Fréttablaðið - 01.04.2010, Qupperneq 54
42 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Vestmanneyingurinn Kári Kristján Kristjánsson er laus úr
„prísundinni“ hjá svissneska félaginu Amicitia Zürich og
mun leika með þýska úrvalsdeildarfélaginu Wetzlar næstu
tvö árin.
„Það er erfitt að lýsa því hvað ég er feginn að þetta mál
er yfirstaðið og búið sé að ganga frá öllu. Það er allt betra
en þessi viðbjóður hérna og það er mikill bónus síðan að hafa
komist að hjá liði í þýsku úrvalsdeildinni. Nú er það bara stóra
sviðið og ekkert kjaftæði,“ segir Kári Kristján en hann var afar kátur
með þessa lendingu í sínum málum.
Honum hefur verið tíðrætt um hversu leiðinlegur tíminn
hafi verið hjá Amicitia Zürich. Ágætis handboltalið en það
hefur spillt talsvert fyrir að það er nákvæmlega enginn
handboltaáhugi í borginni og álíka margir sem sækja
leiki liðsins og þegar Kári spilaði í 6. flokki.
„Þetta er svo dapurt að ef einhver skaut í slána
þá glamraði í húsinu næsta hálftímann,“ segir Kári en var lang-
ur aðdragandi að för hans til Þýskalands?
„Strax upp úr áramótum fór ég að líta í kringum mig. Ég
var einnig lengi í viðræðum við Magdeburg en Wetzlar sýndi
mér meiri áhuga og kom með samning. Liðið var með
þrjá línumenn í vetur en tveir eru á förum. Ég geri mér
því vonir um að spila í sókn og þeir hugsa mig líka sem
miðjumann í vörninni. Nú er það bara undir mér komið
að standa mig,“ segir Kári en nýja liðið hans er í fjórtánda
sæti þýsku úrvalsdeildarinnar sem stendur og þarf ekki að
hafa áhyggjur af falli sem stendur.
Mér líst mjög vel á allar aðstæður þarna og hef alla trú
á því að þetta verði gaman. Það hefur ekkert verið gaman
í Sviss en nú verður breyting á. Ég skoðaði aðstæður
þarna í tvo daga og leist afar vel á það sem ég sá.“
KÁRI KRISTJÁN KRISTJÁNSSON: BÚINN AÐ SKRIFA UNDIR TVEGGJA ÁRA SAMING VIÐ WETZLAR Í ÞÝSKALANDI
Nú er það bara stóra sviðið og ekkert kjaftæði
Meistaradeild Evrópu:
Arsenal-Barcelona 2-2
0-1 Zlatan Ibrahimovic (46.), 0-2 Zlatan Ibra-
himovic (59.), 1-2 Theo Walcott (69.), 2-2 Cesc
Fabregas, víti (85.)
Inter-CSKA Moskva 1-0
1-0 Diego Milito (65.)
IE-deild kvenna:
KR-Hamar 83-61
KR: Unnur Tara Jónsdóttir 33/8 fráköst/5 stolnir,
Jenny Pfeiffer-Finora 15/5 fráköst, Signý Her-
mannsdóttir 14/9 fráköst/6 varin skot, Margrét
Kara Sturludóttir 11/6 fráköst/7 stoðsendingar/3
varin skot, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 4/10 frák-
öst/5 stoðsendingar, Helga Einarsdóttir 2, Hildur
Sigurðardóttir 2, Brynhildur Jónsdóttir 2.
Hamar: Koren Schram 19/7 fráköst/5 stolnir,
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15/10 fráköst, Kristrún
Sigurjónsdóttir 13/5 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 8,
Fanney Lind Guðmundsdóttir 2, Julia Demirer 2,
Hafrún Hálfdánardóttir 2.
N1-deild karla:
Valur-Akureyri 24-22
Mörk Vals: Ingvar Árnason 5, Elvar Friðriksson 5,
Fannar Friðgeirsson 5, Arnór Gunnarsson 3, Jón
Pétursson 2, Orri Gíslason 1, Gunnar Jóhannsson
1, Sigurður Eggerts. 1, Baldvin Þorsteins. 1.
