Fréttablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 29
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
KJÓLL DÍÖNU PRINSESSU, sem hún klæddist þegar hún kom fram
opinberlega í fyrsta sinn með Karli Bretaprinsi árið 1981, verður boðinn upp
í sumar. Áður var talið að Díana hefði fargað kjólnum en hann fannst nýlega
í fórum kjólameistaranna Davids og Elizabeth Emanuel. Kjóllinn verður boðinn
upp hjá uppboðsskrifstofunni Kerry Taylor í London 8. júní.
„Allt frá því ég var smástelpa hef
ég verið ólæknandi fatafrík og
þekkt fyrir að elska tísku,“ segir
Hallfríður um sinn eigin, afger-
andi fatastíl. „Fötin sem ég klæðist
á myndinni má segja að einkenni
mig; ég elska kjóla með sérstak-
an karakter og sem minna á bún-
inga, eins og þessi sem minnir á
skólabúning. Þá dýrka ég pallíett-
ur, kögur og slaufur eins og sjá má
á kjólnum, skónum og jakkanum,“
segir Hallfríður sem unnið hefur
í Spútnik með skólanum.
„Þar hef ég fundið ótrúlegar
gersemar, en einnig kíki ég í aðrar
búðir sem selja notaðan fatnað því
mér líður illa ef ég veit um fólk
sem á föt eins og ég,“ segir Hall-
fríður sem einnig finnur margt
forvitnilegt fatakyns í útlöndum.
„Þar leita ég aðallega að fötum sem
enginn annar gæti mögulega átt og
oftast sé ég nafnið mitt langar leið-
ir á fötum sem ég kaupi,“ segir hún
hlæjandi. „Ég er auðvitað hrifin af
bæði þekktum og óþekktum hönn-
uðum, en í raun skiptir mig engu
hvaðan fötin eru, bara að þau séu
ég og eftir mínum sérstaka stíl.“
Hallfríður er lífsgleðin uppmál-
uð og á stóran, fullan fataskáp af
ótrúlegum flíkum. „Ég kaupi nú
ekki mikið en það sem ég kaupi er
tímalaust. Þannig elska ég þennan
doppótta kjól jafn mikið og þegar
ég féll fyrir honum í búðinni og
hef reyndar þannig dálæti á öllum
mínum fötum því ég kaupi ekkert
nema það virkilega nái til mín.“
Hallfríður útskrifast úr Verzl-
unarskólanum í vor, en þar er hún
formaður Listafélagsins. Um síð-
ustu helgi lenti hún í þriðja sæti
í Söngkeppni framhaldsskólanna
með laginu Þar sem framtíðin er,
eftir Florence and the Machine,
eftir að hafa sigrað Verslóvælið á
undan.
„Ég stefni ótrauð áfram leik-
og sönglistarbrautina og get ekki
beðið eftir að útskrifast og fá að
njóta framtíðarinnar í því. Fyrst
verður samt gott að hafa lausan
tíma eftir útskriftina til að vita
hvernig manneskja og listamað-
ur ég er, og til að kynnast sjálfri
mér betur.“
Listunnendum má benda á að
Hallfríður er í einu af aðalhlut-
verkunum í kvikmyndinni Sumar-
land sem frumsýnd verður í ágúst.
thordis@frettabladid.is
Sér nafn sitt langar leiðir
Hallfríður Þóra Tryggvadóttir er ný og rísandi stjarna á sviði leik- og sönglistar, en um nýliðna helgi lenti
hún í þriðja sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna. Hún vekur ekki síður athygli fyrir sérstakan fatastíl.
Skálmarnar á sokkabuxunum sem Hallfríður er í eru ekki eins á litinn. Utan yfir þeim er hún í sokkum sem Borghildur Gunnars-
dóttir (Milla Snorrason) hannaði. Þeir eru í uppáhaldslitum Hallfríðar: bleikir, svartir og gráir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum
og Proflex stillanlegum rúmum
á sértilboði frá framleiðanda
lex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000
lex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 349.900 - verð áður 459.000
Listh
Fermingartilboð
sjá
www.svefn.is
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-frelsi og nýir
möguleikar
Einfaldar í notkun
og hagkvæmar
í rekstri
F Á K A F E N I 9 - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
www.gabor.is
Sérverslun með
Skór & töskur í miklu úrvali