Fréttablaðið - 08.04.2010, Blaðsíða 26
8. apríl 2010 FIMMTUDAGUR2
Hönnunarveislan HönnunarMars
er nýafstaðin en þar sýndu íslenskir
hönnuðir vörur sínar á hinum ýmsu
uppákomum. Ein þessara uppákoma
var Popup-verslun sem opnuð var í
gamla Saltfélagshúsinu við Granda-
garð og þar sýndi Erna Skúladótt-
ir hönnun sína. Erna hefur hann-
að skartgripi úr postulíni sem hún
kallar Veðramen.
„Innblásturinn að skartgripun-
um sótti ég í veðrið en það hefur
svo mikil áhrif á okkur,“ útskýr-
ir Erna en Veðramen eru þrjár
línur sem heita Regn, Snjór og Ís.
„Veðrið getur verið afskaplega
öfgakennt, og breyst úr brjáluðum
stormi í blíðskaparveður á nánast
augabragði. Ég vildi fanga þá feg-
urð sem er í loftinu þegar veðr-
ið er stillt og rólegt. Snjórinn er
allt í kringum mann eða jafnvel
smá rigning og rómantíkin nánast
áþreifanleg,“ útskýrir Erna.
Talsverð umferð var af fólki
gegnum Popup-markaðinn á
HönnunarMarsinum og segir
Erna vel hafa gengið og að áhug-
inn á íslenskri hönnun sé mikill.
„Stemningin var mjög skemmti-
leg. Það voru bara allir svo spennt-
ir og glaðir og svo gaman að hitta
allt fólkið sem var á ferðinni um
markaðinn.“
Skartgripalínan er lokaverkefni
Ernu úr mótun í Myndlistaskóla
Reykjavíkur og er seld í verslun-
inni Aurum í Banskastræti. Erna
er nú í árs fríi frá námi en stefnir
á Listaháskóla í Bergen í Noregi í
haust. Þessa dagana vinnur hún að
nytjahlutum úr postulíni en getur
vel hugsað sér að vinna frekar með
skart. „Ég hef alltaf verið glingur-
gjörn gegnum tíðina og á mikið
af skarti sjálf. Ég held örugglega
áfram að hanna skartgripi og fer
jafnvel í frekara nám tengt því. Í
hönnun skartgripa er hægt að leyfa
sér svo margt, þeir eru eins og not-
hæfur skúlptúr.“ heida@frettabladid.is
Fjúk um háls og herðar
Íslensk náttúra verður íslenskum hönnuðum og listafólki gjarnan uppspretta hugmynda. Í skartgripalín-
unni Veðramen hefur óstýrilát veðráttan verið steypt í postulín.
Erna Skúladóttir stefnir á frekara kera-
mik nám í Listaháskólanum í Bergen í
haust. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íslensk náttúra hefur löngum verið listafólki innblástur. Ís eða jökull um hálsinn en Veðramen Ernu eru innblásin af
íslenska veðrinu. Ingibjörg Skúladóttir, litla systir hönnuðarins,
er fyrirsæta. MYND/ERNA SKÚLADÓTTIR
RAUÐUR KJÓLL sem fyrirsæta klæðist í Special K
auglýsingu Kellogg’s vakti svo mikla athygli tískumeðvit-
aðra áhorfenda að ákveðið hefur verið að selja svona
kjóla í verslunarkeðjunni Marks & Spencer.
Tískuhönnuðurinn Erdem Moralioglu hlaut vegleg
verðlaun á dögunum.
Erdem Moralioglu er þrítugur breskur tískuhönnuð-
ur sem hefur vakið athygli að undanförnu. Þannig
hlaut hann til að mynda verðlaun breska tískuráðsins á
dögunum og þar með 200 þúsund
punda verðlaunafé sem hinn
ungi hönnuður getur notað til
að þróa áfram tískumerki
sitt.
Erdem Moralioglu
fæddist í Kanada 1977.
Faðir hans er Tyrki
en móðirin bresk
og Erdem ólst upp í
Montreal og Birm-
ingham. Hann stund-
aði listnám áður
en hann fékk
stöðu hjá Vivi-
enne Westwood þar sem hann fann
sína sönnu köllun í tískuiðnaðinum.
Hann nam við konunglega lista-
háskólann í London en eftir útskrift
starfaði hann fyrir Diane Furst-
enberg í New York. Hann stofnaði
eigið tískumerki sitt, Erdem, árið
2005.
Klæðnaður Erdem einkennist
af litríkum mynstrum en hann
fær innblástur frá þeim fjöl-
mörgu löndum og menningar-
heimum sem hann kynntist
með fjölskyldu sinni sem barn.
Meðal viðskiptavina Erdem
eru Michelle Obama, Sarah
Brown, Samantha Cameron,
Tilda Swinton, Nicole Richie
og Claudia Schiffer.
Erdem verðlaunaður
Erdem Moralioglu.
Skræpóttur
samfestingur
úr haustlínu
Erdem 2009.
Fagur kóngablár
kjóll frá Erdem.
Kr. 2.193,-
Kr. 1.293,-
Sjá nánar á
www.enskafyriralla.is
Enskuskóli Erlu Ara
Enskunámskeið í Hafnarfi rði fyrir fullorðna. Fimm vikna vornámskeið
sem hefjast þann 12. apríl. Einnig stendur yfi r skráning í námsferðir
til Englands. Í boði eru bæði ferðir fyrir unglinga og fullorðna
Skráning í síma 8917576 og erlaara@simnet.is
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Bæjarlind 6 - Eddufelli 2
Sími 554-7030 Sími 557-1730
www.rita.is
Gallapils kr. 5.900
Langermabolur kr. 2.900
Margir litir