Mörk Akureyri: Oddur Gretarsson 7, Hreinn
Hauksson 3, Árni Þór Sigtryggsson 3, Hörður
Fannar Sigþórsson 3, Guðmundur Helgason 2,
Geir Guðmundsson 1, Guðlaugur Arnarsson 1,
Heimir Örn Árnason 1.
Fram-FH 28-29
Mörk Fram: Andri Berg Haraldsson 6, Stefán
Stefánsson 5, Einar Eiðsson 4, Róbert Hostert 3,
Daníel Grétarsson 3, Haraldur Þorvarðarson 3,
Guðjón Drengsson 2, Hákon Stefánsson 2.
Mörk FH: Bjarni Fritzson 8, Örn Ingi Bjarkason
6, Ásbjörn Friðriksson 5, Hermann Björnsson
4, Benedikt Kristinsson 3, Ólafur Gústafsson 2,
Sigurgeir Ægisson 1.
HK-Haukar 24-22
Mörk HK: Bjarki Már Elísson 7, Valdimar Þórsson
6, Bjarki Már Gunnarsson 3, Atli Ævar Ingólfsson
3, Sverrir Hermannsson 3, Atli Bachmann 2.
Mörk Hauka: Freyr Brynjarsson 8, Sigurbergur
Sveinsson 7, Heimir Heimisson 3, Elías Halldórs-
son 2, Tjörvi Þorgeirsson 1, Björgvin Hólmgeirs. 1.
Grótta-Stjarnan 27-26
Mörk Gróttu: Jón Karl Björnsson 13, Anton
Rúnarsson 8, Atli Rúnar Steinþórsson 3, Hjalti Þór
Pálmason 2, Arnar Theodórsson 1.
Mörk Stjörnunnar: Guðmundur Guðmundsson 8,
Tandri Konráðsson 5, Sverrir Eyjólfsson 3, Daníel
Einarsson 3, Vilhjálmur Halldórsson 2, Þórólfur
Nielsen 2, Kristján Kristjánsson 1, Eyþór Magnús-
son 1, Jón Arnar Jónsson 1.
STAÐAN:
Haukar 19 13 2 4 483-457 28
Valur 19 10 3 6 468-444 23
Akureyri 19 10 2 7 511-485 22
HK 19 10 2 7 511-491 22
FH 19 10 1 8 532-512 21
Grótta 19 7 0 12 481-507 14
Stjarnan 19 5 1 13 452-510 11
Fram 19 5 1 13 503-535 11
Undankeppni EM:
Bretland-Ísland 16-27
Mörk Íslands: Hanna G. Stefánsdóttir 13, Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Hrafnhildur Skúladóttir
3, Sunna Jónsdóttir 3, Karen Knútsdóttir 1, Harpa
Sif Eyjólfsdóttir 1, Rakel Dögg Bragadóttir 1, Stella
Sigurðardóttir 1 og Rebekka Rut Skúladóttir 1.
Berglind Íris Hansdóttir varði 17 bolta í markinu.
ÚRSLIT
> Einar áfram með Framstelpur
Einar Jónsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára
samning við handknattleiksdeild Fram um að hann þjálfi
meistaraflokk kvenna áfram líkt og hann hefur gert und-
anfarin ár. „Þetta er eitt af fáum alvöru liðum á landinu
í dag. Það eru spennandi tímar fram undan hjá okkur
og við stefnum meðal annars á að komast enn lengra í
Evrópukeppninni á næsta ári,“ sagði Einar
en margir bjuggust við því að hann
myndi færa sig í karlaboltann í sumar.
„Ég fékk fyrirspurnir frá karlaliðum en
vísaði þeim frá mér að þessu sinni.
Ég vil halda þessu starfi
áfram núna.“
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið fór góða ferð til London í
gær er það lagði Breta að velli,
27-16, í undankeppni EM. Ísland
var átta mörkum yfir í hálfleik,
15-7.
Íslenska liðið var miklu betra
frá upphafi og sigur liðsins
aldrei í hættu. Vörn liðsins og
mark varsla þétt og bresku stelp-
urnar sáu aldrei til sólar. - hbg
Kvennalandsliðið vann:
Hanna skaut
Breta í kaf
KÖRFUBOLTI Kvennalið KR getur á
laugardag tryggt sér Íslandsmeist-
aratitilinn eftir að hafa í gær náð
2-1 forystu í einvíginu við Hamar.
