Fréttablaðið - 17.04.2010, Blaðsíða 63
fjölskyldan 5
Vorhefti Barna og menningar 2010
er komið út. Tímaritið hefur komið
út um vor og haust um árabil og er
gefið út af IBBY á Íslandi – félags-
skap áhugafólks sem efla vill
barnabókmenntir og aðra barna-
menningu. Það er eina íslenska
tímaritið sem fjallar eingöngu um
menningartengt efni fyrir börn.
Í vorheftinu má finna grein-
ar um barnastarf í Árbæjarsafni
og Þjóðminjasafni, umfjöllun um
barnamenningarhús og grein um
Halastjörnuna eftir Tove Jans-
son í tilefni þess að 65 ár eru liðin
síðan Múmínsnáðinn og mamma
hans birtust á bók. Þá er skrifað
um nýlegar bækur, barnaleikrit og
ýmis áhugaverð efni sem tengjast
barnamenningu á líðandi stund.
Börn og
menning 2010
Nýtt Barnamenning líðandi stundar
er til umfjöllunar í heftinu.
Fjölskyldudagur á Gróttu Fjölskyldum gefst tækifæri til að njóta
náttúrufegurðar, skoða fuglalíf og rannsaka fjölbreytt lífríkið í fjörunum sunnan
við Gróttu, Seltjörn og Bakkavík á árlegum Gróttudegi sem verður haldinn
laugardaginn 17. apríl 2010 milli klukkan 12 og 15.30.
Á þeim tíma verður hægt að komast fótgangandi út í eyju, heimsækja vitann
sem verður opinn milli 12 og 15.30 og kaupa kaffi, djús og rjómavöfflur í
Fræðasetrinu.
Gott er hafa með sér poka eða fötur til að tína skeljar og skemmtilegheit í fjörunni.
Björgunarsveitin Ársæll verður á staðnum og ekur þeim sem ekki treysta sér til að ganga út í eyju.
Það eru Foreldrafélag Grunnskóla Seltjarnarness og Fræðslu-, menningar- og þróunarsvið Seltjarn-
arness sem standa fyrir hinum árlega Gróttudegi. - rve
Hreystikeppni, dorgkeppni,
hlaupakeppni, fjölskylduratleik-
ur, hestahátíð, sjóræningjaleik-
ur í Vatnaveröld og Risakarnival
í kvikmyndaveri Atlantic Studios
eru á meðal þess sem verður í boði
á Barnahátíð í Reykjanesbæ sem
verður haldin dagana 21. til 25.
apríl næstkomandi.
Hátíðin verður sett formlega
miðvikudaginn 21. apríl með setn-
ingu listahátíðar barna í Duus-
húsum þar sem bréfdúfum verður
sleppt með boð á hátíðina til allra
barna á landinu.
Fjöldi tómstundafélaga, íþrótta-
félög, leik- og grunnskólar og
menningarhópar koma að hátíðinni
og er frítt á flesta viðburði fyrir
börn í fylgd með fullorðnum. Veit-
ingahús og fyrirtæki verða með
ýmis tilboð í tilefni barnahátíðar-
innar og ýmsar veitingar í boði þar
sem dagskráratriði fara fram.
Nánar á www.barnahatid.is. - rve
Sjóræningjar
og víkingar
Fjölbreytt dagskrá Mikið verður um
að vera á Barnahátíð í Reykjanesbæ.