Fréttablaðið - 01.04.2010, Síða 62
50 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. hæfileiki, 6. kraðak, 8. meðal, 9.
skraf, 11. tveir eins, 12. afspurn, 14.
gistihús, 16. mun, 17. bjálki, 18. regla,
20. klaki, 21. bylta.
LÓÐRÉTT
1. eins, 3. fisk, 4. ölvun, 5. máttur, 7.
sáttir, 10. hlóðir, 13. sigað, 15. dó, 16.
kóf, 19. gangþófi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfa, 6. ös, 8. lyf, 9. mas,
11. ll, 12. umtal, 14. hótel, 16. ku, 17.
tré, 18. agi, 20. ís, 21. fall.
LÓÐRÉTT: 1. sömu, 3. ál, 4. fyllerí, 5.
afl, 7. samhuga, 10. stó, 13. att, 15.
lést, 16. kaf, 19. il.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Finnska skáldkonan
Sofi Oksanen.
2 Hann er goðsögn
í heimi blústónlistar.
3 Verða haldnir í
tólfta sinn um páskana.
„Sá sveitti“ á Prikinu bjargar oft
deginum enda þarf maður lítið
annað að borða yfir daginn ef
maður kemst lifandi í gegnum
þann sveitta. Svo klikkar Tapas-
barinn aldrei ef mann langar í
allt. Þar fær maður mikið fyrir
peninginn.“
Matthías Már Magnússon útvarpsmaður.
Tom Selleck-mottukeppnin var
endurvakin á Boston á þriðjudags-
kvöld. Hátt í tuttugu álitlegar mott-
ur tóku þátt í keppninni sem var
hörkuspennandi frá byrjun til enda.
Þorsteinn Guðmundsson var
kynnir keppninnar og mætti óvænt
með svart hár og svarta mottu sem
hann litaði með hárspreyi skömmu
fyrir keppni. Einhverjir sögðu að
Þorsteinn væri sláandi líkur Tom
Selleck á sínum yngri árum en
aðrir töldu hann líkjast
hinum stórglæsilega Burt
Reynolds. Flestir voru þó
sammála um að
Þorsteinn væri
talsvert fyndnari
en hinir banda-
rísku tvífarar
hans.
Fagurkerinn Aron Bergmann stóð
uppi sem sigurvegari keppninnar,
en úrslitin þóttu afar umdeild. Aron
skartar þunnri og snyrtilegri mottu
sem mörgum í hópi áhorfenda
fannst ekki mikið til koma, þótt
dómnefndin hafi gjörsamlega fallið
fyrir henni. Dómnefndin
var ekki skipuð neinum
aukvisum; þar fór
Þorgeir Ástvaldsson
fremstur í flokki, en við
hlið hans sátu Jón
Atli klippari, Sigga
Boston og sig-
urvegari síðustu
keppni, Erik Hirt.
Söng- og leikkonan Ísgerður Elfa
sendir frá sér plötuna Bara plata í
dag 1. apríl. Ísgerður er ekki bara
að plata því platan er komin í sölu
á Tónlist.is. Platan átti að koma
út í dag, en smá tafir urðu til þess
að hún kemur til landsins eftir
páska. Og það er ekki plat. Annars
virðast einhvers konar
álög hvíla á plötunni
þar sem sprungið dekk,
biluð hárþurrka, brotinn
blandari og bilaður
skrifari er aðeins
brot af því sem fór
úrskeiðis meðan á
upptökum stóð. -afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég sem gamall hippi hefði aldrei
ímyndað mér að ég ætti eftir að
verða flugfreyja. Maður fussaði
nánast og sveiaði yfir vinkonum
sínum sem fóru í þetta á sínum
tíma og fannst þetta jafnast á
við að taka þátt í fegurðarsam-
keppni,“ segir Edda Björgvins-
dóttir. Sem verður að éta stóru
orðin því hún útskrifaðist sem
flugfreyja hjá Iceland Express í
gær ásamt 38 öðrum flugliðum.
Edda er þegar komin með vinnu
og mun fljúga til 25 áfangastaða í
sumar með flugfélaginu.
Edda hefur reyndar kennt
framsögu í flugliðaskóla Iceland
Express en þegar hún sat eitt sinn
og barmaði sér yfir verkefna-
leysi sumarsins stakk ein vin-
kona hennar hjá flugfélaginu upp
á því að hún skyldi bara skella sér
í skólann sjálf.
Námið kom henni hins vegar
á óvart. „Ef mér hefði verið sagt
hversu mikil vinna lægi þarna að
baki þá hefði ég aldrei farið, ég
hefði bara hlegið mig máttlausa.
Að læra einhverjar fimm hundr-
uð blaðsíður utan að og fara í
tvö próf á dag? Nei, held barasta
ekki,“ útskýrir Edda og hlær en
hún sér svo sannarlega ekki eftir
þessari ákvörðun sinni. „Nei, það
hefur líka alltaf verið tilhneiging
hjá mér að gera hlutina í öfugri
röð og þetta er bara hluti af því
mynstri.“
Og þessa ástsæla leikkona segir
að flugfreyjubúningurinn sjálf-
ur fari sér bara ljómandi vel og
hún telur að þetta sé eitthvað sem
konur á besta aldri geti nýtt sér.
„Já, mér finnst þetta falleg og
mikilvæg skilaboð til kvenna sem
eru komnar yfir 27 ára aldurinn.
Allavega get ég ekki beðið eftir
því að byrja og nú er ég komin
með fasta sumarvinnu næstu 25
árin.“ - fgg
Edda Björgvins útskrifuð sem flugfreyja
Í FRÍÐUM HÓPI Edda Björgvinsdóttir er fyrir miðju í fríðum hópi flugliða og kennara.