KR vann 83-61 heimasigur en
næsti leikur verður í Hveragerði
þar sem Vesturbæjarliðið hefur
ekki tapað í vetur.
Í sautján ára sögu úrslitakeppni
kvenna hefur það lið sem kemst í
2-1 í úrslitaeinvíginu ávallt staðið
uppi sem sigurvegari. Hamarskon-
ur þurfa því að snúa við sögunni til
að hampa titlinum.
„Liðið sem vinnur þrjá leiki
verður meistari og það skiptir
engu máli hvort er á undan upp
í tvo. Við leiddum allan leikinn
fyrir utan fyrstu stigin. Við vorum
að gera fullt af mistökum í þess-
um leik. Vörnin var töluvert betri
í seinni hálfleik en þeim fyrri og
það var lykillinn að þessu,“ sagði
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
KR, sem er langt frá því að vera
byrjaður að fagna.
„Við þurfum að eiga algjör-
an toppleik á laugardaginn. Það
er mjög auðvelt að mæta til leiks
með einhverja værukærð í svona
úrslitaleik eftir það sem á undan
er gengið.“
Unnur Tara Jónsdóttir átti stór-
leik fyrir KR, skoraði 33 stig og
tók 8 fráköst. „Hún hefur verið
svona alla þessa úrslitakeppni.
Bara ógeðslega góð,“ sagði Bene-
dikt.
KR byrjaði leikinn í gær af
krafti gegn vængbrotnu liði Ham-
ars sem var án Guðbjargar Sverr-
isdóttur sem var veik og þá á Julia
Demirer við meiðsli að stríða. KR
náði mest ellefu stiga forystu í
fyrsta leikhluta en staðan var 27-
19 að honum loknum.
Hamarskonur náðu að minnka
muninn í þrjú stig í öðrum leik-
hluta en síðustu stigin fyrir hlé
komu frá KR og staðan 42-35 í
hálfleik. Heimaliðið setti í næsta
gír eftir hlé og þá var nánast
aldrei spurning hvoru meginn sig-
urinn myndi enda. Mörgum þótti
dómgæslan halla á gestina í seinni
hálfleik en 22 stiga sigur KR stað-
reynd.
„Ég er ekki dómbær á hvort
dómgæslan hafi hallað á okkur.
Ég vil alltaf fá meira. Það er hlut-
lausra aðila að dæma um það,“
sagði Ágúst Björgvinsson, þjálf-
ari Hamars.
„Við erum komnar í stöðu sem
við þekkjum. Við lentum í nákvæm-
lega sömu stöðu gegn Keflavík og
þurfum bara að klóra okkur út úr
þessu. Við náðum að stríða KR í
þessum leik og með smá herslumun
þá hefðum við getað náð forystu í
leiknum og þetta hefði þá getað
endað öðruvísi,“ sagði Ágúst. - egm
Kvennalið KR komið í vænlega stöðu í rimmunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur í þriðja leik:
Verkefni Hamars að endurskrifa söguna
LOKAÐ Hamar komst lítt áfram gegn KR
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Baráttan í N1-deild
karla harðnaði enn frekar eftir
leiki gærkvöldsins.
Valur vann gríðarlega mikil-
vægan sigur á Akureyri og komst
fyrir vikið í annað sæti deildar-
innar. Akureyri að gefa svolítið
eftir í síðustu leikjum.
HK nældi einnig í mikilvæg
stig er liðið lagði Íslands- og bik-
armeistara Hauka af velli en
Haukar eru að slaka frekar mikið
á þessa dagana. Bjarki Már Elís-
son og Valdimar Þórsson sterkir í
liði HK að þessu sinni.
FH marði sigur á Fram og hélt
sér þar með í baráttunni um að
komast í úrslitakeppnina. Algjör-
lega lífsnauðsynlegur sigur hjá
þeim. Liðið lék án Ólafs Guð-
mundssonar sem er í leikbanni en
Bjarni Fritzson fór fyrir FH-lið-
inu í gær með átta mörkum.
Fram er sem fyrr á botnin-
um en er þó jafnt að stigum
við Stjörnuna sem tapaði fyrir
Gróttu í dramatískum leik á Nes-
inu. Þar fór hornamaðurinn Jón
Karl Björnsson mikinn og skoraði
13 mörk í leiknum.
