Lætur hann allt
starfsfólk sitt fá neyðarbúnað sem það
getur notað ef jarðskjálfti eða álíka ham-
farir ganga yfir tökustaðinn.
Fulltrúi Spielbergs vísar þessu öllu
saman á bug:„Þessar lýsingar eru svo
fjarri raunveruleikanum að ég ætla
ekki að tjá mig frekar um þær,“
sagði hann.
Haldinn ofsóknarbrjálæði
STEVEN SPIELBERG Leikstjórinn
er haldinn ofsóknarbrjálæði
samkvæmt nýrri bók.
Auk gamanmyndarinnar Hot Tub
Time Machine eru þrjár nýjar
myndir komnar í bíó hérlendis.
Í tveimur þeirra er ástin í aðal-
hlutverki. Jim Carrey og Ewan
McGregor leika í gamanmynd-
inni I Love You Phillip Morris.
Í henni kemur Russell (Carrey)
út úr skápnum og endar í fang-
elsi þar sem hann kynnist Phillip
Morris (McGregor). Reynir Rus-
sell með ýmsum svikum og prett-
um að frelsa ástmann sinn úr prís-
undinni.
Frá höfundi Notebook kemur
hin hugljúfa og grípandi Dear
John í leikstjórn hins sænska
Lasse Hallström. Hermaðurinn
John (Channing Tatum) kynn-
ist Savannah (Amanda Seyfried)
í fríi í heimabæ sínum og óvænt
vaknar ástin milli þeirra. Myndin
sló í gegn í Bandaríkjunum og náði
óvænt toppsætinu af Avatar.
Teiknimyndin Að temja drekann
sinn gerist í ævintýraheimi þar
sem þrekvaxnir víkingar og drek-
ar búa. Við fylgjum víkingastrákn-
um Hiccup sem passar ekki t inn í
heim ættbálkanna og þeirra löngu
hefðar að berjast við dreka.
Ástin í aðalhlutverki
ELSKENDUR Jim Carrey og Ewan
McGregor leika elskendur í gamanmynd-
inni I Love You Phillip Morris.
Gamanmyndin Hot Tub
Time Machine, sem er
nýkomin í bíó, er ein af
þessum myndum sem hafa
komið þægilega á óvart hjá
kvikmyndaáhugamönnum.
Margir telja hana arftaka
The Hangover sem sló eftir-
minnilega í gegn í fyrra.
Söguþráður Hot Tub Time Mach-
ine hljómar í fljótu bragði eins og
íslenska Síma-auglýsingin sem
hefur tröllriðið fjölmiðlum að und-
anförnu. Myndin fjallar um fjóra
vini sem fara saman í sumarbú-
stað, fá sér neðan í því og skella
sér í heita pottinn. Í stað þess að
láta sér nægja að spjalla um hina
fornu Snorralaug ganga Holly-
wood-vinirnir skrefinu lengra
og ferðast hreinlega aftur í tím-
ann. Ekki þó aftur til víkingaald-
ar heldur til ársins 1986. Pottur-
inn er nefnilega þeim eiginleikum
gæddur að hann er dulbúin tíma-
vél.
Myndin varð sú þriðja vinsæl-
asta í Norður-Ameríku eftir frum-
sýningarhelgina og ljóst að hún
hefur fallið vel í kramið hjá kvik-
myndahúsagestum. Hinn vandaði
leikari John Cusack fer fyrir leik-
arahópnum, sem virðist ná álíka
vel saman og aðalleikararnir í The
Hangover, annarri gamanmynd
sem fjallaði einnig um vinahóp
sem lendir í ýmsum ævintýrum.
Fyrir utan þá staðreynd að fjór-
ir karlleikarar eru í aðalhlutverk-
um í báðum myndunum eiga þær
það sameiginlegt að hafa notið
óvæntra vinsælda, þó svo að Hot
Tub Time Machine eigi enn langt
í land með að ná inn sömu tekjum
og The Hangover. Sú mynd hefur
aflað tæplega 470 milljóna dollara
og kemur síður en svo á óvart að
framhald hennar er í undirbún-
ingi sem sömu aðalleikurum.
Ef við berum myndirnar tvær
saman, þá fær The Hangover 7,9
af 10 mögulegum á kvikmyndasíð-
unni Imdb.com en Hot Tub Time
Machine er með 7,5 í einkunn. Og
á síðunni Metacritic sem tekur
saman gagnrýni úr ýmsum fjöl-
miðlum fær The Hangover 73 í
einkunn af 100 mögulegum en Hot
Tub er með 65. Hin síðarnefnda
þarf því að herða sig verulega
ætli hún að ná forvera sínum í
vinsældum.
Fjórir vinir í heitum potti
Í HEITA POTTINUM Vinirnir fjórir slappa af í heita pottinum áður en þeir eru sendir 24 ár aftur í tímann.
Miðasala
í Hallgrímskirkju
og á midi.is
Laugardagur fyrir páska, 3. apríl
Verk fyrir kirkjuklukkur og lúðra eftir Viktor Orra
og Hjört Ingva úr Hjaltalín, og Guðmund Stein
og Inga Garðar úr S.L.Á.T.U.R.
Kammertónleikar með hljóðfæraleikurum
úr Kammersveitunum Ísafold og Elektru
Aftansöngur á aðfangadegi páska
HNOÐ, Borgar Magna son, Katie Buckley, Ingrid
Karls dóttir, Margrét Árna dóttir, Grímur Helga son,
Jesper Petersen og Ólöf Arnalds
Táknræn helgistund
Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Páskadagur, 4. apríl
Mótettukór Hallgrímskirkju, ein söngvarar og
hljóð færa leikarar. Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson.
Prestur: sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
Kantatan „Jauchzet Gott in allen Landen” eftir J.
S. Bach. Fé lagar úr Al þjóð legu barokksveitinni í
Haag og Herdís Anna Jónasdóttir. Prestar: Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson og sr. Birgir Ásgeirsson
Annar í páskum, 5. apríl
Helgi Jónsson tónlistarfræðingur flytur fyrirlestur
um Alfred Schnittke. Staðsetning: Listasafn Einars
Jónssonar.
Sinfónía nr. 4 eftir Alfred Schnittke.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir og Bragi
Bergþórsson. Stjórnandi: Daníel Bjarnason.
Aðgangseyrir 3.000 / 2.000 kr.
Kirkjulistahátíð
í algleymingi
kl. 15.00
Fagnaðargjörningur
í klukkuturninum
kl. 16:30
Kammertónleikar
í suðurvæng kirkjunnar
kl. 18.00
kl. 21:15
Spuni í myrkri kirkju
tónlistar- og dansspuni
kl. 23.00
Vigil – páskavaka
frá myrkri til ljóss
kl. 8.00
Páskaguðsþjónusta
með helgileik
úr Hólabókinni 1589
kl. 11.00
Kantötuguðsþjónusta
á páskum
kl. 18.00
Schnittke og
trúarleg tónlist
kl. 20.00
Kammersveitin Ísafold,
Schola Cantorum,
Schnittke