Fréttablaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 20
9. apríl 2010 2
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
til 12
. a
p
ril e
ð
a
á
m
e
ð
a
n
b
irg
ð
ir e
n
d
a
s
t, a
u
g
lýs
t ve
rð
e
r tilb
o
ð
s
ve
rð
.
Lambafile m/fitu
kryddlegið, frá Goða
2.848 kr/kg
Ferskur kjúklingur
frá Móa
694 kr
Pítubuff og
brauð
6 stk, frá Goða
769 kr
Bananar
199 kr/kg
Lambalæri
kryddað, frá Kosti
1.238 kr/kg
-30%
afsláttur
-35%
afsláttur
-20%
afsláttur
-35%
afsláttur
-30%
afsláttur
Góður Kostur
á góðum afslætti
„Mexíkóborg er í brennidepli í
mörgum þeirra kvikmynda sem
sýndar eru á þessum mexíkósku
kvikmyndadögum. Þær eru mjög
áhugaverðar og veita mörgum
nýja sýn á það hvernig lífið í þess-
ari risastóru borg gengur fyrir
sig,“ segir Vala Smáradóttir, nemi
við Háskóla Íslands (HÍ), sem er
ein þeirra sem standa fyrir mex-
íkóskum kvikmyndadögum í HÍ.
Dagskráin stendur fram á laugar-
dag og er ætlað að veita innsýn í
blómlega kvikmyndagerð Mexíkós
um þessar mundir, án þess þó að
vanrækja fyrri tíma og sögulegar
hefðir.
Það eru nemar í spænsku og
kvikmyndafræði við HÍ sem
skipuleggja dagskrána í tengsl-
um við sameiginlegan áfanga
sem nefnist Kvikmyndir róm-
önsku Ameríku. Samhliða áfang-
anum reka nemarnir kvikmynda-
klúbbinn Cine Club Hispano sem
hefur staðið fyrir vikulegum
kvikmyndasýningum síðan um
áramót.
„Við höfðum einungis lítillega
kynnt okkur mexíkóskar kvik-
myndir í náminu og þótti því tilval-
ið að hafa landið sem þema á kvik-
myndadögunum,“ segir Vala. „Um
aldamótin varð ákveðin sprenging
í kvikmyndagerð í Mexíkó. Margar
myndanna eru þroskasögur sem
eiga sér stað í Mexíkóborg og
henta vel til að kynna mexíkóska
kvikmyndagerð. Þó sýnum við
einnig tvær myndir frá sjötta og
sjöunda áratugnum á laugardag-
inn, þar sem karakterinn Cantin-
flas er í aðalhlutverki. Cantinflas
þessi var nokkurs konar Chapl-
in þeirra Mexíkóbúa og Chaplin
sjálfur lét eitt sinn hafa eftir sér
að Cantinflas væri einn fyndnasti
maður heims. Það er mikill fengur
að þessum myndum, því nokkuð
erfitt er að nálgast þær.“
Í dag verða sýndar tvær mynd-
ir frá árinu 2001, Og mamma þín
líka, eða Y tu mamá también, og
Fjóluilmur, eða Perfume de violet-
as. Sýningarnar fara fram klukk-
an 18 og 20 í stofu 101 í Lögbergi.
Nánari upplýsingar er að finna á
vef HÍ, hi.is. kjartan@frettabladid.is
Mexíkóskar þroskasögur
Nemendur í spænsku og kvikmyndafræði standa fyrir mexíkóskum kvikmyndadögum sem hófust í gær
og standa fram á laugardag. Ætlunin er að veita innsýn í blómlega kvikmyndagerð landsins.
MÖGULEIKHÚSIÐ verður með aukasýningu á barnaleik-
ritinu Langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárn í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun klukkan 14.
„Ert þú foli 666?“ er spurning sem borin
er upp í einum af ellefu einþáttungum
Leikfélags Mosfellssveitar. Í honum er
fólk að hittast í fyrsta sinn eftir spenn-
andi samskipti á Netinu. Einþáttung-
ar Mosfellinganna eru mislangir og efnið
mjög fjölbreytt, spannar allt frá léttu gríni
til áleitinna pælinga, en á það sameig-
inlegt að glefsa í áhorfandann með ein-
hverjum hætti. Höfundar eru María Guð-
mundsdóttir og Pétur R. Pétursson og
leikstjórar Bóel Hallgrímsdóttir, Guðný
María Jónsdóttir og Ólöf A. Þórðardóttir.
Sýningar verða á sunnudögum í vor
og hægt er að panta miða í síma 566
7788. - gun
Bæði góðlátlegt grín og pælingar
ELLEFU STUTT VERK VERÐA FRUMSÝND Í BÆJARLEIKHÚSINU Í MOSFELLSBÆ KLUKKAN
21 Í KVÖLD. UPPFÆRSLAN HEITIR GLEFSUR.
Dóra Wild í einu hlutverki sínu.
MYND/JÓH.VALG.
Vala (í fremri röð lengst til hægri) ásamt samnemendum sínum og kennara þeirra,
Hólmfríði Garðarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
▼
Laugavegi 178 - Sími: 551 2070
Sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
teg. 10253 - mjúkur og yndislegur í
BCD skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-
teg. 26021 - létt fylltur og sumarlegur
í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-
FimmtudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447