Grótta með sigrinum búið
að slíta sig aðeins frá Fram
og Stjörnunni. Tilkoma Geirs
Sveinssonar hefur hleypt miklu
lífi í Nesbúa. - hbg
N1-deild karla:
Valur í annað
sætið
STERKUR Ingvar Árnason skorar hér eitt
af fimm mörkum sínum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Síðari leikur Barcelona og
Arsenal í Meistaradeildinni verður
afar áhugaverður. Liðin gerðu 2-2
jafntefli á Emirates í gær. Börs ung-
ar verða án miðvarða sinna í seinna
leiknum en þeir fóru báðir í bann
í leiknum. Sömu sögu er að segja
af Cesc Fabregas sem fékk gult og
fær ekki að spila á heimavelli liðs-
ins sem ól hann upp.
Fyrri hálfleikur hjá Barcelona
á Emirates í gær var algjör knatt-
spyrnuveisla. Börsungar spiluðu
stórbrotna knattspyrnu og léku
heimamenn sundur og saman.
Sem betur fer fyrir Arsenal var
markvörðurinn Manuel Almunia
að spila leik lífs síns í fyrri hálf-
leik.
Börsungar byrjuðu síðari hálf-
leik af álíka krafti og eftir aðeins
nokkrar sekúndur í síðari hálfleik
var Zlatan Ibrahimovic búinn að
koma Börsungum yfir. Fékk send-
ingu inn í teig. Almunia ákvað að
eyðileggja fullkominn leik með því
að fara í glórulaust úthlaup. Zlatan
þakkaði pent fyrir með því að lyfta
boltanum yfir hann og í markið.
Þegar tæpur klukkutími
var liðinn af leiknum átti Xavi
góða stungusendingu á Zlatan.
Rang stöðuvörn Arsenal brást og
Zlatan kláraði færið með stæl. 2-0
fyrir Barcelona. Til að bæta gráu
ofan á svart fékk Cesc Fabre-
gas, fyrirliði Arsenal, að líta gula
spjaldið í millitíðinni og hann verð-
ur því í leikbanni í síðari leiknum.
Theo Walcott kom af bekknum
eftir seinna markið og hleypti um
leið miklu lífi í leik Arsenal. Hann
minnkaði síðan muninn 20 mínút-
um fyrir leikslok. Fékk stungu-
sendingi frá Nicklas Bendtner
sem hann kláraði með smekklegu
skoti í fjærhornið. Smá líflína fyrir
Arsenal. Sú líflína lengdist heldur
betur fimm mínútum fyrir leikslok
er Fabregas krækti í víti og Carles
Puyol þess utan vikið af velli sem
var harður dómur. Fabregas tók
vítið sjálfur og skoraði örugglega.
Hann meiddist reyndar við að taka
vítið og haltraði það sem eftir lifði
leiks. Puyol er kominn í bann sem
og Gerard Pique. Barcelona þarf
því að finna nýja miðverði fyrir
síðari leikinn.
Thierry Henry kom af bekkn-
um þegar 14 mínútur voru eftir
af leiknum og fékk ákaflega hlýj-
ar móttökur hjá stuðningsmönn-
um Arsenal. „Byrjun leiksins var
okkur geysilega erfið. Þeir hefðu
getað skorað nokkur mörk á fyrstu
20 mínútunum. Við vorum að tapa
boltanum of snemma en leikmenn-
irnir neituðu að gefast upp,“ sagði
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
eftir leikinn.
„Bæði lið klúðruðu ótrúlegum
færum. Mér fannst jafntefli að
lokum vera sanngjörn úrslit.“
henry@frettabladid.is
Arsenal gafst ekki upp
Arsenal átti magnaða endurkomu gegn Barcelona í gær. Sneri gjörtöpuðum leik
upp í jafntefli og allt opið fyrir seinni leikinn. Inter vann heimasigur á CSKA.
DRAUMURINN ÚTI Fabregas var gráti næst er hann fékk gult spjald sem þýðir að
hann verður í leikbanni er Arsenal mætir á heimavöll félagsins sem ól hann upp.
NORDIC PHOTOS/AFP