Fréttablaðið - 16.04.2010, Blaðsíða 20
ELDHÚS BRAGÐBÆTTUR SYKUR er bæði góður og fallegur sem skraut í eldhúsið. Sykur er settur í glæra krukku og við hann bætt vanillustöng, rósalauf og þurrkaður appelsínu- eða sítrónubörkur.
„Við tókum alla neðri hæðina í
gegn árið 2006, brutum niður
veggi og breyttum gömlum sól-
skála í stofu með glerþaki. Þá
skiptum við um allt í eldhúsinu og
opnuðum það út í borðstofuna, við
það jókst birtan“ byrjar Sólveig er
hún lýsir endurbótunum sem þau
hjónakornin gerðu á heimili sínu.
Meðan á þeim stóð segir hún eig-
inlega ekki hafa verið búandi í
húsinu. „Við vorum hér samt og
það lá við að við færum á stígvél-
um að rúmstokknum,“ segir hún
hlæjandi. Erfitt er að ímynda sér
slíkt ástand þegar litið er yfir
heimilið nú.
Sólveig segir eiginmanninn
helsta arkitekt að breytingum
eldhússins. „Hann fór með sínar
teikningar í fyrirtækið Heimilið
í heild, fagfólkið þar útfærði svo
innréttingarnar eftir þeim, flutti
þær inn og sá um uppsetninguna.
Kristinn Már, sonur okkar, lokaði
hins vegar gamla innganginum
í eldhúsið og bjó til nýjan, lagði
parketið á gólfið, tók niður loftið í
eldhúsinu og lagði hönd á plóg við
lýsinguna.“
Sólveig segir eldhúsið hafa verið
mjög lítið í upphafi, fyrri eigend-
ur hafi verið búnir að stækka það
um nokkra fermetra en innrétt-
ingin hafi verið fremur dökk og
með fulningum. „Við fórum úr
dimmu eldhúsi í bjart,“ lýsir hún
brosandi og segir jafn æðislegt
að vinna þar og útlitið gefur til
kynna. gun@frettabladid.is
Úr dimmu eldhúsi í bjart
Yndislegar páskaliljur í blóma við útidyrnar og hvít gólfmotta í anddyrinu gefa tóninn þegar gengið er
inn á heimili Sólveigar Guðlaugsdóttur skrifstofumanns og Ingvars Kristinssonar kælitæknimeistara.
Sólveig er ánægð með eldhúsið eftir
breytingarnar.
Eyjan, sem afmarkar eldhúsið frá
borðstofunni er miðpunkturinn, að sögn
Sólveigar.
Tækin í eldhúsinu eru frá Rönning nema uppþvottavélin sem er í skáp undir hliðarglugganum. Hún er frá Fönix. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kartöfl-
ur er
best að
geyma
við 4-
5 gráðu
hita, dæmi-
gerðan ísskápshita. Þá
er öndun í kartöflun-
um hægari og minni
líkur á skemmdum.
Æskilegt rakastig við
geymslu er 75 til 90
prósent.
visindavefur.is
kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur handverksmarkað laugardag--
inn 17. apríl kl. 11-16 í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð.
Selt verður handverk sjálfboðaliða deildarinnar, sauma- og
prjónavörur, kökur og annað föndur. Einnig verður handverk frá
Mósambík til sölu, skartgripir, box, töskur, batik-myndir og fleira.
Allur ágóði rennur til verkefna innanlands.
Nemendur MK í áfanga um sjálfboðið Rauða kross
starf sjá um markaðinn.
Handverksmarkaður
17. apríl
Auk þess verður hægt að kaupa sumargjafir fyrir yngstu kynslóðina.
Tilva
lið að
kaup
a sum
ar-
gjafi
r og
styrk
ja
gott
mál
efni
í leið
inni
Sími 544 2140
Kr. 5.590.-
Kr. 7.320.-
Kr. 11.970.-
Kr. 9.340.-
Kr. 6.420.-
www.hegas.is
Er eldhúsið þitt vel skipulagt?