Fréttablaðið - 01.04.2010, Side 57
FIMMTUDAGUR 1. apríl 2010 45
KÖRFUBOLTI Í kvöld kemur í ljós hvaða tvö
lið fylgja KR og Snæfelli inn í undanúrslit
Iceland Express-deildar karla en þá fara
fram oddaleikir í Ásgarði í Garðabænum
og í Toyota-höllinni í Keflavík.
Tindastóll og Stjarnan tryggðu sér odda-
leik í síðasta leik en eru þó í ólíkri stöðu
í kvöld, Stjarnan er á heimavelli sínum á
móti Njarðvík á sama tíma og Stólarnir
heimsækja Keflvíkinga í sláturhúsið. Báðir
leikir herfjast klukkan 19.15.
Þjálfarar leiksins í Ásgarði verða í sviðs-
ljósinu í kvöld og það eru fáir í íslenska
körfuboltanum með meiri reynslu í úrslita-
leikjum í úrslitakeppni.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarð-
víkur, og Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörn-
unnar, hafa saman tekið þátt í 36
oddaleikjum á ferlinum fyrir
leik liða þeirra í Garðabænum
í kvöld. Í þessum leikjum hefur
Sigurður þó alltaf verið liðs-
maður Keflavíkur og Teitur
hefur verið Njarð-
víkingur í þeim
ö l lu m nem a
einum.
Sigurður
hefur tekið þátt í
21 oddaleik sem
leikmaður eða þjálfari og lið
hans hafa unnið í 12 af þess-
um leikjum.
Teitur hefur tekið þátt í
15 oddaleikjum sem leik-
maður eða þjálfari og lið
hans hafa unnið tíu af
þessum fimmtán
oddaleikjum.
Teitur hefur
betur í inn-
byrðis-odda-
leikjum þess-
ara kappa en
hann hefur
unnið 3 af 5 oddaleikjum sínum á móti Sig-
urði. Sigurður vann þann fyrsta og þann
síðasta en þetta er í fyrsta sinn sem þeir
mætast sem þjálfarar í oddaleik. - óój
Tveir spennandi oddaleikir fara fram í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld:
Teitur og Sigurður þekkja vel þessa stöðu
ODDALEIKJAREYNSLAN
Sigurður Ingimundarson
Leikir 21
Sigrar (hlutfall) 12 (57%)
Leikir sem þjálfari 9
Sigrar sem þjálfari 5 (56%)
Sigrar á móti Teiti 2 (40%)
Teitur Örlygsson
Leikir 15
Sigrar (hlutfall) 10 (67%)
Leikir sem þjálfari 2
Sigrar sem þjálfari 1 (50%)
Sigrar á móti Sigurði 3 (60%)
KÖRFUBOLTI Ólafur Rafnsson, for-
seti ÍSÍ og fyrrverandi formað-
ur KKÍ, er í framboði til forseta
FIBA Europe og nú er ljóst að
hann fær mótframboð frá Tyrk-
landi um stöðuna því varaforseti
FIBA Europe býður sig fram gegn
honum en kosið verður 15. maí.
Ólafur Rafnsson var lengi vel
einn í framboði en hann er núver-
andi stjórnarmaður FIBA Europe
ásamt því að hafa verið í fleiri
nefndum innan sambandsins í
gegnum tíðina.
Turgay Demirel frá Tyrklandi
ákvað á síðustu stundu að bjóða
sig fram gegn Ólafi. Hann er for-
seti Tyrkneska sambandsins og
varaforseti FIBA Europe. Hann
hefur áður boðið sig fram í fyrsta
sætið en þá hlaut hann ekki kosn-
ingu. - óój
Forsetakosningar Fiba Europe:
Ólafur fær mót-
framboð
ÓLAFUR RAFNSSON Forseti ÍSÍ og stjórn-
armaður í FIBA Europe. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdótt-
ir fékk mikla viðurkenningu í
gær þegar Fréttastofan Associ-
ated Press valdi úrvalslið ársins
í bandaríska háskólaboltanum.
Helena var í hópi þeirra leik-
manna sem voru næstir því að
komast inn í úrvalsliðin þrjú.
Viðurkenningin heitir á ensku
„All-America honorable-ment-
ion“ en fimmtán bestu leikmenn
landsins komast í úrvalsliðin
þrjú en næstu þrjátíu leikmenn
fá síðan þessa sérstöku viður-
kenningu. Helena er því í hópi 45
bestu háskólaleikmanna Banda-
ríkjanna sem er mikill heiður
fyrir hana.
Helena leiddi TCU-liðið í bæði
stoðsendingum (5,2 í leik) og
stolnum boltum (2,2) og hún var
í öðru sæti í liðinu í stigaskori
(13,5) og fráköstum (6,5). Helena
er enn fremur þriðji leikmaður-
inn í sögu TCU sem fær svona
viðurkenningu frá Associated
Press en hinar tvær voru báðar
valdar inn í WNBA-deildina. - óój
Helena Sverrisdóttir hjá TCU:
Ein af þeim 45
bestu í vetur
FRÁBÆRT TÍMABIL Helena Sverrisdóttir
stóð sig vel með TCU í vetur. MYND/AP
www.ms.is/gottimatinn
GOTT Í MATINN Í KVÖLD?
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta inn á www.gottimatinn.is
– Þú fi nur fjölda girnilegra uppskrifta á www.gotti i .i
gleðilega páskahátíð
Er ekki uppla
gt að búa til
skyramísú á s
kyrdag?
REYNDIR Sigurður Ingimundar-
son og Teitur Örlygsson.