Hún mun fljúga með flugvélum Iceland Express til 25 áfangastaða í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EDDA BJÖRGVINS
„Ég er búinn að vera með umboðs-
mann í Bandaríkjunum sem ég
hef unnið náið með í tvö til þrjú ár
og þetta var fyrsta alvörubreikið,“
segir ljósmyndarinn Ari Magg.
Ari tók að sér verkefni fyrir
bandaríska farsímaframleið-
andann Motorola í desember,
en myndirnar voru teknar í San
Francisco í Bandaríkjunum rétt
fyrir jól. Herferðin er nýfar-
in af stað og í aðalhlutverki er
sjónvarpsstjarnan Mike Rowe,
sem stýrir þáttunum Dirty Jobs.
Þættirnir hafa verið sýndir á sjón-
varpsstöðinni Discovery í fjögur
ár og notið talsverðra vinsælda.
„Ég var meðal annars með
hann í holræsum borgarinnar. Við
vorum á þremur mismunandi stöð-
um í kringum San Francisco og
voru tökustaðirnir mjög í ætt við
þættina hans; skítugir og daunill-
ir. Hann fílaði það í tætlur,“ segir
Ari um verkefnið. „Myndirnar
eru í mínum anda. Ég naut mín vel
og hafði nokkuð frjálsar hendur í
tökunum miðað við það sem geng-
ur og gerist í verkefnum af þess-
ari stærðargráðu.“
Auglýsingarnar eru meðal
annars fyrir Motorola Brute og
I1 síma og verða sýnilegar um
gjörvöll Bandaríkin á risavöxn-
um skiltum, í tímaritum, blöðum
og í verslunum Sprint, sem selja
Motorola-síma. Ari hefur unnið
að því að koma sér á framfæri í
New York undanfarin ár og játar
að púlið sé nú að skila sér. „Þetta
er fyrsta alvöruverkefnið. Meist-
aradeildin,“ segir hann í léttum
dúr. „Ég er búinn að vera að vinna
mjög markvisst að þessu í þónokk-
urn tíma og núna er loksins eitt-
hvað almennilegt að gerast. Þetta
er erfiður markaður og það tekur
tíma að ná árangri.“
Ari lofar samstarfið við Mike
Rowe, sem hefur starfað lengi í
bandarísku sjónvarpi, bæði sem
þáttastjórnandi og rödd ýmissa
þátta, þar á meðal upphafsrödd
World News á sjónvarpsstöðinni
ABC.
„Hann hefur mjög sterka og
þægilega nærveru,“ segir Ari og
neitar því að hann sé með nokk-
urs konar stjörnustæla. „Hann er
ótrúlega viðkunnanlegur, í raun
bara alveg eins og hann kemur
fyrir í þessum þáttum.“
atlifannar@frettabladid.is
ARI MAGG: ALVÖRUBREIK FYRIR MOTOROLA Í BANDARÍKJUNUM
Myndaði sjónvarpsstjörnu
í holræsum í San Francisco
„Fyrsta sem maður gerði var auð-
vitað að athuga með strákinn á leik-
skólanum en þetta var svo stað-
bundið að þau höfðu ekkert orðið
vör við þetta,“ segir Völundur Snær
Völundarson, best þekktur sem Völli
Snær. Hann slapp naumlega undan
ský strók sem herjaði á íbúa Grand
Bahama-eyjunnar í Karíbahafinu á
mánudaginn. Slík veðrabrigði eru
mjög sjaldgæf á þessum slóðum
og sjálfur hafði kokkurinn aldrei
séð slíkt með eigin augum. „Þetta
getur komið út frá þrumuveðrum en
er miklu algengara í Flórída. Það er
kona sem hefur búið hérna í nítján
ár og vinnur hjá mér og hún hafði
aldrei upplifað svona,“ segir Völli.
Hann rekur veitingastaðinn Sabor
við Pelican Bay-hótelbyggingarn-
ar, sem standa nálægt Port Lucaya-
höfninni, ásamt konu sinni, Þóru
Sigurðardóttur.
Völl i segir tímasetningu
ský stróksins hafa verið lán í óláni.“
Já, sem betur fer reið þetta yfir um
klukkan hálf tólf þannig að það voru
ekki margir gestir komnir í mat.
Þeir sem sátu úti náðu að koma sér
í skjól inni í eldhúsi,“ segir Völli.
„Ég sat bara á skrifstofunni minni
og svo allt í einu heyrði maður
bara soghljóð. Þetta stóð stutt yfir,
kannski tíu sekúndur en var alveg
rosalegur hvellur. Það er hreint út
sagt magnaður kraftur í þessu fyr-
irbæri og sólbekkir, stólar og borð
úr massívum viði, sem þarf tvo
til að bera, feyktust langt út á haf.
Bátar slitnuðu frá bryggju, strætó-
skýli ultu um koll og pálmatré rifn-
uðu upp með rótum,“ segir Völli en
hann vildi ekki meina að hann hefði
orðið eitthvað hræddur. „Nei, maður
hefur nú upplifað þrjá fellibyli.“
- fgg
Slapp naumlega undan skýstrók
MÖGNUÐ LÍFSREYNSLA
Völli Snær sá níðþung húsgögn fjúka
út á haf þegar skýstrókur fór yfir
Ba hama-eyjar. Þrír létust þegar lönd-
unarkrani við höfnina hrundi en hvorki
Völla né öðrum fjölskyldumeðlimum
varð meint af.
VERKEFNI FYRIR MOTOROLA Sjónvarpsstjarnan Mike Rowe er í aðalhlutverki í nýrri herferð sem Ari Magg myndaði í San
Francisco í desember á síðasta ári. MYND/ARI MAGG