Fréttablaðið - 01.04.2010, Blaðsíða 48
36 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Pamela Anderson segist ekki
hafa tíma fyrir ást um þessar
mundir.
Hún þurfi nefnilega á öllu sínu
að halda í dans-raunveruleika-
þættinum Dancing With The
Stars.
„Ég er eiginlega á lausu. Ég
hef allavega ekki tíma fyrir
kærasta, ég þarf á öllum mínum
sjarma að halda fyrir mig og
dansfélaga minn,“ sagði Pamela
í samtali við Reveal-tímartið.
Pamela hefur löngum verið
þekkt fyrir fremur frjálslegt
val í karlamálum en áhorfend-
ur í Bandaríkjunum hafa fallið
fyrir henni í dansþættinum.
Leikkonan segist ekki geta
beðið eftir því að klæðast
djörf um búningum og stíga
nokkur dansspor. Og svo sé dans-
inn líka fínasta líkamsrækt.
„Ég er búin að eignast tvö
börn og þessi keppni er alveg
hrikalegt púl. Þetta er allt öðru-
vísi heldur en að fara í líkams-
rækt.“
Tom Selleck-mottukeppnin fór fram á
Boston á þriðjudaginn sem leið. Þetta er
í fimmta sinn sem slík keppni er hald-
in hér á landi. Í Tom Selleck-keppninni
keppa karlmenn um titilinn Flottasta
motta landsins og var fjöldi hárprúðra
manna mættur til leiks í ár líkt og fyrri ár.
Keppnin var haldin í samstarfi við Mottu-
mars Krabbameinsfélagsins og rann hluti
af ágóða kvöldsins til félagsins. Kynnir
var hinn stórskemmtilegi Þorsteinn Guð-
mundsson og í dómnefnd sátu Sigríður
Guðlaugsdóttir, eigandi staðarins, Erik
Hirt, fyrrum sigurvegari keppninnar, Jón
Atli Helgason, öðru nafni Hárdoktorinn,
og útvarpsmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson.
Aron Bergmann bar sigur úr býtum þetta
sinnið, en annað sætið hreppti kvikmynda-
gerðarmaðurinn Sindri Páll Kjartansson.
- sm
Flottasta motta landsins
Ólafur Kristjánsson þótti vera með afskaplega fagra mottu, en komst þó ekki á verðlaunapall. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Keppnin í ár þótti sérstaklega hörð og voru motturnar hver
annarri fallegri.
Sigurvegari kvöldsins, Aron Bergmann, mundar vélsög vígaleg-
ur á svip.
Sindri Páll Kjartansson, sem er fremst á myndinni, hreppti
annað sætið. Á bak við hann standa Helgi Svavar í gervi Stein-
ríks, Arnar Fells og Aron Bergmann.
Tónlistarmaðurinn Davíð
Berndsen hlaut verðlaunin
Thulemottan árið 2010.
Kynnir kvöldsins var Þor-
steinn Guðmundsson sem
þótti afburða fyndinn og
skemmtilegur að venju.
Hljómsveitin Retro Stefson, sem
gaf út frumraun sína Montana
árið 2008, hefur undanfarnar
vikur verið við æfingar á nýju
efni. Upptökur á nýrri plötu hóf-
ust fyrir skömmu og er stefnt á
EP útgáfu á Íslandi í byrjun sum-
ars og í Evrópu skömmu síðar.
Sveitin er þessa dagana læst
inni í Hljóðrita hjá Kidda Hjálm
og ganga upptökur vel. Nýtt lag
„Mama Angola“ hefur verið sett
í spilun. Ný hljómplata í fullri
lengd er síðan væntanleg með
haustinu.
Það hefur löngum verið náið
samband á milli Retro Stefson
og hljómsveitarinnar FM Belfast.
Retro spilaði á tvennum tónleik-
um með FM í Kaupmannahöfn
og Ósló í byrjun mars. Sveitirn-
ar ætla svo að spila saman á Nasa
16. apríl og er forsala á tónleik-
ana hafin. Ekki er víst að FM
Belfast spili mikið hér á næst-
unni því bandið er bókað í aðra
tónleikaferð um Evrópu í maí og
sveitin hefur verið bókuð á annan
tug tónlistarhátíða í sumar, m.a.
á Hróarskelduhátíðina og Træna
í Noregi. Upptökur standa yfir á
nýju efni, en útgáfa Prins Póló
(Svavars í Skakkamanage) á lag-
inu „Underwear“ er komin í spil-
un. - drg
Retro Stefson telur í
RETRO STEFSON Nýtt efni á leiðinni.
MYND/DORKASAURUS
> ÁSTFANGINN ROBBIE
Robbie Williams er farinn að kalla
kærustuna sína „Frú Willi-
ams“. Segir söngvarinn að
hann líti orðið á kærust-
una, Aydu Field, sem eig-
inkonu sína. Þó viður-
kennir Robbie að enn
sé talsvert í að þau
gangi í hnapphelduna.
DANSAR SIG Í FORM Pamela Anderson hefur farið á kostum í
Dancing With The Stars og segir dansinn koma sér í gott form.
Pamela hefur engan
tíma fyrir ástina
Birgitta Sveinbjörnsdóttir,
danskennari.
Upplýsingar og skráning í s: 899-8669
Suðræn sveifl a er skemmtileg líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri.
Námskeiðið byggist upp á mjúkri upphitun, latín dönsum og Cha Cha,
Jive, Salsa og fl eira, kviðæfi ngum og góðri slökun. Hver tími er
60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á lagardögum kl. 10:30 og
á miðvikudögum kl. 18:00 í Stúdíó Sóleyjar Jóhannsdóttur í Mecca Spa.
Kennarar eru Birgitta Sveinbjörnsdóttir og Ólöf Björk Björnsdóttir.
Skráning er hafi n á námskeiðið
sem hefst á miðvikudaginn 7. apríl
Domo.is • Þingholtsstræti 5
opið alla páskana